Þjóðmál - 01.09.2014, Page 57

Þjóðmál - 01.09.2014, Page 57
56 Þjóðmál haust 2014 svo stórir árgangar, nú eru þeir orðnir gamlir fiskar, þeir eru samt ennþá þarna í stofninum og eru að bæta við sig þyngd og eru ástæða þess að menn tala um svo mikið af stórri ýsu, af því að ungu árgangarnir eru lélegir . Hér er viðurkennt að vöxtur ýsu sé í öfugu hlutfalli við árgangastærð . En Hafró telur að þetta gildi ekki um þorsk eða aðrar tegundir, enda sé þorskur alveg „ótrúleg skepna“ að áliti forstjórans . Árið 1964 skrifaði Jón Jónsson, þáverandi forstjóri Hafró, eftirfarandi í tímaritið Náttúrufræðinginn: Of lítil veiði getur verið jafn skaðleg og of mikil veiði . Það hefur t .d . komið í ljós, að þau ár sem mjög sterkir árgangar af þorski hafa verið í aflanum, hefur fiskurinn vaxið hægar en þegar lítið hefur verið af fiski í sjónum . Við skýrum þetta með því, að þegar mikið er um fisk sé ekki nóg fæða í sjónum fyrir allan þann fjölda . . . Hæfileg grisjun stofnsins er því mikil væg til þess að viðhalda hámarksvaxtarhraða einstaklinganna, þannig að bezt nýtist framleiðni sjávarins hverju sinni . Ekki þarf að hafa fleiri orð um þetta, vöxtur er í öfugu hlutfalli við stofnstærð, sé stofninn stór þá er minna fóður á hvern einstakling . Fiskeldismenn og svínabændur vita þetta, fleiri dýr verða að fá meira fóður . En einhvern veginn virðist þetta hafa farið fram hjá Jóhanni forstjóra Hafró . * Jóhann Sigurjónsson heldur áfram og segir frá því hvernig þeir hyggist ná há- marksafrakstri úr þorskstofninum: Mikilvægt er að við gerum okkur grein • fyrir því að ráðgjöf Hafró miðar að því að ná hámarksafrakstri út úr viðkom andi stofni og hafa líka til staðar lág marks- áhættu á því að við sköðum stofn inn til langs tíma litið . Við erum að tryggja sjálfbærar veiðar og hámarks afrakstur . Stór fiskur er mikilvægur til þess að • lágmarka áhættuna á að stofninn fari niður þ .e .a .s . stór fiskur gefur af sér líf- vænlegri afkvæmi, og þess vegna er al- nauð synlegt að hafa tiltekið hlutfall, t .d . 15% eða eitthvað svoleiðis, 15–20% af stofninum þarf að vera fiskur sem við skilgreinum 8, 10 ára eða eldri fiskur . Við vorum með þetta hlutfall alveg niður í 2–4% fyrir nokkrum árum síðan, áður en efnt var til þessara niðurskurðaraðgerða, og af því við sáum að það var einhvers Á rið 1964 skrifaði Jón Jóns-son, þáverandi forstjóri Hafró, eftir farandi í tímaritið Náttúru­ fræðing inn: „Of lítil veiði getur verið jafn skaðleg og of mikil veiði . Það hefur t .d . komið í ljós, að þau ár sem mjög sterkir árgangar af þorski hafa verið í aflanum, hefur fiskurinn vaxið hægar en þegar lítið hefur verið af fiski í sjónum . Við skýrum þetta með því, að þegar mikið er um fisk sé ekki nóg fæða í sjónum fyrir allan þann fjölda . . . Hæfileg grisjun stofns ins er því mikilvæg til þess að við halda hámarksvaxtarhraða ein- stakl inganna, þannig að bezt nýtist fram leiðni sjávarins hverju sinni .“

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.