Þjóðmál - 01.09.2014, Síða 75

Þjóðmál - 01.09.2014, Síða 75
74 Þjóðmál haust 2014 ingar höfðu búið þar víða um árþúsundir og hröktust um 800 þúsund gyðingar alls- lausir frá heimkynnum sínum . Risastórt flóttamannavandamál varð til bæði meðal araba og gyðinga . Flóttamannavandamál gyð inga, sem var stærra í sniðum en flótta- mannavandamál araba, var leyst aðallega af Ísrael sem opnaði landamæri sín fyrir gyð ingum í neyð og aðlöguðust þeir mjög fljó tlega . Arabísku flóttamönnunum var hins vegar ekki gefinn kostur á því að gerast borgarar í arabaríkjunum, jafnvel þó að ljóst væri að langflestir þeirra væru ættaðir þaðan, heldur hafa búið í þrjár kynslóðir í flótta mannabúðum, t .d . í Jórdaníu, Sýr- landi og Líbanon, sem er auðvitað ótrúleg ómennska, sem hvílir fyrst og fremst á aröbum sjálfum . Þessir flótta-arabar eru álíka eldfimir og byssupúður . Mér virðist enginn skilja til fulls svokall - aða Palestínuflóttamenn sem hefur fjölgað um 10–15 falt frá 1948 ef trúa á öllum töl- um . Ef okkur Íslendingum hefði átt að fjölga jafn hratt værum við núna um tvær miljónir talsins . Hugtakið Palestínumaður var upp- finning Yassers Arafats og samherja hans í arabaheiminum eftir 6 daga stríðið 1967 til þess að búa til tæki úr ríkisfangslausum arabískum flóttamönnum til þess að hrekja gyðinga frá landinu . Íslamistar, þ .e . múslímar sem ganga upp í íslam, telja að allt land, sem einu sinni hefur verið undir stjórn múslíma, sé þeirra land, alveg óháð því hvernig það komst undir yfirráð þeirra . Raunar telja þeir alla jörðina tilheyra Allah og skylda þeirra sé að koma henni allri undir ríki hans . Alveg eins og Múhammeð hreinsaði Arabíuskagann af gyðingum, kristnum mönnum og almennt öllum kufar (allir sem ekki eru múslímar en einnig þeir sem ekki tilheyra réttum hópi múslíma) þá sé það nú í bili þeirra veigamesta verkefni að hreinsa öll Mið- Austurlönd af kufar (et . kafir) . Ísrael er aðeins smáskiki lands, 20 þúsund km2 eða um 0,1% af Mið-Austurlöndum, en íbúar Ísraels um 2% af mannfjöldanum . Hver íbúi Ísraels hefur því um einn tutt- ugasta af því landi sem hver arabi hefur . Átökin snúast því ekki um það að gyðingar hafi ginið yfir landi og þrengt að aröbum . Nauðsynlegt er að líta á málin í víðara samhengi og þá sérstaklega þess að öll Mið- Austurlönd voru endurskipulögð af Bretum og Frökkum eftir fyrri heimsstyrjöldina og landamæri dregin oft af litlum forsendum . Ef tekið er tillit til fjölda gyðinga á svæðinu væri eðlilegt að þeir fengju tuttugu sinnum stærra landsvæði til þess að búa við svip- uð landfræðileg skilyrði eins og arabar á svæðinu . Ísrael var langt frá því að vera kjör- lendi þegar gyðingar tóku til við að byggja landið upp . Landið var nánast eyði mörk, mannvirki niðurnídd og engin verð mæti fólgin í jörðu, eins og t .d . olía . Nú er velþekkt að súnní- og shíamúslímar hafa borist á banaspjót í nær 14 aldir . Þrátt fyrir það styður Íran, sem er stjórnað af klerk aveldi shíamúslíma, Hamas, sem til- heyrir súnní . Iran er einnig helsti stuðn ings- aðili Hezbollah í Líbanon (shía-múslímar) . Í srael er aðeins smáskiki lands, 20 þúsund km2 eða um 0,1% af Mið-Austurlöndum, en íbúar Ísraels um 2% af mannfjöldanum . Hver íbúi Ísraels hefur því um einn tut tugasta af því landi sem hver arabi hefur . Átökin snúast því ekki um það að gyðingar hafi ginið yfir landi og þrengt að aröbum . Nauðsynlegt er að líta á málin í víðara samhengi . . .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.