Berklavörn - 01.06.1939, Blaðsíða 24

Berklavörn - 01.06.1939, Blaðsíða 24
Ólafur Björnsson: Allir eitt. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að berklarnir hafa nú um langan aldur herj- að þjóð vora, svo að þeir eru löngu orðnir þjóðfélagslegt vandamál, sem hið opinbera hefir tekið í sínar hendur, með því að halda uppi, á sinn kostnað, berklahælum, eftirliti með burtskráðum sjúklingum og leit að nýjum, sem þurfa eftirlits eða hælisvistar. Og er nú svo komið, fyrir atbeina og at- orku lælma og hjúkrunarkvenna, er standa í þjónustu hins opinbera, að dauðsföllum af völdum berkla fer nú fækkandi svo um munar, og er það gleðilegur árangur. Vegna þess, að hælin eru stöðugt full- skipuð, er boðskapurinn, sem fækkun berkladauðsfalla færir okkur, sá, að stöð- ugt fjölgar brautskráðum sjúklingum, sem náð hafa það góðri heilsu, að þeir þykja ekki þurfa hælisvistar við. En eins og all- ir vita, jafnt þeir, sem í hafa ratað, og aðr- ir, er sú heilsa í flestum tilfellum það við- kvæm, að hún þolir ekki, að viðkomandi taki til síns fyrri starfa, ef að það, sem vannst við hælisveruna, á ekki að fara for- görðum á ný, og á það sérstaklega við um erfiðismenn. Hér í er fólgið það vandamál, sem fé- lagsskapur okkar berklasjúklinga vill leggja mesta áherzlu á að leysa, og sem við teljum, að mikið sé undir komið, að takizt giftusamlega, því að við teljum, að stórt spor væri stigið að liinu stóra takmárki okkar, „útrýmingu berklanna úr landinu“, ef hægt væri að stöðva, að sem mestu leyti, hina hættulegu og kostnaðarmiklu hring- rás sjúklinganna af hælinu og á það aftur að skömmum tíma liðnum. Og við teljum einmitt, að í yfirgnæfandi fjölda slíkra til- fella megi benda á, að sjúklingurinn hafi neyðzt til að stunda óhalla eða of erf- iða vinnu. Það, sem okkar félagsskapur telur því eitt af aðalhlutverkum sínum, er að finna leiðir til að sem flestum, og helzt öllum, brautskráðum sjúklingum verði séð fyrir lífvænlegri atvinnu við þeirra liæfi. Þetta stórmál væntum við að leysa smátt og smátt í samráði við og með aðstoð heil- brigðisstjórnar og læknastéttar landsins, sem þegar hefir sýnt félagsstofnun okkar áhuga og velvild. Við gerum okkur það fullkomlega ljóst, að þetta er mjög erfitt og viðfangsmikið verkefni, og mörgum kann ef til vill að finnast, að hér hafi okkar ungi og fátæki félagsskapur reist sér hurðarás um öxl, en við treystum á fullan áhuga og fórnfýsi al- mennings og gott samstarf við læknana og heilbrigðisstjórnina, ásamt skilningi og aðstoð ríkis og bæjar- og sveitarfélaga, þegar við höfum sýnt, að við erum vaxnir þeim stóru verkefnum, sem miða að því, að gera að veruleika það háleita og göfuga BKRKLAVÖRN 20

x

Berklavörn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Berklavörn
https://timarit.is/publication/1220

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.