Peningamál - 01.11.2007, Page 77

Peningamál - 01.11.2007, Page 77
Peningastefnan og stjórntæki hennar Breyting Vextir Vextir Síðast (pró- fyrir Viðskiptaform nú (%) breytt sentur) ári (%) Viðskiptareikningar Daglán Bindiskylda Lán gegn veði Innstæðubréf til 7 daga 12,75 21. desember 2006 0,25 12,50 15,25 21. desember 2006 0,25 15,00 13,00 21. desember 2006 0,25 12,75 13,30 27. desember 2006 0,25 13,09 13,20 27. desember 2006 0,25 13,85 Yfirlit vaxta Seðlabankans 18. október 2007 Markmið og framkvæmd peningastefnunnar Markmið stefnunnar í peningamálum er stöðugt verðlag. Hinn 27. mars 2001 var tekið upp formlegt verðbólgumarkmið sem hér segir:1 • Seðlabankinn stefnir að því að árleg verðbólga, reiknuð sem hækk- un vísitölu neysluverðs á 12 mánuðum, verði að jafnaði sem næst 2½%. • Víki verðbólga meira en 1½% frá settu marki ber bankanum að gera ríkisstjórninni grein fyrir ástæðu fráviksins, hvernig bankinn hyggst bregðast við og hvenær hann telur að verðbólgumarkmið- inu verði náð að nýju. Greinargerðina skal birta opinberlega. • Seðlabankinn gerir verðbólguspár þar sem spáð er a.m.k. tvö ár fram í tímann. Spárnar eru birtar í riti bankans Peningamálum. Þar kemur einnig fram mat bankans á helstu óvissuþáttum tengdum spánni. Jafnframt gerir bankinn grein fyrir mati sínu á stöðu og horfum í efnahagsmálum. Peningastefnan miðar að því að halda verðlagi stöðugu og því verður henni ekki beitt til þess að ná öðrum efnahagslegum markmiðum, svo sem jöfnuði í viðskiptum við útlönd eða mikilli atvinnu, nema að því marki sem slíkt samrýmist verðbólgumarkmiði bankans. Þjóðhags- og verðbólguspár gegna mikilvægu hlutverki við fram- kvæmd peningastefnunnar. Frá og með Peningamálum 2007/1 byggj- ast spár bankans á stýrivaxtaferli sem sérfræðingar bankans telja að stuðli best að framgangi verðbólgumarkmiðsins. Stýrivaxtaferillinn er valinn með hliðsjón af því markmiði að verðbólga verði því sem næst 2½% innan ásættanlegs tíma og haldist stöðug í nánd við verðbólgu- markmiðið eftir það. Stýrivaxtaferillinn er birtur með óvissubili til að undirstrika þá óvissu sem umlykur spána og lögð er áhersla á að hann breytist eftir því sem nýjar upplýsingar verða tiltækar. Bankinn tilkynnir vaxtaákvarðanir á fyrirfram ákveðnum dögum. Í aðdraganda vaxtaákvörðunar efnir bankastjórn til peningastefnu- 1. Sameiginleg yfirlýsing ríkisstjórnar Íslands og Seðlabanka Íslands. Birt m.a. á heimasíðu bankans.

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.