Skírnir - 01.01.1967, Blaðsíða 99
Skírnir
Um Æverlinga
97
að með vissu rakið ættir þeirra til landnámsmanna. 1 ættum
Skálholtsbiskupa, prentuðum aftan við Landnámuútgáfu Ein-
ars Arnórssonar eftir A.M. 162, fol., er ætt Þorláks rakin
svo: Þorlákur —■ Hallfríður — Yngvildur (kona Snorra Karls-
efnissonar) — tJlfhéðinn — Þorbjörn úr Goðdölum — Snorri
— Þórður. Hér hefur tveimur síðustu liðunum verið ruglað
saman við framætt Karlsefnis, sennilega fyrir rangt sett lestr-
armerki í afritun. Þorbjörn úr Goðdölum er þá að öllum lík-
indum só, sem getið er á Alþingi 999, Þorkelsson, Eiríkssonar.
Iíann er systkinabarn við tJlfhéðin á Móbergi og lætur son
sinn heita eftir honum.
Ráðið til að rekja framættir er að tímasetja einstaklingana,
eftir því sem föng eru á, ef aðrar öruggar heimildir brestur.
Nú var það ekki siður að láta heita í höfuð lifandi manna,
og er þvi Úlfhéðinn Þorbjarnarson ekki fæddur fyrr en eftir
víg nafna síns á Móbergi, eftir 980 eða svo til. Hins vegur
getur hann ekki verið fæddur eftir 1000, því að þó Snorri
tengdasonur hans hafi staðið eitthvað fyrir búi móður sinnar
í Reynisnesi, áður en liann kvæntist, og Yngvildur kona hans
verið 5—10 árum yngri, hefur faðir hennar verið orðinn
fulltíða maður fyrir 1020.
Næst hittum við fyrir tJlfhéðin á Víðimýri, og er ætt konu
hans rakin í Landnámu þannig: Nesja-Knjúkur landnáms-
maður — Eyjólfur — Þorgrímur Kötluson —- Steingrímur —
Yngvildur, kona tJlfhéðins á Víðimýri. Hún ætti því að vera
fædd einhvern tíma á milli 1000 og 1050. Hér við er það
að athuga, að Eyjólfur langafi hennar var stjúpi Kolbrúnar
Glúmsdóttur, sem Þormóður skáld orti til kvæði sitt, en það
hefur verið í byrjun ll.aldar. Eyjólfur getur því ekki verið
sonur Nesja-Knjúks, heldur dóttursonarsonur hans, sonur
Mýra-Knjúks, og er þá kona Úlfhéðins á Víðimýri ekki fædd
fyrr en seint á 11. öld og maður hennar tJlfhéðinn Kolla-
son, langafi Guðmundar biskups góða, eins og Steinn Dofri
hefur bent á. Til frekari skýringar skal birt ættartala Guð-
mundar biskups eftir Prestssögu hans, en þó með nokkrum
viðaukum:
7