Lögmannablaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 9

Lögmannablaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 9
9 Lögmenn sem öðluðust málflutn-ingsréttindi í gildistíð laga um málflytjendur nr. 61 frá 1942 fengu enga sérstaka fræðslu um inntak siða- reglna lögmanna. Það gat því alveg verið undir hælinn lagt hvort lögmenn yfirleitt kynntu sér efni siðareglna lög- manna eða tileinkuðu sér þær í störfum sínum. Með nýjum lögmannalögum nr. 77 frá 1998 er lögmannsefnum gert að sitja námskeið þar sem sérstaklega er fjallað um siðareglur og síðan þreytt prófraun úr námsefninu. Með því er tryggt að verðandi lögmenn fái þegar í upphafi ítarlega fræðslu um þýðingu siðareglna og beit- ingu þeirra. Reglur um samskipti lögmanna inn- byrðis er að finna í IV. kafla Codex Ethicus (CE) fyrir Lögmannafélag Íslands og eru þær birtar í handbók LMFÍ. Siðareglurnar fjalla aðeins að nokkru um þau tilbrigði sem upp kunna að koma samskiptum milli lögmanna og þegar þeim sleppir mótast samskiptin af eðlilegum háttsemisreglum og hyggjuviti manna. Almennt orðaða reglu um samskipti lögmanna innbyrðis er að finna í 25. gr. CE þar sem segir að lögmenn skulu hafa góða samvinnu sín á milli og sýna hver öðrum fulla virðingu í ræðu, riti og framkomu. Þeir skulu sýna hver öðrum þá tillits- semi, sem samrýmanleg er hagsmunum skjólstæð- ings. Regla þessi birtist í margvíslegum myndum og skulu aðeins fáein reynslutilvik höfundar rakin. Lögmönnum hefur stundum verið legið á hálsi fyrir að samsama sig um of málstað skjólstæðinga sinna. Við það tapi þeir að nokkru þeirri hlutlægu sýn sem nauðsynlegt er að hafa á hvert viðfangs- efni. Í því kunna að leynast hættur sem gefa verður gaum. Ein er sú að lögmenn taki í ræðu og riti að persónugera hverjir aðra í málum skjól- stæðinga sinna. Þá er ekki við hæfi að henda á lofti eða hafa í flimtingum lögmanni gagnaðila til minnkunar hafi honum á einhverjum stigum máls orðið fótaskortur í málatilbúnaði eða röksemdarfærslu, heldur svara með málefnalegum mótrökum einum hverju því sem að höndum ber. Að hnýta við meinlegum athugasemdum, þó færi gefist, þjónar í engu langtíma samskiptahagsmunum lögmanna og geta þau vopn hæglega snúist í höndum þeirra sem láta undan slíkum hvötum. Samfélag lögmanna er lítið sem leiðir tölfræðilega til þess að sömu lögmenn eiga líklega eftir að hittast síðar. Lítilsvirðing sem sýnd hefur verið í samskiptum getur skilið eftir sig særindi sem tekur tíma að lækna á meðan hófstillt og hroka- laus framkoma vekur virðingu og skilur eftir orð- stír sem erfitt er að spilla. Sérfræðikunnátta lögmanna felst í að stýra far- sællega málum skjólstæðinga þeirra, eftir atvikum í örugga höfn dómstóla, þar sem að lokum réttmæt ákvörðun er tekin. Til lögmanna er leitað sem sér- fræðinga á tilteknu sviði þar sem þeir eru best til þess fallnir að stjórna ferð. Þegar ákvörðun hefur verið tekin um það með hvaða hætti mál skuli rekið þá er það lögmanna með þekkingu sína að vopni að rata bestu leiðina að markmiðinu. Komi lausung á þetta fyrirkomulag, þannig að skjól- stæðingurinn er kominn upp að hlið lögmanni við stjórnvölinn, þá gæti margt farið öðruvísi en ætlað var, einnig í samskiptum lögmanna innbyrðis. Hverjar svo sem ástæður málareksturs kunna að vera þá ber lögmanni að forðast að dragast inn í þær deilur skjólstæðings síns á þann hátt að hætta geti verið á að samskiptin við lögmann gagnaðila spillist. Skjólstæðingar lögmanna eiga ekki kom- ast upp á milli lögmanna innbyrðis þannig að tor- tryggni myndist. Samskipti þeirra skulu áfram vera hlutlæg og heiðarleg þrátt fyrir ágengni og deilur skjólstæðinga þeirra. Lögmenn verða þannig að gæta þess vel að verða ekki of leiðita- mir í samskiptum sínum við skjólstæðinga þannig L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð Nokkrar hugleiðingar um samskipti lögmanna innbyrðis Jóhannes Albert Sævarsson hrl.

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.