Orð og tunga - 01.06.2013, Page 186

Orð og tunga - 01.06.2013, Page 186
176 Orð og tunga erindum sem þar voru haldin, að minningarriti. Efni greinanna ber svip af áhugasviðum Sinclair innan málvísindanna. Hann var prófessor í ensku við háskólann í Birmingham og er líklega þekktastur fyrir að vera helsti hug- myndasmiður og aðalritstjóri CoBuiLD-orðabókarinnar sem kom út 1987 og markaði tímamót í orðabókagerð á fleiri en einn veg. Þetta var t.d. fyrsta orðabókin sem var samin algjörlega á grundvelli afmarkaðrar málheildar (Cobuild = The Collins Birmingham University International Language Database) en Sinclair stjórnaði gerð hennar og var þannig einn af frumkvöðlum gagna- málfræðinnar (e. corpus linguistics). Þriðja áhugasvið Sinclair sem setur svip sinn á ritið er orðræðugreining (e. discourse analysis) og málnotkun. Greinunum í ritinu er skipað í fjóra flokka. í fyrsta hluta eru, auk formála, tvær greinar sem fjalla um viðfangsefni og feril Sinclair, önnur eftir Michael Stubbs og hin eftir Stig Johansson (sem sjálfur féll frá áður en bókin kom út). I öðrum hluta eru sex greinar sem tengjast hugtakinu orðastæða (e. col- location) á ýmsan hátt, bæði frá hagnýtu og fræðilegu sjónarhorni. Þriðji hlutinn geymir fjórar greinar um tilbrigði og málbreytingar og í fjórða og síðasta hlutanum eru þrjár greinar sem tengjast gagnamálfræði og notkun málheilda, einkum við greiningu á föstum orðasamböndum. Andersen, Gisle (ritstj.). Exploring Newspaper Language. Using the web to create and investigate a large corpus ofmodern Norwegian. (Studies in Corpus Linguistics 49.) Amsterdam/Philadelphia: John Benjamins Publishing Company. 2012. (356 bls.) ISBN 978-90-272-0354-0. Þetta greinasafn fjallar um gerð málheildar með norskum dagblaðatextum á vefnum. I ítarlegum inngangskafla þeirra Gisle Andersen og Knut Hofland er fjallað um byggingu norsku dagblaðamálheildarinnar sem hófst 1998 (Norsk aviskorpus; sjá http://avis.uib.no/). Textarnir eru sóttir sjálfvirkt frá degi til dags í vefútgáfur norskra blaða. í innganginum er jafnframt gerð grein fyrir ritinu og tilgangi þess sem er bæði að lýsa aðferðum og tólum, sem þróuð hafa verið í tengslum við verkefnið, og að kynna niðurstöður rannsókna sem byggja á málheildinni. I fyrri hluta bókarinnar eru sex greinar um aðferðir og tól til þess að nýta vefinn til þess að setja saman málheild. Þar er fjallað um málfræðilega og setningafræðilega mörkun textanna og tól sem nýta má til slíkrar greiningar, um orðasambönd í textunum, um sjálfvirka flokkun eftir umræðuefnum og um aðferðir til þess að bera kennsl á ensk aðkomu- orð í textunum. I síðari hlutanum eru átta greinar þar sem sagt er frá mál- rannsóknum sem byggjast á málheildinni, þ. á m. um athugun á aðlögun aðkomuorða, um nýyrði í nútímanorsku, um samsetningar með liðnum aske- á ákveðnu tímabili í kjölfar gossins í Eyjafjallajökli og um myndhverfingar sem tengjast rými og áttum. Höfundar greinanna eru flestir vel þekktir norskir málvísindamenn, einkum á sviði gagnamálfræði og máltækni en einnig orðabókafræði.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194

x

Orð og tunga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.