Lögmannablaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 23

Lögmannablaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 23
23 restrictions contained in domestic leg- islation on the right to a review mentioned in that provision [þ.e. 2. gr. 7. samnings- viðauka] must, by analogy with the right of access to a court embodied in Article 6 1 of the Convention, pursue a legitimate aim and not infringe the very essence of that right. Allar takmarkanir á rétti manna til þess að áfrýja sakamálum verða þannig að lúta að lög- mætu markmiði og brjóta ekki í bága við skýra meginreglu þess efnis að almennt skuli ekki girða fyrir rétt manna til að skjóta sakamálum til æðra dóms. Ákvæði íslenskra laga um rétt manna til áfrýjunar sakamála Hæstiréttur hafnaði beiðni um áfrýjun málsins, S-175/2002, á grundvelli þess að ekki væru laga- skilyrði til að verða við beiðninni og vísaði í 3. mgr. 150. gr. laga nr. 19/1991 og 4. mgr. 152. gr. laga nr. 91/1991, en fyrrnefnda lagagreinin hljóðar svo í heild sinni: 150. gr. 1. Nú hefur ákærði ekki sótt þing í héraði og mál verið dæmt að honum fjar- stöddum skv. 1. mgr. 126. gr. og verður þá dómi aðeins áfrýjað um lagaatriði eða viður- lög og að fengnu leyfi Hæstaréttar. 2. Áfellisdómi verður aðeins áfrýjað með leyfi Hæstaréttar ef ákærða er þar hvorki ákveðin frelsissvipting né sekt eða eignaupp- taka sem er hærri en áfrýjunarfjárhæð í einkamálum. 3. Beiðni um leyfi til áfrýjunar skv. 1. eða 2. mgr. skal vera skrifleg og ítarlega rökstudd og berast Hæstarétti innan áfrýjunarfrests. Leiti ákærði eftir áfrýjunarleyfi skal beiðni um það beint til ríkissaksóknara ásamt til- kynningu skv. 2. mgr. 151. gr. Afhending beiðni um leyfi til áfrýjunar rýfur áfrýjunar- frest. Hæstiréttur skal gefa gagnaðila kost á að tjá sig um beiðni innan tiltekins frests. Áfrýjunarleyfi verður ekki veitt nema sér- stakar ástæður mæli með því. [feitletrun höfundar] Hinar sérstöku ástæður sem 3. mgr. 150. gr. laga nr. 19/1991 áskilur má finna í 4. mgr. 152. gr. laga nr. 91/1991 þó ekki séu þær þar tæmandi taldar: 4. Nú nær krafa ekki áfrýjunarfjárhæð eða Hæstiréttur telur hagsmuni ekki nægja til áfrýjunar skv. 3. mgr. og getur hann þá orðið við umsókn um leyfi til að áfrýja máli ef einhverju eftirtalinna skilyrða er fullnægt: a. úrslit málsins hafa verulegt almennt gildi, b. úrslit málsins varða mikilvæga hagsmuni þess sem leitar áfrýjunarleyfis, c. ekki er útilokað samkvæmt fyrirliggjandi gögnum að dómi kunni að verða breytt svo að einhverju nemi. Ef tekin eru saman skilyrði íslenskra laga til þess að unnt sé að áfrýja áfellisdómi í sakamáli þá er nauðsynlegt að: 1. Ákærða hafi verið ákveðin frelsissvipting á lægra dómstigi 2. Refsing ákærða, þ.e. sekt og eignaupptaka, nemi hærri fjárhæð en sem nemur áfrýjunar- fjárhæð í einkamálum, sem nú eru kr. 420.000, sbr. auglýsingu í 150. tbl. Lögbirt- ingablaðsins 2003. 3. Sérstakar ástæður mæli með því. Samanburður á ákvæðum MSE og íslenskra laga Ljóst er að málið sem hér hefur verið til umfjöllunar uppfyllir ekki skilyrði 1. og 2. liðar hér að framan og því er vert að kanna nánar 3. skilyrðið um sérstakar ástæður. Eins og greint var frá hér að framan er hugtakið sérstakar ástæður í 3. mgr. 150. gr. laga nr. 19/1991 skýrt með hlið- sjón af 4. mgr. 152. gr. laga nr. 91/1991, en eins og áður hefur komið fram eru sérstakar ástæður sam- kvæmt þeirri grein eftirfarandi: 1. úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi, eða 2. úrslit málsins varði mikilvæga hagsmuni þess sem leitar áfrýjunarleyfis, eða 3. ekki er útilokað samkvæmt fyrirliggjandi gögnum að dómi kunni að verða breytt svo að einhverju nemi. Einhver þessara sérstöku lögákveðnu ástæða, eða eftir atvikum aðrar ólögákveðnar, þurfa að eiga við um mál svo heimilt sé að áfrýja því til Hæsta- réttar ef það uppfyllir ekki skilyrði 2. mgr. 150.gr. laga nr. 19/1991. Telja verður að úrslit málsins í því tilfelli sem hér um ræðir hafi ekki verulegt almennt gildi. Þannig er hægt að álykta að Hæstiréttur Íslands hafi metið það svo að úrslit málsins hafi ekki varðað mikilvæga hagsmuni þeirra sem L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.