Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Blaðsíða 37
Helgarblað 8.–11. ágúst 2014 Skrýtið Sakamál 37 KaleiKur dauðans n Cherrylle og Scott Dell höfðu slitið samvistir n Framtíðarsýnin sem Cherrylle bauð honum varð skammlíf U m miðja nótt, 29. desember 1995, sat Scott Dell, 44 ára, í holi heimilis síns í bæn­ um Killaloe í Ontario í Kanada. Hann spjallaði við eiginkonu sína, Cherrylee, í síman­ um. Hjónin höfðu slitið samvist­ ir og á meðan þau mösuðu hripaði Scott hugsanir sínar á blað og sötr­ aði úr glasi vín sem Cherrylle hafði gefið honum. Síðar kom í ljós að á meðal þess sem hann skrifaði var: „Hvað hélst þú að myndi gerast ef ég drykki eina vínflösku, hlustandi á tónlistina sem við vorum vön að hlusta á? Ég mun hugsa um mig og þig saman.“ Lokasetning Scotts var: „Líf okkar flýgur hjá.“ Svo virðist sem Scott hafi síðan farið upp í svefnher­ bergi og gefið upp öndina. Í upphafi var talaði að um sjálfsvíg hefði ver­ ið að ræða og krufning leiddi í ljós að hann hafði innbyrt frostlög. Síð­ an leið rúmt ár. Andleg framtíðarsýn Fátt gerðist markvert fyrr en í mars 1997 þegar Gay Doherty, sem hafði verið ástkona Cherrylle þegar Scott skildi við, hafði samband við lög­ regluna og upplýsti að Cherrylle hefði gefið Scott flösku af heima­ löguðu víni með frostlegi í. Að sögn Gay hafði Cherrylle gefið Scott vín­ flöskuna og sagt honum að fara heim og drekka hana þar; þá mundi hann upplifa andlega sýn af fram­ tíð þeirra. Cherrylle Dell var ákærð formlega fyrir morð í desember 1997, en fleira átti eftir að koma upp úr kafinu. Inn í málið bland­ aðist myndbandsupptaka af vitnis­ burði Nancy nokkurrar Fillmore. Nancy hafði átt í ástarsambandi við Cherrylle og haft samband við lög­ regluna og sagt að Cherrylle hefði viljað Scott feigan. Ekki löngu síðar, í ágúst 1997, fórst Nancy í eldsvoða, fertug að aldri, og það eina sem eft­ ir lifði var myndbandsupptakan af yfir lýsingu hennar hjá lögreglunni. Undarlegt vín Áðurnefnd Gay Doherty hafði á sín­ um tíma komið að líki Scotts. Fyrir dómi sagði hún að líkið hefði verið í fósturstellingu og „mjög undarlegt á litinn, eins og grátt,“ og fingurn­ ir með „undarlegan bláma.“ Einnig sagðist Gay hafa séð vínflösku á símaborðinu í holinu: „Það var vökvi í flöskunni sem leit ekki út eins og vín, eða var eins og ein­ hverju hefði verið blandað í það.“ Vitnisburður Cherrylle, sem var sakleysið uppmálað, var á þá leið að hún hefði rætt við Scott um nóttina, hann hefði virkað niðurdreginn og talað um vin sinn sem hafði svipt sig lífi. En undir lok símtalsins hefði hann virst léttari í lund: „Hann var hress. Hann ætlaði í rúmið að sofa.“ Daginn eftir hefði Scott ekki kom­ ið til að ná í börnin og Gay, eft­ ir að hafa rætt við Cherrylle, hefði farið heim til Scotts til að huga að honum. Þáttur Nancy Fillmore Verjandi Cherrylle, Robert Selkirk, reyndi hvað hann gat til að draga úr trúverðugleika vitnisburðar Nancy Fillmore og koma í veg fyrir að upptakan af honum fengist notuð við réttarhöldin. Hafði verjandinn meðal annars á orði að Nancy hefði átt „harma að hefna“ gagn­ vart Cherrylle. Eitt vitna ákæru­ valdsins, Kim Meisel, hafði aðra sögu að segja. Kim hafði átt vin­ gott við Nancy skömmu fyrir dauða hennar og sagði að Nancy hefði verið ástfangin af Cherrylle. „Hún elskaði hana … en á sama tíma ótt­ aðist hún um líf sitt. Hún vissi að henni myndi ekki endast aldur til að bera vitni hér í dag,“ sagði Kim. Cherrylle sór af sér eldsvoðann sem varð Nancy að aldurtila en játaði að hafa verið í sambandi við mann, Brent Crawford, og fengið hann til að áreita og ógna Nancy. Brent hafði gripið til eldfæranna en fullyrti að Cherrylle hefði fengið hann til að kveikja í heimili Nancy. Til að gera langa sögu stutta þá fékk Cherrylle, í febrúar 2001, lífstíðardóm fyrir tvö morð, með möguleika á reynslu­ lausn eftir aldarfjórðung. n „Það var vökvi í flöskunni sem leit ekki út eins og vín Scott Dell Þáði vínflösku dauðans af eiginkonu sinni. Cherrylle Dell Vildi eiginmann sinn feigan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.