Berklavörn - 01.06.1939, Blaðsíða 26

Berklavörn - 01.06.1939, Blaðsíða 26
meinið eru hliðstæðir sjúkdómar. Þeir eru svipa, sc-m náttúran móðir vor notar á óhlýðin börn sín. Gagnvart öllum hinum svokölluðu menn- ingarsjúkdómum er læknisfræðin sífellt í varnaraðstöðu, og þá einnig á stöðugu undanhaldi, frekar en í sókn. Aðferð læknisfræðinnar hefir verið sú, að leitast við að lækna sjúkdómseirikenni, í stað þess að ráðast að orsökunum og útrýma þeim. Með þessu móti hafa þján- ingar manna verið linaðar með deyfilyfj- um, en sjúkdómarnir hafa því frekar orð- ið langvarandi og ólæknandi. Það má öllum vera ljóst, að tannveikin verður ekki læknuð með tanndrætti eða með tannfyllingu eða nýjum tönnum, þótt allt séu þetta ágætar aðgerðir. Melting- arkvillar verða ekki læknaðir, þó botnlang- inn sé tekinn úr mönnum eða stór partur sé skorinn af maga, vegna sárs eða krabbameins, eða gallblaðran tekin vegna bólgu og steina í henni. Lyfin hafa ekki heldur læknað neinn þessara sjúkdóma, en þau geta dregið úr þrautum í bili. Skaðleg áhrif tóbaks og víns verða ekki læknuð, meðan fólkið neytir þessara eit- urtegunda. Meðan að berklaveikinni eru sköpuð hentug vaxtarskilyrði í líkama manna með óhepnilegum lífsvenjum, verð- ur hún torlæknuð og ekki útrýmt. Tak- mark læknavísindanna verður að vera út- rýming sjúkdóma, frekar en árangurslít- ið aðgerðarkák, sem líkist mest því að fleygja í sjóinn. Hin langveigamestu afrek læknavís- indanna um langt skeið *ru þau, að tek- ist hefir að finna orsakasambandið milli næringarinnar og siúkdóma. Þetta nær einnig til berklaveikinnar. Þannig hefir verið sýnt, að næringin hefir sömu þýð- ingu fyrir þrif og vellíðan manna og jarðvegurinn fyrir jurtir. Næringin er sá blómabeður, sem í þrífast hedbrigðir og óhraustir einstaklingar, eftir því hversu vel eða illa hann er undirbúinn. Það hefir verið sagt um næringuna, að hún væri sterkasti þátturinn í akkeris- festi lífsins. Ef á honum eru bláþræðir eða hlekkir með brotalöm, verður hún haldlítil og bilar, þegar minnst varir. Sem þýðingarmikil afrek læknavís- indanna má nefna fund vítamínanna og þýðingu þeirra í búskap líkamans. Enn- fremur þau, að fundist hafa lífgeislarnir í lifandi jurtum og lifandi dýravef. Þess- ir lífgeislar hafa verið kallaðir Gurwitsch- geislar, eftir þeim, sem fann þá. Þetta eru efnisbundnir sólargeislar í öllum lif- andi jurtum. Það er þetta efnisbundna sólarmagn, sem nærir og styrkir líkam- ann, fremur en sú fæða, sem er góður hitagjafi, en annars dauð fæða. Bezta sönnunin um þýðingu lífgeislanr er það, hve vel og fljótt dýrin hressast á vorin og hjarna, er þau hafa fengið nýgræðing- inn. Það er með þessu sannað, að næring- in verður að vera lifandi til þess að varð- veita heilbrigt líf. — Líf verður að nær- ast á lífi. En menningarþjóðirnar hafa fundið nóg ráð til þess að svifta næringuna lífi, áður en hennar er neytt. Það hefir verið gert með efnasviftingu, eins og með syk- urgerðinni, eða með framleiðslu hins hvíta hveitis. Einn drýgsti lífssviftir næring- arinnar hefir þó verið mikil eða lang- vinn upphitun næringarefnanna. Þá hefir verið sýnt, að næring manna verður að inni- halda\neira af lútargæfum efnum en sýru- gæfum til þess að góð heilsa og þrif haldist. En það er sorgleg saga, að ekkert af þess- um afrekum læknisfræðinnar hefir ennþá borið verulegan árangur til bættrar heilsu alþýðu manna. Menn neyta dauðrar víta- mínssnauðrar fæðu og svifta hana nauð- synlegum næringarsöltum eins og áður. Menn neyta hins hvíta sykurs, hvíta hveitis, jafnvel í ennþá meira mæli én áð- ur, og að sama skapi vex hrörnun og BERKLAVÖRN 22

x

Berklavörn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Berklavörn
https://timarit.is/publication/1220

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.