Berklavörn - 01.06.1939, Blaðsíða 18

Berklavörn - 01.06.1939, Blaðsíða 18
andi, þótt hann hafi því láni að fagna, að hafa sloppið við þann illa vágest — veik- indi. Munið það, að einmitt þeir, sem heil- brigðir eru, geta unnið mest og bezt að því, að hér verði náð settu marki, sem sé: að vinna að því á allan hátt að gera sitt lil þess að vinna að niðurlögum á „þjóðfélags- óvininum nr. 1“ — berklaveikinni. Lesari góður, máske var það vinur þinn, sem í gær varð berklaveikinni að bráð, í dag getur það orðið ég, og á morgun ef til vill þú. Það er því nauðsynlegt, að þú gerir skyldu þína strax, því á morgun er það máske of seint. Það lætur ekki vel í eyr- um, berklar — berklaveiki, því svo eru þau mörg sárin, sem við höfum um að binda í sambandi við þau orð, á undanförnum ára- tugum, það er því þessvegna sem við eig- um að gera allt, sem hugsanlegt er, til að afmá þessi hrollköldu orð af vörum okkar. Tilgangur félaganna er að reyna á allan hugsanlegan hátt að gera sitt til að hjálpa læknum þessa lands, að þessari landplágu verði aflétt af þjóðinni, og það sem allra fyrst. Við ætlum að gera okkar ítrasta til þess, að sá, sem orðið hefir fyrir því skipbroti, að vera berklaveikur, geti fengið þá vinnu, sem heilsa hans leyfir, §r hann hefir feng- ið þann bata, að geta unnið aftur eitthvað. Ennfremur, að sá, sem hefir orðið að láta af störfum sínum um stundarsakir, vegna veikinda, geti fengið þau aftur, er læknir hans álítur hann færan til að vinna þau. Við vitum vel, hvað berklaveikin er búm að kosta þjóðfélagið mikið, beint og óbeint, því viljum við gera það, sem í okkar valdi stendur, svo að þessum miklu fórnum verði létt af þjóðinni. Líka vitum við, að mörg eru þau móður- tárin, sem berklaveikin er búin að kosta, er móðirin hefir horft á eftir barni sínu verða henni að bráð. Vegna þess, er hér að ofan getur, vænt- um við þess fastlega, að allir, hverrar stéttar sem hann er, leggi „höndina á plóginn" með okkur og geri það, sem í hans valdi stendur, að við náum settu marki. Þetta er mál, sem hvern einasta þegn okk- ar litla þjóðfélags varðar. Þess skal getið, að þetta er enginn stétta- félagsskapur og því síður pólitískur félags- skapur, heldur á þar hver maður heima, hverrar stéttar hann er, eða hvaða stjóm- málaskoðun hann hefir — allir, sem vilja vinna að því að ráða niðurlögum „þjóðfé- lagsóvinarins nr. 1“ — berklaveikinnar. Lesari góður, mundu það, að dýrmæt- asta eign þín er heilsan, enginn er fátæk- ur, sem er heill heilsu, og þess vegna er það skylda okkar að vemda þennan dýrgrip okkar og reyna að hjálpa öðrum að vernda hann. Byrjum t dag, á morgun er það máshe of seint. Gerist félagar í „berklavarnafélögun- um“, með því styrkið þið sjálfa ykkur og aðra. Líknum þeim, sem lifa. BERKLAVÖRN 14

x

Berklavörn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Berklavörn
https://timarit.is/publication/1220

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.