Skírnir - 01.01.1957, Page 280
II
Skýrslur og reikningar
Skírnir
2. Þá las gjaldkeri félagsins, dr. oeconom. Þorsteinn Þorsteinsson, fv.
hagstofustjóri, upp rekstrarreikning og efnahagsreikning félagsins fyrir
árið 1956, enn fremur reikninga yfir sjóð Margr. Lehmann-Filhé’s og
Afmælissjóð félagsins. Höfðu þessir reikningar allir verið endurskoðaðir
af báðum endurskoðendum félagsins, án athugasemda, og voru samþykktir
af fundarmönnum.
3. Síðan voru endurskoðendur báðir endurkjörnir, þeir Brynjólfur Stef-
ánsson, framkvæmdastjóri, og Einar Bjarnason, aðalendurskoðandi ríkisins.
4. Forseti skýrði því næst nokkuð frá útgáfustarfsemi félagsins. Hann
harmaði, hve prentun ársrita hefði gengið seint, vegna mikils annríkis í
prentsmiðjunum, einkum prentun Annála-heftisins og Fornbréfasafns-heft-
isins. Hann minntist þess, að nú hefði, því miður, svo sorglega að borið, að
sá.ógæti maður, er séð hefði um útgófu annálanna, hefði nú fallið frá, dr.
Jón Jóhannesson, prófessor, og að enn væri óvíst, hver fást myndi til að
halda því verki áfram. Myndi því ekki neitt hefti af annálum geta komið
út á yfirstandandi ári. En af Safni til sögu Islands væri nú loks full-sett
eitt stórt hefti, sem yrði önnur árbókanna, auk Skírnis, þetta ár.
5. Þá var fundargjörð lesin upp og samþykkt. Síðan sleit forseti fundi.
Pétur Sigurfisson.
Alexander Jóhannesson.