Berklavörn - 01.06.1939, Blaðsíða 22

Berklavörn - 01.06.1939, Blaðsíða 22
Jónas Sveinsson: Peir, sem erfiðast eiga. „Slæm aðbúS og áhyggjur vekja hvíta dauðann öðru fremur upp að nýju“. Það geta víst allir verið sammála um, að mikið hefir verið aðhafst í berklamálum þjóðar vorrar síðastliðin ár. Mér liggur við að segja, að unnið hafi verið þrekvirki, sé miðað við fámenni þjóðarinnar. Og árang- urinn hefir einnig verið mikill. En barátt- an við hvíta dauðann er erfið, og vafalaust þarf, ef vel á að vera, að vega að honum frá mörgum hliðum í senn. Eitt er barátt- an við sýkilberana, annað lækning hinna sjúítu, og þriðja vandamálið, máske ekki vandaminnsta atriðið: Hvað ber að gera fyrir þá, er berklaveikir hafa verið, en eru fátækir og óvinnufærir, eiga engu að að hverfa og eru jafnvel óvelkomnir aftur inn í þjóðfélagið? Þeir, sem erfiðast eiga í þjóðfélaginu, hinir fátæku, eru, að öðru jöfnu, mest und- irorpnir að sýkjast — þeir, sem búa í þrengstu húsakynnunum, þeir, sem venju- legast búa við verst viðurværi. Berklaveika fólkið heyir sína hörðu bar- áttu á berklahælum um skemmri eða lengri tíma. Því, sem kunnugt er, er berklaveikin venjulegast langvinnur lúngnasjúkdómur, er orsakast af hinum svonefnda berkla- sýkli. Flyzt veikin svo iðulega þaðan út í önnur líffæri og vinnur með því hið mesta tjón. Auk þess er berklaveikin einnig sézt á sínum tíma á því, hvort sóknin, sem nú er hafin á hendur hvítadauðans í seinni tíð, heldur áfram eða ekki. Ég fullyrði, að S. í. B. S. er albúið til þess að heyja þessa sókn þjóðarinnar að sínum hluta. efnaskiftasjúkdómur, er hefir í för með sér óeðlilega salta- og málmsaltasamsetn- ingu í líkamanum. Getur þess einmitt gætt lengi eftir að hin upprunalegu berklamein eru uppþornuð og gróin. Því má heldur ekki gleyma, að sjúkdómur þessi setur iðulega sín óafmáanlegu merki á sálarlíf berklasjúklinganna, og er sú hlið málsins ekki ávallt metin réttilega, þegar ætlast er til, að sjúklingar þessir sjái sér og sínum farborða. Berklahælin eru ávallt yfirfull, og margir bíða £ biðlistunum. Afleiðing þess er sú, að sjúklingarnir eru yfirleitt út- skrifaðir svo fljótt, sem unnt er. Er þar einmitt mikil veila í berklalöggjöf allra landa. Fátækur fjölskyldumaður leitar að sjálfsögðu heim til sín, er af hælinu kem- ur, þar sem máske mörg börn og kona bíða hans, en líka fátækt og atvinnuleysi. Ennþá er hann sjúklingur, heim kominn úr „stríðum stormi“, hræddur við veik- ina og veigrar sér, með réttu, frá að vinna hvaða vinnu sem er. Fátækrahjálp- in hrekkur skammt, sé annað ekki fyrir 18 BERKLAV ÖRN

x

Berklavörn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Berklavörn
https://timarit.is/publication/1220

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.