Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1988, Page 13

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1988, Page 13
Bjami Sigurðsson JÓLASÁLMAR LÚTERS Hinn 1. júlí 1523 vom 2 ungir Ágústín-munkar frá klaustrinu í Antwerpen brenndir á báli á markaðstorginu í Brússel í Belgíu. Munkamir, Heinrich Voes og Jóhann Eschen, vom sakaðir um villutrú, þar sem þeir höfðu lýst stuðningi sínum við siðbót Marteins Lúters. Þeir vom fyrstu píslarvottar siðbótar. Skömmu eftir þennan atburð ritaði Lúter huggunar bréf, Sendbrief an die Christen im Niederiand, þar sem hann lýsti hryllingi sínum á þessum verknaði. Jafhframt lét hann í ljós hrifningu vegna staðfestu munkanna ungu.1 í tilefhi þess atburðar yrkir Lúter líka fyrsta ljóð sitt, svo að vitað sé, í ágúst 1523, þar sem hann tjáir gleði sína yfir mætti fagnaðarerindisins. Hér er komið „fyrsta reginhögg næturgalans frá Wittenberg“.2 Lúter lét þegar prenta ljóðið í flugriti og varð það víðkunnugt með skjótri svipan. Hann kallar það Ein neu lied von den zweyen Marterem Christi, zu Brussel von den Sophisten zu Löwen verbrannt. Það hefst á þessu vísuorði: Ein neues Lied wir heben an. Ljóðinu fylgdi lag eftir Lúter sjálfan.3 Hér er vissulega ekki um að ræða trúarljóð ætlað til kirkjusöngs. Samt má hér merkja dæmi þess, sem átti eftir að einkenna trúar- og sálmaskáldið Martein Lúter. Ljóð hans höfðu um margt á sér einkenni alþýðuskáldskapar, enda sungust þau inn í hjarta alþýðu manna með undraverðum hraða og áttu ótvíræðan þátt í að greiða boðskap hans götu. Sálmar hans em einfaldir að máli og gerð og trúfræði þeirra auðskilin. En einfaldleiki þeirra og gleði, sem vissulega var samboðin fagnaðarerindinu, átti greiða leið til móts við trúarþörf fólksins. Þeir em ortir af trúarlegri þörf guðfræðingsins Marteins Lúters. Ekki verður fullyrt um, hve nær Lúter yrkir sálma sína né hve nær þeir kunni að hafa verið prentaðir fyrst í flugritum, þar sem víst er, að þeir komu margir fyrir almenningssjónir, áður en þeir komu út í sálmasöfnum. Sumir ætla, að einhverjir sálmar hans hafí verið ortir allnokkmm árum áður en þeir birtust. Hinir em þó trúverðugri, sem telja, að þeir hafi að kalla verið nýir af nálinni, þegar þeir komu út í safnritum. 1 Ausgewahlte Werke, III, bls. 61 n. 2 Friedrich Spitta, Ein feste Burg, bls. 274, athugagrein 1. 3 WA 35, bls. 487 n. Sjá enn fremur Hans Joachim Moser, Die Melodien der Lutherlieder, bls. 60. 11
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.