Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Page 30
Helgarblað 8.–11. ágúst 201430 Fólk Viðtal illa, en nokkrum dögum síðar var ég farinn að hugsa um hvað ég ætl­ aði að gera næst. Ég er bara þannig gerður að ég neita að fara í fórnar­ lambshlutverk og ég var kominn með minn eigin þátt á annarri sjón­ varpsstöð fjórum vikum síðar.“ Þarna á Sölvi við Spjallið með Sölva á Skjá Einum en hann gerði alls fimm þáttaraðir af þeim þætti. Málið kom í kjölfarið en sjötta og síðasta serían fer í loftið á næstu vikum. „Eftir því sem ég var lengur á Skjá Einum þá fann ég alltaf bet­ ur fyrir því hvað ég var orðinn mik­ ill einfari. Inni á stóru fréttastof­ unum ertu innan um fólk sem er sömuleiðis að vinna fréttir og fréttatengt efni allan daginn, en á Skjá Einum var enginn að vinna neitt í líkingu við það sem ég var að gera. Ég er mjög stoltur af því sem ég hef afrekað með lítilli leiðsögn þar sem ég hef oftar en ekki þurft að treysta á eigin dómgreind. Ég hef fjallað um gífurlega erfið mál og má þar til dæmis nefna misnotk­ un gegn börnum. Ég gerði einnig nokkra þætti um undirheimana á Íslandi en margt skrítið kom upp á meðan þeir voru í vinnslu. Ég fékk til dæmis símtöl frá mönnum sem sitja inni á Litla­Hrauni þar sem mér var hótað lífláti. Þættirnir voru ekki einu sinni farnir í loftið en þeir höfðu áhyggjur af því hvað kæmi þar fram. Eftir þessi símtöl gisti ég hjá foreldrum mínum í nokkrar nætur. Ég var bara hræddur,“ viður­ kennir Sölvi. Hálfgerð grænmetisæta Eftir þetta sá Sölvi að tími var kom­ inn til að skipta um gír í efnisvali. Hann hafði varpað ljósi á mörg þung þjóðfélagsvandamál á borð við kynferðisofbeldi, fíkniefna­ neytendur og burðardýr, en í síð­ ustu þáttaröð Málsins ákvað hann að fjalla um málaflokk sem brenn­ ur sérstaklega á honum um þess­ ar mundir – heilsu og heilsutengd málefni. „Serían sem er nú að fara í loftið er að mínu mati sú mikilvæg­ asta sem ég hef gert,“ segir hann. Í fyrstu þáttunum fjallar hann ítar­ lega um aðbúnað dýra í matvæla­ iðnaði hér á landi, málaflokk sem fær að hans mati alltof lítið vægi í umræðunni. „Þegar ég var að vinna þessa þætti fannst mér ég vera að gera eitthvað sem raunverulega skipti máli. Oft er talað um að fjöl­ miðlar eigi að fjalla um þá sem minna mega sín og þar eru dýrin ofarlega á blaði. Þau eiga sér engan málsvara. Það er skelfilegt hvernig farið er með dýr á Íslandi og ég held að það eigi eftir að verða mik­ il vakning í þessum efnum á næstu árum. Það að varphæna sem lifir í þrjú til fjögur ár hafi eitt A4­blað til þess að eyða allri sinni ævi á, það er bara ekki í lagi. Ég fann mjög sterka réttlætiskennd koma upp í mér þegar ég var að gera þessa þætti,“ segir Sölvi og viðurkennir að hann hafi nánast gerst grænmetisæta í kjölfarið. Hann hafi að minnsta kosti haft mjög takmarkaða löngun til þess að leggja sér kjöt til munns eftir gerð þáttanna. Yrði góður pabbi Ekki er hægt að sleppa Sölva án þess að spyrja hann út í ástamál­ in. Hver er staðan á þeim? „Ég hef verið einhleypur núna í eitt og hálft ár. Þar áður var ég í þremur alvar­ legum samböndum þar sem eitt tók eiginlega við af öðru. Segja má að ég hafi verið samfleytt í sam­ böndum í ellefu ár. Ég hef ekkert nema gott um þær konur sem ég hef verið með að segja. Þær eru all­ ar yndislegar manneskjur á sinn hátt og mögulega hefði eitthvert af þeim samböndum orðið lengra ef ég hefði verið á öðrum stað. Síð­ asta eina og hálfa árið hef ég verið að kynnast sjálfum mér enn betur og rækta með mér ákveðna eigin­ leika. Þegar þú ferð í gegnum sama tilfinningaróf einn og þú ert búinn að fara í gegnum með einhverri manneskju þá neyðist þú til þess að átta þig á því að það er ekki mann­ eskjunni að kenna þegar þú lend­ ir í vandræðum. Þá fyrst held ég að þú sért tilbúinn að vera í alvöru sambandi. Þá fyrst getur þú boðið annarri manneskju inn í líf þitt án þess að gera hana að lífi þínu.“ Talið berst næst að barneignum en Sölvi er 35 ára og barnlaus. Langar hann í börn? „Systir mín á tvo stráka og ég er mjög hænd­ ur að þeim. Mér finnst ég hafa allt sem til þarf til þess að verða góður pabbi og ég hef mjög mikið að gefa. Ég er algjörlega tilbúinn til þess að eignast barn. Hins vegar liggur mér heldur ekkert á. Ég trúi því að hlutir eins og að kynnast réttu manneskj­ unni og eignast barn muni gerast á réttum tíma. Ef ég færi að hugsa um þetta með þeim hætti að ég sé að missa af einhverju, eða að tíminn sé að líða of hratt, þá held ég að það væri vísasta leiðin til þess að gera hlutina kolrangt.