Peningamál - 01.08.2003, Blaðsíða 44
PENINGAMÁL 2003/3 43
jörðinni, heldur er það ávallt bundið súrefni og því er
hráefni til álframleiðslu oft nefnt súrál. Ál er unnið úr
súráli með rafgreiningu þar sem súrefnið er losað frá
álinu. Ál er til í mörgum mismunandi jarðefnum, en
er þó einungis unnið á hagkvæman hátt úr bergteg-
undinni báxíti, sem inniheldur um 50% súrál. Ál er
nálægt því að vera einsleit vara sem verslað er með á
einum alþjóðlegum markaði, þar sem kaupendur eru
aðallega framleiðendur neytendavara. Fjórir stærstu
notendur áls eru framleiðendur farartækja (bifreiða,
flugvéla, skipa, lesta o.fl.) sem nota um fjórðung
framleiðslunnar, umbúða- og pökkunariðnaður notar
um fimmtung álframleiðslunnar, sem er sama hlutfall
og byggingariðnaður notar, raftækjaframleiðendur
(rafmagnslína, spenna og raftækja) nota um 10% en
aðrir nota minna. Eftirspurn og verðþróun á áli er því
að talsverðu leyti háð eftirspurn eftir neytendavörum
og efnahagsástandi í heiminum á hverjum tíma.
Þótt sjávarútvegur hafi verið talinn orsök
óstöðugleika í efnahagslífinu hefur orðið breyting til
batnaðar tvo síðastliðna áratugi. Fiskveiðistjórnunar-
kerfið gerir það að verkum að afli er ekki eins
sveiflukenndur og áður var. Veiði og vinnsla fleiri
tegunda hefur dregið úr sveiflum í verðmæti sjávar-
afurða. Útflutningi sjávarafurða má skipta í fjóra
þætti. Í fyrsta lagi eru það misjafnlega mikið unnar
frystar afurðir sem fluttar eru út til neyslu í Japan,
Bandaríkjunum, Bretlandi og Þýskalandi og nema
um helmingi útflutningsverðmætis sjávarafurða. Í
öðru lagi eru það saltaðar og þurrkaðar afurðir sem
einkum eru fluttar út til Portúgal, Spánar og Nígeríu
og nema um fimmtungi af útflutningsverðmæti
sjávarafurða. Í þriðja lagi eru það mjöl og lýsi sem
eru að mestu leyti flutt út til Bretlands, Noregs og
Danmerkur og nema um sjöunda hluta útflutnings-
verðmætis sjávarafurða. Að lokum er það ferskur
fiskur, aðallega fluttur út til Bandaríkjanna, Bret-
lands og Þýskalands og nemur um tíunda hluta
útflutningsverðmætis sjávarafurða.
Sveiflur í verðmæti vöruútflutnings í sögulegu sam-
hengi
Í umræðunni um stóriðju á Íslandi hafa vonir verið
bundnar við að aukið vægi stóriðju og minnkað vægi
sjávarafurða muni draga úr sveiflum í útflutnings-
verðmæti og draga þar með úr sveiflum í íslensku
atvinnulífi. Það er athyglisvert að skoða hvaða áhrif
það hefði haft á þróun útflutningsverðmætis, á
árunum 1981 til 2001, ef magn áls hefði verið tæp-
lega þrefalt meira, sem er sambærilegt við þá
aukningu sem nú stendur fyrir dyrum. Á mynd 2 eru
þessi áhrif dregin upp, þar sem gert er ráð fyrir að
allar aðrar stærðir séu óbreyttar. Ekki er t.a.m. gert
ráð fyrir ruðningsáhrifum vegna tilkomu stóriðju.
Það sem er athyglisvert á mynd 2 er í fyrsta lagi
hversu lítil áhrif það virðist hafa á breytingarnar ef
útflutningsverðmæti áls hefði verið nálægt þrefalt
meira. Ástæður þess eru líklega einkum þær að
sveiflur í útflutningsverðmæti áls eru fremur litlar,
gildir þá einu þótt við margföldum útflutning á áli,
breytingarnar milli ára verða ekki svo ýkja miklar. Í
öðru lagi er vert að veita því athygli að sveiflurnar
virðast aukast á árunum 1983-1985. Ástæða þess er
sú að vegna lítillar eftirspurnar framleiddi ÍSAL ál í
birgðir á árunum þar á undan, en seldi talsvert magn
af birgðum á árinu 1983. Eins kemur framleiðslu-
aukning ÍSAL og tilkoma Norðuráls fram á myndinni
sem aukning í útflutningsverðmæti upp úr árinu
1997. Í sögulegu samhengi virðist því sem aukið
vægi áls hefði ekki dregið úr sveiflum og skapað
mótvægi við útflutningsverðmæti annars vöruút-
flutnings.
Sveiflur í verðmæti útflutnings við tæplega þre-
falt vægi áls, sem sýnt er á mynd 2, eru annmörkum
háðar. Verðmæti er margfeldi magns og verðs, en þá
er enginn greinarmunur gerður á því hvort sveifl-
urnar stafa af breytingu í magni eða verði. Við skul-
um því greina hér á milli magn- og verðsveiflna.
80 82 84 86 88 90 92 94 96 98 00 02
0,0
0,1
0,2
0,3
-0,1
-0,2
-0,3
Breyting milli ára í %
1. Ef ál hefði vegið tæplega þrefalt meira en útflutningsverðmætið var á árinu 2002, sambærilegt við þá
stækkun sem nú stendur fyrir dyrum. Gert er ráð fyrir að annað haldist óbreytt. Útflutningsverðmætið er
leiðrétt fyrir áhrifum gengis og verðlags til ársins 2002. Heimildir: Hagstofa Íslands og Seðlabanki Íslands.
Þróun útflutningsverðmætis 1981-2002
Mynd 2
Sögulegt útflutningsverðmæti og áætlað miðað við aukið vægi áls1
Sögulegt
Áætlað, m.v.
aukið vægi áls