Lögmannablaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 19

Lögmannablaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 19
19 Ingimar Ingason, fram- kvæmdastjóri LMFÍ, gerði grein fyrir ársreikningi félagsins og Námssjóðs þess, fyrir árið 2003, en reikning- urinn fylgdi prentaðri skýrslu stjórnar. Niðurstaða af rekstri félagsins í heild var jákvæð og tekjur umfram gjöld numu tæpum 2 millj- ónum króna á rekstrarárinu. Að teknu tilliti til fjármagns- liða var hagnaður skyldu- bundna hlutans rúmlega 600 þúsund krónur en hagnaður félagsdeildar var tæplega 1400 þúsund krónur. Fram- kvæmdastjórinn gerði síðan grein fyrir helstu breytingum á tekju- og gjalda- liðum og þeim rekstrarliðum sem tóku miklum breytingum eða kölluðu að öðru leyti á sérstaka umfjöllun. Umræður um skýrslur og reikninga Jakob R. Möller hrl. tók undir ræðu Jóhannesar Karls og taldi réttaraðstoð lögmanna vera mjög þýðingarmikla. Ræddi Jakob framkvæmd ákvarð- ana í gjafsóknarmálum og taldi ákvarðanir dóm- stóla langt frá því að mæta kostnaði og að stjórn LMFÍ hefði miklu hlutverki að gegna í þessu máli. Jakob vék því næst að úrskurði samkeppnisráðs og lýsti þeirri skoðun sinni að ekki ætti að áfrýja þar sem hann væri efnislega réttur. Næstur tók til máls Guðni Haraldsson hrl. sem lýsti sig sammála Jak- obi um að una bæri úrskurði samkeppnisráðs til að takmarka tjón LMFÍ út á við. Taldi Guðni ýmsar leiðir hefðu verið færar á sínum tíma en nú þyrfti hver lögmaður að kynna dómstólunum sinn kostnað af hverju máli. Næst tók til máls Björn Bergsson hrl. og var hann sammála síðustu ræðu- mönnum en taldi viðbragðaleysi LMFÍ slæmt. Taldi hann að stjórn LMFÍ hefði átt að vera viðbúin úrskurðinum þannig að hægt hefði verið að skýra málið út í fjölmiðlum. Kosningar. Gunnar Jónsson hrl., gaf kost á sér til endurkjörs til embættis formanns félagsins og var hann sjálf- kjörinn. Auk Gunnars voru kjörnir í aðalstjórn til næstu tveggja ára, þau Helga Melkorka Óttarsdóttir hdl. og Jóhannes Albert Sævarsson hrl. en auk þeirra sitja áfram í stjórn þeir Ólafur Rafnsson hrl. og Ragnheiður Bragadóttir hdl. Í þriggja manna varastjórn voru kjörin Helga Jónsdóttir hdl., Stefán G. Þórisson hrl. og Heimir Örn Herbertsson hdl. Gústaf Þór Tryggvason hrl. og Othar Örn Petersen hrl. voru kjörnir endurskoðendur og Þorbjörg I. Jónsdóttir hdl. til vara. Í laganefnd voru kjörin Jóhannes Rúnar Jóhannsson hrl., Sif Konráðsdóttir hrl., Oddný Mjöll Arnardóttir hdl., Óttar Pálsson hdl. og Birgir Már Ragnarsson hdl. Í stjórn Náms- sjóðs, sem jafnframt gegnir störfum bókasafns- nefndar félagsins, var Þórólfur Jónsson hdl. kosinn til tveggja ára í stað Jóhanns Níelssonar hrl. sem óskaði eftir að víkja úr stjórn. Reglur um endurmenntun lögmanna Ólafur Rafnsson hdl. kynnti vinnu starfshóps um endurmenntunarskyldu lögmanna. Fór Ólafur yfir helstu kosti og galla reglna um endurmenntun og benti á að almennt væru menn sammála gildi end- urmenntunar en ágreiningur væri hins vegar um skylduna. Greindi Ólafur frá því að starfshópurinn hafði lagt drög að því að um yrði að ræða þriggja ára ferli sem fæli í sér einingafjölda samsvarandi við tvö almenn námskeið á vegum Lögmannafé- lagsins á ári og að fjöldinn allur af leiðum yrði til þess að öðlast endurmenntunareiningar. Til þess að koma á endurmenntunarskyldu þyrfti að huga að lagaheimildum, t.d. beitingu viðurlaga, ásamt að- lögun slíkrar skyldu að t.d siðareglum lögmanna. Nokkur vinna væri því óunnin en málið væri á því stigi að kynning á afrakstri þeirrar vinnu sem unnin hefði verið þyrfti að fá umfjöllun félagsmanna. Önnur mál Dögg Pálsdóttir hrl. tók til máls og fagnaði breyttu kynjahlutfalli nýkjörinnar stjórnar. Dögg L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð F.v. Jakob R. Möller hrl., Benedikt Ólafsson hdl., Elinborg B. Björnsdóttir hdl., Björn Ólafur Hallgrímsson hrl., Björn L. Bergs hrl. og Ársæll Hafsteinsson hdl.

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.