Skírnir - 01.01.1967, Blaðsíða 63
Skírnir
Islenzk fræði í Ástralíu
61
nám í germönskum málum, frönsku og heimspeki við Há-
skólann í Gent og hlaut þar doktorsnafnbót 1902 fyrir ritgerð
um Grillparzer. Eftir það varð hann aðstoðarritstjóri við hina
miklu hollenzku orðabók, Woordenboek der Nederlandsche
Taal. Árið 1905 varð dr. Augustin Lodewyckx prófessor í
frönsku og þýzku við Victoria College í Stellenbosch í Suður-
Afríku. 1910 fór hann til Belgísku Kongó að hoði Alberts kon-
ungs til þess að hafa umsjón með landnámi innflytjenda í
Katanga. 1 ágúst 1914 varð hann innlyksa í Melbourne á leið
til Bandaríkjanna, þegar styrjöldin skall á í Evrópu. Þar sem
hann átti ekki afturkvæmt til Belgíu, settist hann að í Mel-
bourne og var fyrst tungumálakennari í gagnfræðaskóla, en
1916 tók hann að sér þýzkudeildina við Háskólann í Mel-
bourne. Starf hans bar góðan ávöxt; deildinni óx svo fiskur
um hrygg, að hann var gerður aðstoðarprófessor (associate
professor) 1922. Þeirri stöðu hélt hann, unz hann lét af störf-
um fyrir aldurs sakir 1947.
Á þessum rúmu þremur áratugum, sem prófessor Lode-
wyckx vann í þágu germanskra mála við Háskólann í Mel-
hourne, færði deildin mjög út kvíarnar. Hann kom á kennslu
í hollenzku 1942. Þá voru engar bækur fáanlegar frá Hol-
landi vegna stríðsins, svo að hann gaf sjálfur út A Handbook
of Dutch 1944 og tveimur árum síðar Overzicht over Neder-
landsche Letterkunde.
Þegar árið 1938 hafði prófessor Lodewyckx bætt forn-
íslenzku á námsskrána sem einni þeirra valgreina, sem kraf-
izt var til meistaraprófs (Master of Arts) í germönskum mál-
um. Kennsla og námskröfur voru miðaðar við hók Gordons,
An Introduction to Old Norse, og Njáls sögu. Þessi nýbreytni
var sprottin af þeim mikla áhuga, sem prófessor Lodewyckx
hafði á islenzkri menningu að fornu og nýju, og var beint
framhald af síðari Islandsför hans 1937.
Fyrstu árin sóttu aðeins fáeinir stúdentar námskeiðið, en
1944 glæddist áhuginn mjög. Það var eins og alda risi. Nokkr-
ir stúdentar, sem sótt höfðu nýbyrjuð námskeið í hollenzku,
örvuðust svo af áhuga prófessors Lodewyckx á íslenzkum bók-
menntum og af kennarahæfileikum hans, að þeir báðu hann