Þjóðmál - 01.09.2014, Síða 90

Þjóðmál - 01.09.2014, Síða 90
 Þjóðmál haust 2014 89 Hér skulu þessar yfirlýsingar ekki allar raktar en Morgunblaðið birti til dæmis fyrir ári, laugardaginn 10 . ágúst 2013, frétt sem reist er á viðtali við Halldór sem sagði Huang í úlfa kreppu af því að hann „biði eftir Ís landi“ eins og Halldór orðaði það þótt Huang hefði að minnsta kosti tvisvar verið svarað á nei kvæðan hátt . Blaðamanninum datt því mið ur ekki í hug að spyrja eftir hverju Huang biði að þessu sinni . Þá sagði Halldór að „hundruð Íslend- inga“ með „allskonar hugmyndir“ hefðu haft sam band við sig vegna Huangs . „Það er einnig sótt að honum frá öðrum þjóð- lönd um og óskað eftir hans nærveru í fjár- fest ingar [svo!] . Ég veit ekki hversu lengi hann er tilbúinn að bíða eftir Íslandi,“ sagði Halldór . „Ég verð því miður alltaf að svara áhuga sömum Íslendingum á sama hátt, því við erum enn að bíða eftir svari frá íslensk- um stjórn völdum . Við vitum ekki enn hvort fjár festingar Nubo eru velkomnar eða ekki .“ Sé þriggja ára viðskiptasaga Huangs með aðstoð Halldórs Jóhannssonar skoð uð, í ágúst 2011 hófust umræður um landa- kaup hans hér á landi, blasa við svo margar mótsagnir í fullyrðingum þeirra félaga að í raun er undar legt að íslenskum fjölmiðla- mönnum hafi þótt það tímans virði að afla upplýsinga hjá Halldóri og birta ummæli hans án tengsla við það sem hann hafði áður sagt . Í Morgunblaðinu sagði 10 . ágúst 2013: „Halldór er óánægður með framgöngu ís lenskra stjórnvalda í málefnum Nubo og telur þau gefa misvísandi skilaboð . Þar vísar hann til þess að Nubo hefur tvisvar fengið góðar væntingar frá íslenskum stjórn völd- um en í bæði skiptin voru málin dregin á langinn eða stoppuð af . Stjórnvöld verða að senda skýr skilaboð um hvað þau vilja . Að mínu viti eiga menn að þora að taka þetta skref og leggja samhliða mikið upp úr öflugu eftirliti með starfsemi fyrirtækja .“ Hinn 17 . júlí 2014 kynnti innan ríkis- ráðuneytið Skýrslu nefndar um endurskoðun á lögum og reglum er varða fjárfestingar og afnotarétt útlendinga á fasteignum hér á landi og hefur hún verið birt á vef ráðuneytisins . Markmið endurskoðunarinnar var meðal annars að tryggja að skýr lög og reglur giltu á þessu sviði, að treysta lagalegan grunn erlendra fjárfestinga og tryggja að ákvarðanir tengdar þeim væru reistar á skýrum almennum reglum en ekki á undanþáguákvæðum eða ívilnunum . Í skýrslu nefndarinnar kemur fram að aukin erlend fjárfesting auki hagsæld og fjöl breytileika í íslensku samfélagi og at- vinnu lífi . Því sé mikilvægt að erlendir aðilar, sem hyggist fjárfesta hér í fasteignum, viti að hverju þeir gangi með skýrum og að- gengi legum hætti . Í fréttatilkynningu ráðu - neytisins sagði: „Nefndin telur þó að tilteknar takmark- anir á möguleikum erlendra aðila til að öðlast réttindi yfir fasteignum á Íslandi séu bæði réttlætanlegar og nauðsynlegar, m .a . til að standa vörð um sjálfstæði eða full veldi landsins og möguleika komandi kynslóða til að njóta arðs af auðlindum landsins til lengri framtíðar .“ Í skýrslunni, sem er dagsett 30 . maí 2014, segir meðal annars: „Þótt meginsjónarmiðið sé frjálsræði og gegnsæi telur nefndin að tilteknar tak mark- anir á möguleikum erlendra aðila utan EES til að öðlast réttindi yfir jarðnæði hér á landi geti verið réttlætanlegar og nauð synlegar . Ljóst er að flest ef ekki öll lönd hafa slíkar takmarkanir gagnvart fjárfestingum frá þriðju ríkjum . Að baki slíkum sjónarmiðum standa t .d . viðhorf um mikilvægi þess að standa vörð um sjálfstæði eða fullveldi landsins og möguleika komandi kynslóða til að njóta arðs af auðlindum landsins til lengri framtíðar .“ Nefndin leggur til að takmarkaðar verði
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.