Skírnir - 01.01.1967, Blaðsíða 58
56
Halldór Halldórsson
Skirnir
að samband íslenzkra manna eða ætta við útlönd hafi áhrif
á nafnaforðann, gætir einnig síðar í rajög ríkum mæli. Hér
skal aðeins minnzt á, að Eggerts-nafn er þannig til komið.
Eggert Hannesson lögmaður mun vera fyrsti íslendingur, sem
ber það nafn. Faðir hans var norskættaður, en Eggertsnafn
hafði borizt frá Þýzkalandi til Noregs. Frá síðari öldum eru
ótöluleg dæmi þess, að flutningur erlendra manna og kvenna
til landsins hafi skilið eftir sig spor í nafnaforðann, en ógern-
ingur er að rekja þá sögu hér.
Breytingar á íslenzkum nafnaforða við siðaskiptin eða á
tímabilinu frá siðaskiptum til 1703 virðast ekki vera miklar.
A þessum tíma er upp tekið nafnið Elísabet og sömuleiðis
latnesk nöfn sértekinnar merkingar eins og Fides og Karitas.1
En athugun á nafnaforðanum 1703 sýnir, að erlend áhrif á
þessu skeiði hafa ekki verið eins mikil og við hefði mátt búast.
I manntalinu ber langsamlega mest á fornum íslenzkum nöfn-
um og nöfnum, sem komust inn fyrir kristin áhrif á fyrstu
öldum kristninnar.
Við samanburð á manntalinu 1703 og manntalinu 1855
kemur í ljós, að mikil breyting hefir orðið. Tala erlendra
nafna hefir aukizt mjög mikið, og þá er farið að gæta meira
nafna, sem ég kalla bastarðanöfn, en með því á ég við nöfn,
sem sett eru saman úr tveimur liðum, öðrum erlendum, en
hinum íslenzkum. Þessum nöfnum má skipa í tvo hópa. Ann-
ars vegar eru nöfn, sem gerð eru úr tveimur stofnum, öðr-
um íslenzkum, hinum erlendum, hins vegar eru nöfn, sem
mynduð eru með erlendu viðskeyti af íslenzkum stofni.
Fyrri gerðin á sér gamlar rætur. Nafnið KriströSr kemur
fyrir í norsku konungsættinni á 11. öld, og á íslandi kemur
það fyrir sem nafn á sonarsyni Jóns Loftssonar. Nafnið Jón-
geir er kunnugt á Islandi frá byrjun 14. aldar. Algeng nöfn
af þessu tæi eru GuSjóri og Sigurjón. Nafnið GuSjón kann þó
að eiga sér franskar rætur, eins og prófessor Einar Öl. Sveins-
son hefir bent á í Skírni 1965.
Erlendis tíðkuðust slík nöfn í kaþólskum sið, þótt ekki hafi ég fund-
ið dœmi þess á Islandi. Minna má á nafnið Spes í Spesarþa-tti. en hún
var ekki kona íslenzk.