Þjóðmál - 01.09.2014, Side 74

Þjóðmál - 01.09.2014, Side 74
 Þjóðmál haust 2014 73 um og sagnfræðilegum tilbúningi . Hitler fjallar um það í bók sinni, Mein Kampf, sem er raunar metsölubók í múslímskum löndum, að stórar lygar séu áhrifaríkari en litlar lygar . Flestu fólki sé í blóð borið að beita smálygum fyrir sig en stóru lygarnar séu áhrifamestar . Þær nái til dýpri róta tilfinningalífsins og þeim fylgi viss sann- færingarkraftur . Venjulegu fólk er tamt að beita fyrir sig smálygum og í einfeldni sinni verði það frekar fórnarlömb stórra lyga þar sem það myndi fyrirverða sig fyrir að beita algjörum og stórkostlegri lygum . Smálygar falla innan þægindarammans en þessu fólki myndi aldrei detta til hugar að beita stórkostlegum lygum og trúa því ekki upp á aðra . Fullyrðingar um þúsund ára tengsl svokallaðra Palestínumanna við landið er lygin, sem nær að djúpum rótum tilfinningalífsins og nær best til þeirra sem ávallt falla fyrir slíkri lygi, m .a . þeirra sem trúðu á Stalín, Maó, Castro, Pol Pot, Hitler . Staðreyndin er sú að langflestir arabar, sem bjuggu á þessu landsvæði voru fyrir skömmu komnir þangað og afar margir þeirra til að nýta atvinnutækifæri, sem gyðingar skópu eftir að þeir fóru að setjast að í stórum stíl rúmlega hundrað árum fyrr, þegar gyðingar frá Evrópu fóru að setjast að í „heimalandi“ sínu vegna áhrifa frá zíonisma undir lok 19 . aldar, kaupa lönd og hefja uppbyggingu . Arabar á svæðinu voru þá um 400 þúsund talsins en Palestínuarabar eru nú sagðir vera um 11 milljónir, aðallega á þessu svæði og í Mið-Austurlöndum en einnig vítt um heiminn . Fyrr má nú aldeilis vera viðkoman ef mönnum er ætlað að trúa fullyrðingum um uppruna þeirra! Heimurinn virðist kaupa þá hugmynd að allir svokallaðir Palestínumenn séu land flótta arabar vegna yfirgangs Ísraela . Í áróðurs skyni hefur öllum landflótta aröb- u m verið dembt í þennan hóp . Þar á meðal eru arabar, sem hröktust frá fyrri heim- kynnum sínum úti um allt veldi Ottómana, t .d . eftir hernám Austurrísk-ung verska keis ara dæmisins á Bosníu-Herzegóvínu, Krím stríðið og eftir heims styrjöldina fyrri . Land ið Palestína hefur aldrei verið til sem sér stakt ríki nema sem land gyðinga á 2 . öld í uppnefningu Rómverja . Gyðingar, sem fluttust til svæðisins fyrir einni öld, köll uðu sig Palestínumenn . Jerusalem Post hét upphaflega Palestine Post og hóf göngu sína sem blað gyðinga 1932 . Nafninu var ekki breytt fyrir en 1950 . Enginn arabískur leiðtogi „Palestínumanna“ var til fyrir daga Yassers Arafats (1929–2004) en hann var Egypti með einhver ættartengsl við verndar- svæði Palestínu . Arabar á þessu svæð inu kölluðu það yfirleitt Suður-Sýrland . Um 600 þúsund arabar urðu ríkisfangs- lausir flóttamenn 1948 og áttu ekki leið til baka inn í Ísrael . Vegna þessara átaka sauð upp úr um öll Mið-Austurlönd gagn- vart gyðingum eins og svo oft áður með progoms, trúarlegum skrílsmorðum . Gyð- Land ið Palestína hefur aldrei verið til sem sér stakt ríki nema sem land gyðinga á 2 . öld í uppnefningu Rómverja . Gyðingar, sem fluttust til svæðisins fyrir einni öld, köll uðu sig Palestínumenn . . . Enginn arabískur leiðtogi „Palestínumanna“ var til fyrir daga Yassers Arafats (1929–2004) en hann var Egypti með einhver ættartengsl við verndar svæði Palestínu . Arabar á þessu svæð inu kölluðu það yfirleitt Suður-Sýrland .

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.