“ Brotlenti líkamlega Bróðir Sölva lést í eldsvoða aðeins tíu ára að aldri. Sölvi var þá fjögurra ára. Þetta var aðfaranótt aðfanga­ dags og þrátt fyrir ungan aldur eru þessi erfiðu jól honum enn í fersku minni. „Ég hef hugsað meira um hann á síðustu tveimur árum en nokkurn tíma fyrr á ævinni. Mig langar til þess að heiðra minn­ ingu hans með því að lifa mínu lífi með það fyrir augum að við fáum ekki endalausan tíma. Bróðir minn fékk bara tíu ár á þessari jörð og mér þætti ég vanvirða minningu hans með því að eyða tíma mín­ um í óþarfa. Þess vegna er einnig svo mikilvægt að hlúa að heilsunni og nýta hana á meðan maður hef­ ur hana.“ Í þessu samhengi nefnir Sölvi erfitt tímabil sem hann gekk í gegn­ um þegar hann var enn á Stöð 2. „Á ytra borðinu hef ég ekki gengið í gegnum nein gífurleg áföll en ég hef þurft að takast á við margt innra með sjálfum mér. Þegar slitnaði upp úr fyrsta langa sambandinu mínu, sem var búið að vara í sjö ár, gekk ég í gegnum mjög erfitt tímabil. Þá var ég tímabundið gerður að rit­ stjóra Íslands í dag og því var mik­ ið álag á mér í vinnunni í ofanálag. Ég brotlenti algjörlega líkamlega. Ég fann stöðugt fyrir líkamlegum ein­ kennum á borð við oföndun, svima­ köst og meltingartruflanir. Í heilt ár gekk ég á milli sérfræðilækna sem reyndu að finna hvað væri að mér en það var sambland af álagi og andlegri vanlíðan sem ollu þess­ um einkennum. Það er oft ekki fyrr en þú lendir í líkamlegum veikind­ um sem þú sérð hversu ofboðslega þakklátur þú átt að vera fyrir að vera heilbrigður. Í öllum erfiðleikum fel­ ast tækifæri og í dag finnst mér ég mjög lánsamur að hafa gengið í gegnum þetta. Ég lærði mjög mikið á því.“ Sölvi segir fjölmiðlafólk oft og tíðum of lokað. „Þó svo að við séum iðulega að fjalla um fólk sem hef­ ur lent í erfiðleikum þá eigum við erfiðara með að viðurkenna eig­ in veikleika. Á Íslandi er fjöldi fjöl­ miðlafólks sem hefur lent í gífurleg­ um erfiðleikum, hvort sem það er vegna áfengis­ eða eiturlyfjafíknar eða geðrænna vandamála. En fólk viðurkennir þetta ekki. Þar var ég á þessum tíma og þetta tímabil var því sérstaklega erfitt fyrir mig því ég var alltaf að reyna að láta á engu bera.“ Á góðum stað Sölvi leggur áherslu á að hann sé á afar góðum stað í dag, bæði lík­ amlega og andlega. „Þetta er stað­ ur þar sem að þú vaknar á morgn­ ana og hlakkar til að byrja daginn. Staður þar sem þú kemur vel fram við fólkið í kringum þig og þú áttar þig á því að litlu hlutirnir í lífinu séu þeir sem gefa lífinu mest gildi. Stað­ ur þar sem þú ert mjög þakklátur. Mér finnst ég alltaf vera að komast að því betur og betur að munurinn á hamingju og óhamingju er falinn í þakklæti. Þú getur átt mjög lítið en ef þú setur athyglina á að vera þakk­ látur fyrir það litla sem þú átt þá ertu hamingjusamari en ef þú ætt­ ir mjög mikið en værir alltaf með athyglina á því sem þú ættir ekki.“ Skoðar alla möguleika Eins og áður segir eru ákveðin tíma­ mót hjá Sölva um þessar mund­ ir. Fjölmiðlaferill hans spannar ná­ kvæmlega tíu ár og hvað framhaldið varðar segist hann vera að skoða alla möguleika. Hann er opinn fyrir því að vinna við eitthvað al­ veg ótengt fjölmiðlum og segist vera með mörg járn í eldinum. „Núna er ég að leyfa mér það í fyrsta skipti á ævinni – og ég þarf að beita mig hörðu við það – að vera á ákveðnu flökti. Ég er að lesa bækur, fá hug­ myndir og koma þeim í ákveðinn farveg. Í fyrsta skipti er ég nánast laus við þennan afkomuótta sem stýrir lífi svo margra. Í fortíðinni hef ég verið svolítill áhyggjupúki en mér hefur tekist halda ró minni að þessu sinni,“ segir hann og þakkar með­ al annars heilbrigðu líferni, jóga og reglulegu svetti árangurinn. Til út­ skýringar þá er svett ævaforn athöfn þar sem fólk safnast saman í kring­ um heita steina í hálfgerðu indíána­ tjaldi, svitnar og kyrjar. Tilgangur­ inn er að endurnýja lífskraftinn og hreinsa bæði hug og líkama. „Ég er á mjög góðum stað í dag og treysti á að næstu skref verði jafn skemmti­ leg og þau sem á undan eru.“ n Á góðum stað „Þetta er staður þar sem þú vaknar á morgnana og hlakkar til að byrja daginn.“ „Mér fannst þetta skítleg framkoma og ég átti hana ekki skilda

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.