Peningamál - 01.11.2007, Page 61

Peningamál - 01.11.2007, Page 61
P E N I N G A M Á L 2 0 0 7 • 3 61 stig eftir tvö ár. Gengisferillinn í grunnspá Seðlabankans er nokkuð frá- brugðinn. Samkvæmt honum helst gengi krónunnar hátt út næsta ár og tekur að lækka árið 2009. Gengisvísitalan er að meðaltali tæp 119 stig á næsta ári en 127 stig á árinu 2009. Búist við lækkun stýrivaxta á öðrum fjórðungi næsta árs Stýrivextir Seðlabankans hafa verið óbreyttir í 13,3% síðan í desember 2006. Sérfræðingarnir spá því að þeir verði að meðaltali 11½% eftir eitt ár, 8½% eftir tvö ár og síðan nánast óbreyttir út spátímann. Til skamms tíma er stýrivaxtaspáin nokkurn veginn í samræmi við birtan stýrivaxtaferil í síðustu Peningamálum. Þeir búast allir við vaxtalækkun á öðrum fjórðungi næsta árs en í síðustu könnun áttu þeir von á henni í lok þessa árs. Ólík sýn á þróun fasteignaverðs Sérfræðingarnir hafa nokkuð ólíka skoðun á þróun húsnæðisverðs. Að meðaltali reikna þeir með tæplega 2% verðhækkun á næstu tólf mán- uðum. Einn svarenda spáir þó tæplega 9% verðlækkun húsnæðis og annar 10% verðhækkun. Mat sérfræðinganna á langtímahorfum er einnig nokkuð mismunandi en að meðaltali spá þeir að árshækkunin nemi 3% í lok ársins 2009. Hlutabréfaverð hefur sveifl ast mikið undanfarna mánuði líkt og gengi krónunnar. Að meðaltali spá sérfræðingarnir því að úrvalsvísitalan standi í tæpum 9.500 stigum eftir eitt ár og rúmlega 11.000 eftir tvö ár. Spáin er nánast óbreytt frá síðustu könnun í júní sl. ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM 2007 2008 2009 2010 Meðal- Lægsta Hæsta Meðal- Lægsta Hæsta Meðal- Lægsta Hæsta Meðal- Lægsta Hæsta tal gildi gildi tal gildi gildi tal gildi gildi tal gildi gildi Verðbólga (milli ársmt.) 4,9 4,9 5,0 4,2 3,5 4,5 3,2 2,7 3,7 2,8 2,2 3,8 Hagvöxtur 2,2 1,5 2,7 2,6 2,0 3,7 2,7 1,5 4,0 3,3 2,1 4,0 Október 2008 Október 2009 Október 2010 Verðbólga 3,4 2,0 4,5 3,0 2,7 3,3 2,8 2,5 3,8 Gengisvísit. erl. gjaldmiðla 125 123 126 123 118 127 122 117 130 Stýrivextir Seðlabankans 11,5 10,8 12,0 8,5 8,0 9,5 8,5 7,0 9,5 Langtímanafnvextir2 8,9 8,7 9,2 8,3 8,0 8,5 8,1 7,6 8,7 Langtímaraunvextir3 4,3 4,2 4,5 4,0 3,8 4,2 4,1 4,0 4,3 Úrvalsvísitala aðallista 9.451 7.500 10.600 11.089 9.000 12.700 12.638 10.000 15.000 Ársbreyting fasteignaverðs 1,7 -8,7 10,0 3,1 -0,5 6,0 2,9 0,0 7,0 Yfirlit yfir spár sérfræðinga á fjármálamarkaði1 1. Taflan sýnir breytingu milli tímabila í % nema að því er varðar gengi, vexti og úrvalsvísitölu. Sýnd eru þau gildi sem spáð er fyrir vexti (%), gengisvísitölu erlendra gjaldmiðla (stig) og úrvalsvísitölu aðallista (stig). Þátttakendur í könnuninni eru Askar Capital hf. og greiningardeildir Glitnis hf., Kaupþings hf. og Landsbanka Íslands hf. 2. Ávöxtunarkrafa í tilboðum viðskiptavaka í ríkisbréf (RIKB 13 0517). 3. Ávöxtunarkrafa í tilboðum viðskiptavaka í íbúðabréf (HFF150644). Heimild: Seðlabanki Íslands.

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.