Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Blaðsíða 22
Helgarblað 8.–11. ágúst 201422 Fréttir Erlent Musteri Salómons rís að nýju í Brasilíu n Ein stærsta kirkja heims vígð í Sao Paulo n Umdeildur risasöfnuður G ríðarstórir fótboltavellir eru ekki einu musterin sem gnæfa yfir Brasilíumönnum eftir viðburðaríkt ár 2014. Nú hefur risastór kirkja ver- ið opnuð í Sao Paulo á vegum hvíta- sunnusafnaðarins Igreja Univer- sal. Kirkjan, sem tekur tíu þúsund manns í sæti, á að vera nákvæm eftir líking musterisins sem Salómon konungur reisti í Jerúsalem á 10. öld f.Kr. Kirkjan var vígð með pomp og prakt á dögunum en hún þekur gríðarlega stóra lóð í stórborginni Sao Paulo. Framhlið hennar er eins og 18 hæða stórhýsi að hæð. Igreja Universal er líklega um- deildasta trúarsöfnuður Brasilíu. Hann var stofnaður af trúarleið- toganum Edir Macedo í litlu húsi í úthverfi Rio de Janeiro árið 1977. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan. Igreja Universial telur millj- ónir safnaðarmeðlima og Macedo, sem nú er biskup safnaðarins, er einn ríkasti maður í heimi, birtist til dæmis í 1.331. sæti á lista Forbes 2013. Ríkur biskup Áhrif Igreja Universal eru ekki síst umdeild vegna mikilla umsvifa safnaðarins. Macedo biskup stýrir stórfyrirtækjum í Brasilíu sem hann á ýmist í gegnum söfnuðinn eða tengd félög. Þar ber helst að nefna samsteypuna Rede Record, sem er annað stærsta fjölmiðlafyrirtæki landsins en það rekur margar af helstu sjónvarpsstöðvum Brasilíu. Macedo hefur nýlega fest kaup á brasilíska bankanum Banco Renner. Þessi fjölmiðla- og fjármálabiskup stýrir auðæfum sínum frá Atlanta- borg í Georgíu í Bandaríkjunum. Edir Macedo hefur verið sak- aður um peningaþvætti og að taka fjármuni ófrjálsri hendi úr auðug- um fjárhirslum Igreja Universal sem byggja á áheitum trúaðra í Brasilíu og víðar um lönd. Hann er líklega ríkasti trúar- leiðtogi í heimi. Þegar Macedo birtist á lista Forbes sagði hann: „Forbes skrifar að ég sé ríkasti prestur Brasilíu. Ég er ekki bara rík- asti prestur Brasilíu, heldur ríkasti prestur í heimi!“ Umdeildur söfnuður Brasilía er, eins og önnur lönd í Rómönsku-Ameríku, kaþólskt land. En kaþólskan er á undanhaldi. Þjóð- in telur um 200 milljónir og um 60% landsmanna eru kaþólikkar. Fjöldi mótmælenda vex stöðugt vegna safnaða á borð við Igreja Universal en meðlimir slíkra trúfélaga telja um 40 milljónir. Talið er að kaþ- ólikkar verði aðeins 50% árið 2030. Þessi þróun hefur gert trúar- brögðin að mikilli peningastarf- semi og gert nokkra safnaðarleið- toga moldríka. Macedo fer fremstur í flokki hinna ríku og frægu mót- mælendapresta. Igreja Universal, sem kallast Universal Church of the Kingdom of God á ensku, hef- ur stundað útrás á síðustu árum og boðað trú í Bandaríkjunum, Evrópu og Afríku. Trúfélagið hefur nánast alls staðar vakið deilur. Söfnuðurinn leggur áherslu á að túlka orð Biblíunnar bókstaflega. Samkynhneigð er talin synd og fóstureyðingar sömuleiðis. Mikil áhersla er lögð á sögur og persónur Gamla testamentisins. Því kemur ekki á óvart að leiðtogar hans vilji endurreisa musteri Salómons. Rúllustigi og Sáttmálsörk Hið nýja musteri Salómons í Sao Paulo er á 100 þúsunda fermetra lóð. Í því er ítalskur marmari og tré sem voru flutt frá Ísrael. Rúllu- stigi flytur gesti til og frá tilbeiðslu- herbergjum. Tíu þúsund LED-per- ur eru í loftinu í aðalsalnum og lýsa eins og stjörnur á himni. Á veggj- um eru gríðarstórar ljósastikur úr gyðingdómi. Og þarna eru líka fán- ar Brasilíu, Bandaríkjanna og Ísrael. Altari musterisins er sérstak- lega stórt. Það er í laginu eins og Sáttmálsörkin, sem var kistan sem geymdi steintöflurnar með boð- orðunum tíu og geymd var í upp- haflega musterinu. Altarið er skreytt með skíragulli. Kaká hætti Fjölmargir ríkir og stórir hvíta- sunnusöfnuðir eru í Brasilíu. Knattspyrnuhetjan Kaká var með- limur í söfnuði Hernandes-hjón- anna sem komust í heimsfréttir árið 2007 þegar þau reyndu að smygla ferðatöskum fullum af pen- ingaseðlum til Bandaríkjanna. Sumir seðlarnir voru faldir á milli blaðsíðna í Biblíum. Hjónin hafa ít- rekað verið rannsökuð af yfirvöld- um í Brasilíu vegna peningaþvættis. Kaká hætti í söfnuðinum 2010 eftir að upp komst um peningamisferli hjónanna. n Helgi Hrafn Guðmundsson helgihrafn@dv.is Musterið Forhliðin er eins og 18 hæða hús. Æðstipresturinn Milljarðamæringurinn og biskup Igreja Universal, Edir Macedo, fyrir framan líkan af musterinu. Stór kirkja Musterið tekur 10 þúsund manns í sæti. Sáttmálsörkin Hér ganga vaskir menn með Sáttmálsörkina sem sumir þekkja úr Indiana Jones. Hún geymir boðorðin 10. Forsetinn Dilma Rousseff, forseti Brasilíu, var viðstödd vígslu musterisins. Það hefur vakið miklar deilur. Hún er þó ekki í söfnuðinum og segist aðeins vilja heiðra mismunandi trúarbrögð í landinu. Gríðarstór bygging Hið nýja musteri Salómons í Sao Paulo er engin smásmíði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.