Peningamál - 01.08.2003, Blaðsíða 27
26 PENINGAMÁL 2003/3
Ísland var ekki meðal þeirra 35 ríkja sem valin
voru í úttekt IMF. Hins vegar hefur hagfræðisvið
Seðlabanka Íslands reiknað út viðkvæmnistuðul
verðhjöðnunar fyrir Ísland út frá sömu forskrift og í
skýrslu IMF. Samkvæmt þeirri mælingu reiknast Ís-
land með óveginn viðkvæmnistuðul 0,27 og veginn
stuðul 0,19, þ.e. í lítilli til hverfandi hættu á
verðhjöðnun.5 Þau atriði sem þóttu þó gefa vísbend-
ingu um slaka í hagkerfinu hér skv. viðkomandi mæl-
ingum voru eftirfarandi: (i) verðvísitala VLF lækkaði
um 2,1% á milli fyrsta ársfjórðungs 2002 og fyrsta
ársfjórðungs 2003; (ii) meðalhagvöxtur síðastliðin
þrjú ár var minni en meðalhagvöxtur síðastliðinn ára-
tug og (iii) raungengi krónunnar hækkaði um mun
meira en 4% á milli ára skv. tölum yfir fyrsta árs-
fjórðung 2003.
Samkvæmt greiningu IMF virðast nokkrar þjóðir
talsvert viðkvæmar fyrir verðhjöðnun um þessar
mundir. Ef athuguð er niðurstaða óvegins áhættumats
eru það einungis þjóðir sem nú þegar glíma við
verðhjöðnun sem mælast í mikilli áhættu fyrir slíku
ástandi, þ.e. með viðkvæmnistuðul yfir 0,5. Vegið
Áhættumat fyrir verðhjöðnun (óvegið)
Áhætta Hverfandi Lítil Nokkur Mikil
Stuðull < 0,2 0,2 ≤ X ≤ 0,3 0,3 ≤ X ≤ 0,5 > 0,5
Ástralía Austurríki Belgía Japan
Bandaríkin Brasilía Finnland Hong Kong
Bretland Holland Noregur Taívan
Chile Indland Pólland
Danmörk Ísland Portúgal
Frakkland Ítalía Singapúr
Grikkland Kína Sviss
Írland Kórea Svíþjóð
Kanada Malasía Taíland
Nýja-Sjáland Mexíkó Þýskaland
Rússland Suður Afríka
Spánn
Áhættumat fyrir verðhjöðnun (vegið)
Áhætta Hverfandi Lítil Nokkur Mikil
Stuðull < 0,2 0,2 ≤ X ≤ 0,3 0,3 ≤ X ≤ 0,5 > 0,5
Ástralía Austurríki Belgía Japan
Chile Bandaríkin Finnland Hong Kong
Danmörk Brasilía Noregur Taívan
Ísland Bretland Portúgal Þýskaland
Malasía Frakkland Singapúr
Nýja-Sjáland Grikkland Sviss
Rússland Holland Svíþjóð
Suður Afríka Indland
Spánn Írland
Ítalía
Kanada
Kína
Kórea
Mexíkó
Pólland
Taíland
Heimildir: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Seðlabanki Íslands.
5. Miðað við nýjustu fáanlegar tölur í hverjum flokki.