Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Síða 32
Helgarblað 8.–11. ágúst 201432 Fólk Viðtal L inda ólst upp víðs vegar um Reykjavík og átti hamingju­ sama æsku. „Fjölskyldan mín flutti mikið svo ég bjó í Breiðholti, Álftamýri og síðar í Grafarvogi,“ segir hún. Linda var mikill íþróttaálfur sem barn og stundaði ýmsar íþróttir en eftir að hafa meiðst á hné neyddist hún hins vegar til að hætta. „Þá gerðist ég pönkari. Ég var rosalega mikill pönkari strax þegar ég var þrettán ára og alveg þang­ að til ég byrjaði í menntaskóla, þá slakaði ég aðeins á. Ég var með grænt og bleikt hár og mætti í skólann í sjöunda bekk í bleikum netsokkabuxum og með dökkbláan augnskugga. Einhvern tímann spurði kennarinn mig hvort það væri allt í lagi heima hjá mér. Þar var allt í himnalagi, mig vantaði bara svolítið mikið athygli,“ segir Linda og hlær. Var villtur unglingur „Pabbi er dúkalagningameistari og mamma er bókavörður í Borgar­ bókasafninu. Við erum algjört al­ þýðufólk og þetta var basl. Við erum þrjár systurnar og svo bættist einn lítill bróðir við löngu seinna. Mamma og pabbi voru mjög ungir foreldrar; mamma var búin að eiga okkur systurnar, allar þrjár, þegar hún var 21 árs.“. Að loknu pönkaratímabili lá leið Lindu í Menntaskólann við Hamrahlíð. „Ég var svolítið villt, var rosa­ mikið úti að skemmta mér,“ segir hún. „Það var einhver athyglisþörf og ævintýramennska í manni. En svo kláraði ég stúdentsprófið og hætti öllu þessu.“ Eftir að hafa lokið stúdentsprófi hóf Linda nám í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. „Pabbi var alltaf mjög pólitískur og við ræddum oft um stjórnmál, en mér fannst hann ekki hlusta nógu vel á mig. Ég held að þetta hafi ver­ ið ákveðin hefnd til að fá hann til að hlusta á mig,“ segir Linda brosandi. „Svo finnst mér þetta bara ofsa­ lega gaman. Stjórnmál eru svo litrík; þau geta verið alveg ömurleg en líka alveg frábær.“ Hitabeltishúsmóðir á Möltu Linda bjó á Möltu um tíma og hef­ ur verið með annan fótinn þar síðan hún var sextán ára. „Systir mín hefur búið þar í 26 ár. Hún flutti mjög ung og giftist inn í stóra fjölskyldu þannig að ég var á Möltu öll sumur og stundum um jól og páska líka í meira en tuttugu ár. Það hefur verið mitt annað heimili í öll þessi ár. Svo var ég í sambúð þarna um tíma líka, var hitabeltishúsmóðir,“ segir Linda og brosir. „Það er að hafa ekkert að gera; vera í sólbaði og taka „siestur“. Enda dó ég úr leiðindum. Það eru nefnilega líka mánudagar á Möltu og frítímar gefa manni ekki réttu myndina af svona stöðum, af því hvernig lífið er þar í raun og veru.“ Linda ber sterkar taugar til eyj­ unnar litlu og veit fátt betra en að vafra um höfuðborgina Valletta á góðum degi. „Draumadagarnir mínir eru þegar ég geng um Valletta; eyði öll­ um deginum alein og er bara að grúska inni í borginni. Þetta er ein best varðveitta miðaldaborg Evrópu og það er rosalega mikil saga þarna. Það eru algjörir unaðsdagar þegar ég er ein, það er rosaheitt og ég vafra bara um borgina. Sest svo niður inn á milli með sögu Mölturiddaranna.“ Illa staðið að uppsögnum Stuttu eftir útskrift úr háskólanum byrjaði Linda að starfa við fjölmiðla. Hún hóf feril sinn á Bylgjunni og fór þaðan yfir á Ríkisútvarpið þar sem hún vann í þrettán ár, bæði í frétt­ um og ýmiss konar dagskrárgerð. Í desember síðastliðnum var hún í hópi þeirra sem var sagt upp vegna niðurskurðar hjá stofnuninni. „Það var mikið sjokk og rosalega vond tilfinning. En þegar allt kom til alls þá var þetta mjög gott fyrir mig því þá fór ég á endanum á Stöð 2 sem er frábær vinnustaður.“ Að sögn Lindu var illa staðið að uppsögnunum. „Þetta var mjög illa undirbúið. Fólk hefur til dæmis verið ráðið aft­ ur til baka og svo var sumum sagt upp sem voru kannski með þætti og það gleymdist að hugsa að það yrði þá bara ekkert í útvarpinu. Þetta var gert á mjög skrýtinn hátt og maður fékk engar skýringar,“ segir hún. „En þessu fylgdi mikil sorg og fólki leið mjög illa. Sumir voru bún­ ir að vera þarna mjög lengi og það hvarflaði ekki að manni að það myndi nokkurn tímann vera látið fara.“ Uppsögnin var tækifæri „Þetta var erfitt en einnig smá léttir því það var búið að vera erfitt and­ rúmsloft. Ég átti svo rosalega marga vini og kunningja á RÚV og allt í einu voru lyklarnir teknir af mér og mér leið eins og ég mætti ekki fara að hitta vini mína. Það var búið að læsa mig úti eftir að hafa verið þarna í svo langan tíma. Ég hef ekki farið þangað einu sinni í kaffi síðan.“ Linda lítur þó einnig á uppsögn­ ina sem tækifæri. „Auðvitað líður manni illa inni í sér og þessu fylgir höfnunartilfinn­ ing. Maður er sorgmæddur. Það er ömurleg tilfinning að vera sagt upp, það er bara glatað. En þetta var líka gott fyrir mig. Ég var náttúrlega að verða ellidauð á RÚV og ég hefði aldrei drattast til að fara að gera eitt­ hvað annað fyrr en mér var hrein­ lega kastað út.“ Vildi komast úr skugganum „Ég held það hafi verið bara til að yfirstíga feimni,“ segir Linda, spurð „Mig langaði alltaf að lifa einhverju ævintýri. Ég er að átta mig á því fyrst núna að það að eiga börn er ævintýri. En ég hef alltaf þráð frelsið umfram það,“ segir fjölmiðlakonan Linda Blöndal. Linda hóf störf á fréttastofu Stöðvar 2 í vor en hún hafði verið hjá Ríkisútvarpinu í meira en áratug þegar henni var sagt upp í desember síðastliðnum. Fyrir tveimur árum fann hún ástina í sínum elsta æsku- vini og íhugar nú að gera eitthvað í barnleysi sínu og kærastans. Blaðamaður hitti Lindu og ræddi við hana um ástina, uppsögnina á RÚV og húsbrunann sem olli henni miklum erfiðleikum. „Ég hef alltaf þráð frelsið“„Mömmur okkar sögðu alltaf að við ættum að giftast Hörn Heiðarsdóttir horn@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.