Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2001, Blaðsíða 66
oAÍÁwskeið im einkAve.ks'fcur í
keilbvidðisþjónus-tu
[ formannspistli sínum sl. vor velti Herdís Sveinsdóttir
fyrir sér þekkingaAUÐI hjúkrunarfræðinga. Þar fjallaði
hún um þekkingu hjúkrunarfræðinga og þann auð sem í
henni felst og spyr hvort hjúkrunarfræðingar geti virkjað
þekkingarauð sinn á öðrum vettvangi en innan opinberu
heilbrigðisþjónustunnar.
f stefnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga kemur
fram að eðlilegt sé að stór hluti heilbrigðisþjónustunnar sé
á vegum hins opinbera en jafnframt beri að skoða sem
fjölbreyttust rekstrarform. í pistli sínum telur Herdís að
hjúkrunarfræðingar eigi að taka þátt í að skoða fjölbreytt
rekstrarform, koma með hugmyndir og stýra útfærslu
nýrra leiða. Á þessu sviði sé þekking og kraftur hjúkr-
unarfræðinga vannýtt auðlind og hvetur hún til virkjunar
hugmyndaauðs, krafts og þekkingar hjúkrunarfræðinga.
Stjórn félagsins hefur í framhaldi af þessu ákveðið að
bjóða upp á námskeið fyrir hjúkrunarfræðinga um
atvinnusköpun kvenna í samvinnu við Háskólann í
Reykjavík. Námskeiðið er 20 klst. og er gert ráð fyrir 27-
30 þátttakendum. í upphafi skipa þátttakendur sér í hópa
og fylgja eftir hugmyndum sínum um ný rekstrarform eða
þjónustu sem viðkomandi hefur áhuga á að takast á við
og koma í framkvæmd. Æskilegt er að þátttakendur séu
með hugmyndir að atvinnusköpun í upphafi námskeiðs-
ins en það er þó ekki skilyrði fyrir þátttöku.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
I. Möguleika heilbrigðisgeirans - Sigríður Snæbjörns-
dóttir - 2klst.
• Hvað er að gerjast í heilbrigðisgeiranum?
• Hindranir - breytingar í miðstýringu
• Hvað er einkarekstur? - skilgreining
II. Viðskiptatækifæri og hugmyndir - Bjarni Snæbjörn
Jónsson - 2klst.
• Hvað er nýsköpun?
• Hvers vegna að stofna nýtt fyrirtæki?
• Hvaðan koma góðar hugmyndir?
III. Hvað er viðskiptaáætlun - Guðrún Högnadóttir -
2klst.
• Kynning á viðskiptaáætlunum
• Uppbygging og efni viðskiptaáætlana
• Þættir sem skapa góðar viðskiptaáætlanir
IV. Markaðsfræði - Þóranna Jónsdóttir - 2klst.
• Markaðsumhverfið á 21. öldinni
• Viðskiptatryggð
• Framúrskarandi þjónusta
• Sköpun sérstöðu
V. Samningar hjúkrunarfræðinga við hið opinbera -
Viðar Helgason - 2klst.
• Öfl sem takast á
• Hvaða samningar eru í boði í dag?
• Samningaleyfi - byrjunarskref inn í kerfið
VI. Fjármál og fjárhagsáætlun - Loftur Ólafsson -
2klst.
• Fjárhagsuppbygging fyrirtækja
• Lánsfjármögnun
• Eigin fjármögnun
• Hvað gerir fyrirtæki verðmætt?
• Hvernig stuðla stjórnendur að virðisauka fyrir-
tækja?
VII. Heilbrigðismál - Páll Kr. Rálsson - 1,5 klst.
• Fjármögnun drauma með draumafjármagni
VIII. Frá hugmynd til veruleika - Bjarni Snæbjörn
Jónsson - 2 klst.
• Veruleikaprófun
• Eftir hverju leita fjármögnunaraðilar?
• Uppspretta einkafjármagns
• Viðhorf fjárfesta
IX. Verkefnaflutningur nemenda
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hvetur þá
hjúkrunarfræðinga, sem áhuga hafa á að auka fjölbreytni
rekstrarforma innan heilbrigðisþjónustunnar, til að sækja
námskeiðið og vonar að það verði þeim til gagns.
A.J.F.
66
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 77. árg. 2001