Þjóðmál - 01.09.2014, Page 18

Þjóðmál - 01.09.2014, Page 18
 Þjóðmál haust 2014 17 ég við tímann eftir að ég sótti um og fékk dómaraembætti í Hæstarétti og starfaði síðan þar sem dómari í átta ár . Þar er meira athugavert en ég hugði fyrirfram . Atburðarásin fyrir skipun mína í embætti og háttsemi dómaranna þá var blátt áfram skelfileg, ekki vegna hagsmuna minna, heldur þeirra meiri hagsmuna sem þjóðin hefur af því að þessi helgasta stofnun hennar sé skipuð mönnum sem séu algerlega einbeittir í því „að gera rétt“, ekki aðeins stundum, heldur alltaf . Líklegt er að sá sem bregst þeirri starfsskyldu einu sinni gegn betri vitund geri það aftur ef honum aðeins finnst tilefnið nægilegt . Nú eru þeir flestir hættir störfum sem þá stóðu að verki . Nýir dómarar hafa komið í staðinn og fleiri bæst við . Mér finnst þeir flestir hafa viljað „sverja sig inn í hópinn“, ef svo mætti að orði komast . Ég fæ ekki varist þeirri hugsun að flestir þeirra, sem hafa komið nýir inn síðustu árin, líti á þetta fyrst og fremst sem upphefð, eins konar endastöð fyrir starfsferilinn, sem nú hafi náð hámarki með hinu háa embætti . Minna fari fyrir metnaði til að vinna störfin sjálfstætt og af þeirri alúð og yfirlegu sem brýn þörf er á og er raunar algerlega nauðsynleg ef dómstóllinn á að geta staðið undir nafni . Stór áhrifavaldur í þessu öllu saman er líka að mínum dómi sú staðreynd að rétturinn hefur alltof mikið að gera . Örfáir menn ráða yfir orku og afköstum sem duga til að sinna starfinu þarna eins og vera ber, hinir leita lausnar í „fjölskyldustemningunni“ . Í henni felst verkaskipting sem gerir þeim kleift að lifa af . Í henni felst líka að þeir hafa tilhneigingu til að beygja sig undir áhrifavald núverandi forseta Hæstaréttar, Markúsar Sigurbjörnssonar, sem þar ræður því sem hann vill ráða og hefur meiri tæknilega kunnáttu og afköst en nokkur hinna . Þeim finnst líklega gott að geta átt hann að á erfiðum stundum . Allt þetta skapar að mínum dómi þann anda innan dómstólsins að dómararnir eru ekki að sinna því sjálfstæða lögfræðistarfi sem í reynd er forsenda fyrir fjölskipuðum dómstól á borð við Hæstirétt . Mér virðast þeir sjálfir eiga erfitt með að horfast í augu við þetta . Ef til vill stafar það af því að slíkt kallar á viðurkenningu á að þeir ráði ekki með fullnægjandi hætti við starfið sem þeim er ætlað að inna af hendi . A llt þetta skapar að mínum dómi þann anda innan dómstólsins að dómararnir eru ekki að sinna því sjálfstæða lögfræðistarfi sem í reynd er forsenda fyrir fjölskipuðum dómstól á borð við Hæstirétt . Mér virðast þeir sjálfir eiga erfitt með að horfast í augu við þetta . Ef til vill stafar það af því að slíkt kallar á viðurkenningu á að þeir ráði ekki með fullnægjandi hætti við starfið sem þeim er ætlað að inna af hendi .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.