Þjóðmál - 01.09.2014, Page 14

Þjóðmál - 01.09.2014, Page 14
 Þjóðmál haust 2014 13 Ég get ekki gert að því að mér fannst suma hina dómarana stundum skorta þennan skilning á mikilvægi málanna fyrir málsaðilana . Stundum var jafnvel eins og þeir teldu þetta vera frekar eins og ritgerðar- æfingu, þar sem verkefnið væri að setja punkta og greinaskil á rétta staði . Mér þótti síðan annað mjög óþægilegt, þ .e . ef mér fannst það hafa áhrif á afgreiðslu málanna hver málsaðilinn, eða jafnvel málflytjandi hans, var . Ég get ekki fullyrt að slík atriði hafi skipt máli en velti þó fyrir mér hvort hvaða lögmaður sem er hefði fengið synjun á rétti sínum til að kæra sérstaklega réttarfarssekt sem honum var gert að greiða í dómsorðum héraðsdómsins, eins og Jón Egilsson hrl . fékk í Hæstarétti 12 . mars 2012 í máli nr . 103/2012 . Ég skilaði sératkvæði og taldi að honum hefði verið kæran heimil . Meirihlutinn vísaði í sínum dómi til sambærilegrar synjunar sem Róbert Árni Hreiðarsson héraðsdómslögmaður fékk 1997 (H . 1997 .2192) en um það fordæmi og þýðingu þess ræði ég í sératkvæði mínu .* Allir sem til þekkja ættu að vita að þessir tveir lögmenn nutu ekki sérstakrar góðvildar É g get ekki gert að því að mér fannst suma hina dóm arana stundum skorta . . . skilning á mikil- vægi málanna fyrir málsaðilana . Stundum var jafnvel eins og þeir teldu þetta vera frekar eins og ritgerðaræfingu, þar sem verkefnið væri að setja punkta og greinarskil á rétta staði . Mér þótti síðan annað mjög óþægilegt, þ .e . ef mér fannst það hafa áhrif á afgreiðslu málanna hver málsaðilinn, eða jafnvel málflytjandi hans, var . * Í sératkvæðinu eru færð rök fyrir því að form á ákvörðun héraðsdómara um réttarfarssekt sé hið sama og á frávísun máls að hluta . Báðar þessar ákvarðanir sé unnt að taka með sérstökum úrskurði, sem þá sæti kæru til Hæstaréttar . Einnig sé heimilt að taka þær í dómi, þar sem dæmt er um önnur atriði máls að efni til . Löng dómaframkvæmd sé fyrir því að frávísun að hluta, sem kveðið er á um í dómi, sæti allt að einu kæru en ekki áfrýjun . Hafi reyndar verið talið óheimilt að endurskoða frávísunarþáttinn við meðferð á meginmálinu sem áfrýjað hafi verið . Hið sama hljóti að gilda um réttarfarssekt . Í sératkvæðinu segir síðan svo: „Augljós rök eru fyrir því að nýta megi kæruheim- ild til að krefjast endurskoðunar á ákvæði dóms um frávísun að hluta og um réttarfarssekt eins og um ræðir í þessu máli . Þetta eru úrlausnarefni sem héraðs- dómara er af hagkvæmnisástæðum heimilað að kveða á um í dómsúrlausn sinni þó að meginreglan megi teljast sú að kveða skuli upp sérstakan úrskurð . Þegar 143 . gr . laga nr . 91/1991 kveður svo á að úrskurðir um hin upptöldu úrlausnarefni sæti kæru er ekki verið að banna kæru í tilvikum þegar annað form en úrskurður er samkvæmt sérstakri heimild í lögunum sjálfum haft á ákvörðun um þessi efni . Ef svo yrði talið myndi héraðsdómari geta með vali á formi ákvörðunar ráðið rétti til kæru, og gæti þetta jafnvel í sumum tilvikum valdið því að réttur þess sem í hlut á til að krefjast endurskoðunar með mál skoti væri af honum hafður . Engin efni eru til að túlka þessar lagareglur á þennan hátt . Það er rétt sem segir í atkvæði meirihlutans, að í dómi Hæstaréttar á bls . 2192 í dómasafni réttarins árið 1997 var í þriggja manna dómi komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri heimilt að kæra ákvæði í dómi um réttarfarssekt . Þessi dómur er að mínu mati rangur og raunar svo sem rakið var í beinni efnislegri andstöðu við réttarframkvæmd um algerlega hliðstætt efni þar sem er frávísun máls að hluta . Dómar sem þrír hæstaréttardómarar standa að geta ekki talist hafa mikið fordæmisgildi, síst af öllu eftir að rétturinn hefur verið skipaður fjórfalt fleiri dómurum svo sem nú er . Fordæmisgildi dóma getur þar fyrir utan ekki gengið svo langt, að hafi einu sinni verið kveðinn upp rangur dómur sé upp frá því skylt að kveða upp ranga dóma um hliðstæð úrlausnarefni .“ Lesendum sem vilja kynna sér þetta frekar er bent á dómasafn Hæstaréttar . ______________________________

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.