Skírnir - 01.01.1967, Blaðsíða 103
Skímir
Um Æverlinga
101
ingasaga telur konu Hrafns ættaða úr Goðdölum og má það
til sanns vegar færa, því að Iliinröður faðir Halldóru var
dóttursonur Eiríks í Goðdölum.
Sonur tJlfhéðins Kollasonar gæti verið sá Brandur prestur
Úlfhéðinsson (d. 1158), sem nefndur er við Vallalaug í ferð
Hvamms-Sturlu um Skagafjörð 1150. Nafnið hefur lifað leng-
ur þar um slóðir, því að getið er Brands Úlfhéðinssonar á
Víðivöllum i sambandi við örlygsstaðabardaga 1228. Einnig
er nefndur tJlfhéðinn Sámsson í ættartölubroti framan við
Melabók (Landnáma, útg. E.A.) og er móðir hans nefnd Yng-
vildur, sem bendir til Goðdæla. Systursonur hans, Sámur
prestur Símonarson á Geirröðareyri, var kvæntur Guðrúnu
systur Hrafns Sveinbjamarsonar, og var Eyrar-Snorri dótt-
ursonur þeirra (Sturl. 22 og 24. ættarskrá). Þessi tJlfhéðinn,
sem annars er að engu getið, hefur því verið uppi á síðari
hluta 12. aldar. Getið er og tJlfhéðins Gíslssonar á Reykjum
í Miðfirði, Bergssonar, á tveimur stöðum í Sturlungu (I., 68
og II., 262), í siðara skiptið við herferð Kolbeins unga í Mið-
fjörð 1244.
Már Húnröðarson.
Björn M. Ölsen og fleiri hafa talið það líklegt, að til hafi
verið sérstök rituð saga af Húnröði, eða sérstakur þáttur um
Hólmgöngu-Starra (J.Jóh.), og styðja það við ýmis smáatvik,
sem greinilega er sagt frá í Landnámu. Því miður er þar
ekkert um hann sagt, eftir að vigsmálinu lýkur, og það eitt
vitað um Má son hans, að hans er getið í Haralds sögu harð-
ráða sem ágæts foringja Væringjasveitar í Miklagarði, er Har-
aldur kom þangað. Það telur dr. Sigfús Blöndal i Væringja-
sögu sinni hafa verið 1034 eða 1035. Húnröður ætti að vera
fæddur um eða litlu eftir árið 1000, varla hafa kvænzt fyrr
en að langri útiveru aflokinni, sjálfsagt kominn yfir fertugt,
og Hafliði sonur hans vera fæddur um miðja öldina. En
hvernig komst vestasta goðorð sýslunnar, hið forna goðorð
Miðfjarðar-Skeggja, i eigu hans eða sonar hans, svo að það
varð síðan nefnt Æverlingagoðorð? Björn M. Ólsen telur, að
ættin hafi áður átt aðeins þriðjung í austasta goðorði sýsl-