Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1988, Síða 122

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1988, Síða 122
Þórir Kr. Þórðarson sjálfan sig, enginn úrskurðað annan Guði vanþóknanlegan fremur en sjálfan sig.25 Svonefhd „skerping lögmálsins“ er hér á ferð. Jafnvel hinn siðavandasti trúarleiðtogi (á borð við faríseann, sem í dæmisögunni er sökum lærdóms í helgum fræðiun og guðrækni e.k. samnefhari biskupsins og guðfræðiprófessorsins) stenst ekki kröfur þessarar alfullkomnunar sem Fjallræðan lýsir og hefur því sjálfur jafhríka þörf fyrir miskunn Guðs og eiturlyfjasalinn (sem væri nútímahliðstæða tollheimtumannsins í sömu dæmisögu). Sé mælistiku þess algjöra lögmáls sem Fjallræðan gengur út frá brugðið á mannlegt líf eins og því er lifað af eðlisnauðsyn manna (sem era ekki „gjörsamlega blindir, heymarlausir og síðast en ekki síst nokkum veginn sneyddir mannlegri náttúra“) fer aldrei hjá því að menn missi ekki einhvem tíma marks og höndli samkvæmt eiginhagsmunum og gleymi að sýna öðrum tillitssemi (einnig í sambandi kynjanna, en það var til umræðu) eða „syndgi“ á máli Biblíunnar.26 Fjallræðan sýnir því að enginn fær lifað hinu alfullkomna lífi, en bendir jafnframt á það mark er menn skuli keppa eftir — hina algjöra fullkomnim (Matt. 5.48). Gamli Nói Höfundur áðumefndrar greinar vill hnykkja enn betur á um haldleysi Biblíunnar sem leiðarvísis um dyggðugt lífemi og segir: í flóðinu mikla var það aðeins gömul og góðhjörtuð fyllibytta og hans nánusm, sem fengu náð fyrir augum Guðs. Þessa skemmtilegu lýsingu á Nóa ætla ég alltaf að nota hér eftir er ég ræði um þá merkilegu sögu, því að lýsingin minnir á, að í Biblíunni er mikil áhersla á það lögð að Guð sýnir hinum veiku umburðarlyndi og gefur sig að hinum breysku á sérstakan hátt: Engin fjöður er dregin yfir kvennamál Davíðs, hins messíanska konungs, undanfara sjálfs Messíasar, er hann leiddi Úría í dauðann til þess að komast yfir hina fögra konu hans, Batsebu. Og Pétur, sem afneitaði Kristi, er sérstakt útvalið verkfæri Guðs. Jafnvel Páll telur sjálfan sig langt frá því að vera fyrirmynd annarra (1. Tímóteusarbréf 1.15). 25 Krossinn er eini staðurinn í himingeimnum þaðan sem við getum virt fyrir okkur ávirðingar náungans. Frá öllum öðrum sjónarhomum birtast þær í röngu ljósi. (Páll Þórðarson, Ást Guðs og ábyrgð manns. Prédikanir um trú og samfélag, Rvík 1980, bls. 213.) 26 Jón Kristófer orðar þetta svo: „Eins og hraðskreiðir léttbátar/ trítla á öldum sundsins/ milli eyjannay stiklum við á stundum bilsins/ milli upphafs og endis/ og fjarlægjumst öll hvert annað./ Eins og varkárir farmenn/ sveigja um grynningar/ forðumst við endimörk skeiðsinsy þar sem hvfldin bíður okkar/ og fjarlægjumst öli/ hvert annað,/ sem erum á sömu leið/ að sama, síþráða marki/ frá sama vanda og neyð./ Því oftast nær er einhver skekkja/ í allra stefnu, mun sjást./ Hún miðast ekki við mflu/ en manngildi — sannleik og ást.“ („Kannski ljóð?“ Ljóðormur 6. Rvflc 1987, s. 12.) 120
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.