Þjóðmál - 01.09.2014, Qupperneq 13

Þjóðmál - 01.09.2014, Qupperneq 13
12 Þjóðmál haust 2014 Einu sinni frétti ég að fjölmiðill hefði sett mann í að rannsaka sératkvæði mín í því skyni að leiða rök að því að þar mætti greina einhverja sérstaka pólitíska (?) línu sem greindi mig frá öðrum . Maður þessi fann ekkert slíkt og varð að hverfa frá verki sínu . Þess má geta að ég sagði mig úr Sjálfstæðisflokknum þegar ég hlaut skipun í dómaraembættið . Þetta var auðvitað fyrst og fremst táknræn aðgerð af minni hálfu . Ég varð aldrei var við í starfinu við réttinn að flokkapólitík kæmi við sögu, þó að sumt fólk telji slíkt skipta máli fyrir dómstörfin . Svo er ekki . Ekki dró það úr starfsálagi hjá mér að ég skyldi standa þannig að verki sem hér hefur verið lýst . Samt lagði ég áherslu á að skila mínum hluta vinnunnar, mælt eftir málafjölda . Til dæmis bárust í réttarhléi á sumrin kærumál, sem dómarar komu sjálfviljugir á staðinn til að dæma, oftast þegar líða tók á ágústmánuð . Þar reyndi ég að taka minn skerf og líklega vel það öll árin sem ég starfaði við réttinn . Ég sló því upp á léni Hæstaréttar hversu mörg málin væru sem ég hefði setið í sem dómari einstök ár . Þar fór hæst árið 2010 . Tölvan sagði mér að það ár hefði ég dæmt í 336 málum . Ég veit ekki hvort unnt er að finna annað dæmi sem slær þessu við . Menn verða samt að hafa í huga við athugun á þessu að málin eru afar misjöfn að vöxtum . Stærstu málin voru á þessum tíma oftast flutt og dæmd í A-deild réttarins en þar sátu þeir dómarar sem lengstan höfðu starfsaldur . Ég var ekki í þeim hópi . Hvað sem þessu líður er alveg ljóst að slíkur málafjöldi hjá einstökum dómara er ótækur . Ég fann ekki vel fyrr en eftir að ég hætti störfum mínum við réttinn hve álagið hafði verið mikið . Það tók mig þá allt að því hálft ár að ná jafnvægi í sál og líkama . Í 11 . kafla að framan gerði ég grein fyrir sjónarmiðum mínum frá árinu 2000 um að reynsla af lögmannsstarfi sé haldbesti undirbúningurinn fyrir dómarastarfið . Átta ára dómarastarf við Hæstarétt hefur styrkt mig í þessu viðhorfi . Lögmaðurinn lærir í starfi sínu hversu miklu máli skiptir fyrir þá sem eiga í ágreiningi fyrir dómi að með ferðin á máli þeirra sé þar markviss og réttlát . Þetta er ekkert gamanmál fyrir aðila dómsmálanna . Sá sem sest í Hæstarétt hefði gott af þeirri lífsreynslu sem margir lögmenn hafa og felst til dæmis í því að flibbaklæddur borgari situr grátandi fyrir framan skrifborðið á lokaðri skrifstofunni eða ef til vill að hafa þurft að gæta hagsmuna barns og foreldra þess þegar barnið hefur skaðast í fæðingu og bótakrafa þess skiptir bæði máli fyrir möguleikana í lífshlaupinu framundan en felur einnig í sér táknræna viðurkenningu fyrir málstað þess . Þá skal líka nefnd sú reynsla lögmanns að hafa haft til dæmis lækni fyrir framan skrifborð sitt, sem krafinn er bóta fyrir að hafa ekki sinnt læknishjálp forsvaranlega og telur starfsheiður sinn og jafnvel atvinnu í húfi . E inu sinni frétti ég að fjöl-miðill hefði sett mann í að rannsaka sératkvæði mín í því skyni að leiða rök að því að þar mætti greina einhverja sér staka pólitíska (?) línu sem greindi mig frá öðrum . Maður þessi fann ekkert slíkt og varð að hverfa frá verki sínu . . . Ég varð aldrei var við í starfinu við réttinn að flokkapólitík kæmi við sögu, þó að sumt fólk telji slíkt skipta máli fyrir dóm- störfin . Svo er ekki .
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.