Lögmannablaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 29

Lögmannablaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 29
29 Miðvikudaginn 19. maí 2004 öttu félagsmennLMFÍ kappi saman í sparki innanhúss. Var þetta í tíunda skiptið sem mótið fór fram og er ótrúlegt hvað félagsmenn (sumir) eldast vel. Sex lið mættu til leiks sem er svipaður fjöldi og und- anfarin ár. Lið Reynslu og Léttleika, sem vann bikarinn til eignar á síðasta ári, mætti ekki til leiks í fyrsta skipti í sögu mótsins og varð þar skarð fyrir skildi. Fyrir mótið hafði lið RogL sigrað samtals fimm sinnum í mótinu, lið Grínarafélags- ins þrisvar og lið Markarinnar einu sinni. Úrslit einstakra leikja: LOGOS - Grínarafélagið 1-3 AM Utd. - KF Þruman 1-0 Mörkin+ - FC Bankó 5-2 LOGOS - Mörkin+ 0-3 FC Bankó - KF Þruman 1-0 AMU - Grínarafélagið 0-1 LOGOS - KF Þruman 2-4 FC Bankó - AMU 2-3 Mörkin+ - Grínarafélagið 3-4 Mörkin+ - KF Thunder 3-5 AMU - LOGOS 4-1 Grínarafélagið - FC Bankó 8-1 FC Bankó - LOGOS 5-3 KF Þruman - Grínarafélagið 2-2 AMU - Mörkin+ 4-1 L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð Mótið var hið fjörlegasta og virtist stefna í ein- vígi milli AM Utd., Markarinnar og Grínarafé- lagsins um fyrsta sætið. Lið KF Þrumunnar byrj- aði með tveimur tapleikjum en aldursforsetarnir síungu sýndu í lokin hvað í þeim bjó með því að ná þriðja sætinu með glæsilegum endaspretti. Lið FC Bankó átti góða spretti, en mættu aðeins fjórir til leiks. LOGOS tókst að tapa öllum sínum leikjum þrátt fyrir að liðið teldist nokkuð sterkt á „pappírnum“, en hvað er pappír án penna heyrðist einn áhorfandinn segja! Enduðu leikar svo að lið Grínarafélagsins bar sigur úr bítum. Liðið átti nokkuð jafna leiki en átti sem fyrr í vandræðum með lið Þrumunnar. Lið Grínarafélagsins gerði nokkru fyrir mótið samn- ing við Guðna Bergsson verðandi hdl., en að þessu sinni komst Guðni ekki í liðið og er ljóst að hann verður að æfa betur fyrir næsta mót ætli hann sér sæti í liðinu. Lið AM United kom sterkt til leiks og endaði stigi á eftir sigurvegurum mótsins. Liðið er skipað yngri mönnum, en með eldri og reyndari menn á borð við Hróbjart Jónatansson og Davíð Gíslason sér til halds og trausts. Að endingu var lokastaðan í mótinu: 1. Grínarafélagið 4 1 0 18:7 +11 13 2. AM United 4 0 1 12:5 +7 12 3. KF Þruman 2 1 2 11:9 +2 7 4. Mörkin+ 2 0 3 15:15 0 6 5. FC Bankó 2 0 3 11:19 -8 6 6. LOGOS 0 0 6 7:19 -12 0 Hið konunglega meistaramót LMFÍ í knattspyrnu innanhúss 2004 Í mótslok voru afhent verðlaun og tók lið Grínara- félagsins á móti nýjum bikar, hinum konunglega bikar meistaramóts LMFÍ. Það þótti því við hæfi að kammerjómfrú hins konunglega fjelags á Íslandi afhenti bikarinn og tókst henni það með sóma! AM United varð í öðru sæti en hefðu fengið fyrstu verðlaun – ef þau hefðu verið veitt – fyrir smekk- lega búningahönnun.

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.