Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1996, Blaðsíða 9

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1996, Blaðsíða 9
5. Skattlagningarkerfi á hinum Norðurlöndunum Hér á eftir verður fjallað lauslega um skattlagningu hlutafélaga og hluthafa á hinum Norðurlöndunum. Það athugist að kerfunum er aðeins lýst í höfuðdrátt- um. 5.1. Finnland Eins og lýst er hér að framan, sbr. tölulið 2., þá gildir skattígildiskerfi í Finnlandi varðandi skattlagn- ingu hagnaðar hlutafélags og arðs til hluthafa. Kerf- ið var innleitt á árinu 1990 en þá hurfu Finnar frá frá- dráttarkerfi sem svipaði til þess íslenska. 25% tekjuskattur er lagður á hagnað félagsins og enginn ffádráttur er veittur vegna úthlutaðs arðs. Hjá einstaklingum er skatthlutfall fjármagnstekna 25%; hluthafinn telur arðinn til tekna að viðbættu skattí- gildinu en á rétt á frádrætti sem svarar 1/3 af greidd- um arði (75x1/3=25). Igildisfrádrátturinn er eingöngu veittur aðilum heimilisföstum í Finnlandi nema tví- sköttunarsamningur kveði á um annað og þá eingöngu á gagnkvæmnisgrundvelli. Varðandi arðgreiðslur milli félaga er komið í veg fýrir tvísköttun með sömu aðferð eins og áður er lýst. Hlutafjárarður sem finnskt félag greiðir erlendis bú- settum félögum eða einstaklingum sætir 25% endan- legum staðgreiðsluskatti. Þessi skattur er lækkaður eða felldur niður í t\'ísköttunarsamningum eða sam- kvæmt ESB- reglum. Varðandi arðstekjur félags í Finnlandi erlendis frá þá eru þær skattskyldar í Finnlandi skv. venjulegu skatt- hlutfalli ef ekki er tvísköttunarsamningur við viðkom- andi land. Erlendan skatt á arðgreiðslur félags má draga einhliða ffá finnskum skatti. Frádráttur vegna erlends félagaskatts á hagnað hins erlenda félags sem arðurinn er greiddur af er ekld veittur. Ef um er að ræða arðgreiðslur til finnsks félags frá félagi heimilisföstu í landi sem Finnland hefur gert tvísköttunarsamning við gilda eftirfarandi reglur: Samkvæmt EBS- tilskipuninni ffá 1990 um móður og dótturfélög, sbr. áður undir lið 4, er Finnland skuldbundið til þess að létta tvísköttun á arðgreiðslum ffá dótturfélagi í öðru EBS- landi frá 1. janúar 1995. Þessa undanþágu má veita annað hvort með því að undanþiggja slíkar arðgreiðslur skatti eða veita móð- urfélaginu í Finnlandi ffádrátt vegna staðgreiðslu á arðgreiðslur í landi dótturfélagsins auk ffádráttar vegna þess hluta félagaskatts sem lagður er í því landi á hagnað þann sem arðurinn er greiddur af. Samkvæmt finnskum lögum er tilskipuninni varð- andi arðgreiðslur utanlands ffá ffamfýlgt með undan- þáguákvæði sem nær til félaga í öllum löndum sem Finnland hefur gert tvískötmnarsamninga við en ekki einungis landa innan ESB. Samkvæmt því eru arð- greiðslur undanþegnar skatti í Finnlandi ef; a) finnska félagið á a.m.k. 10% atkvæðamagns í því félagi sem greiðir arðinn; eða b) finnska félagið á að minnsta kosti 25% hlutafjár í hinu erlenda félagi. Hér á effir fer dæmi um skattalega meðferð arð- greiðslna milli dótturfélags á Islandi og móðurfélags í Finnlandi sem á meirihluta í dótturfélaginu. Forsend- ur í dæminu á töflu 7 eru eftirfarandi: Hlutafé í dótturfélaginu er 400 þús. og hagnaðurinn 100. Tekjuskatmr er 33% og allur arður efitír skatt er greiddur út. Taka má 15% staðgreiðsluskatt á Islandi af þeim hluta arðsins sem er frádráttarbær. TAFLA7 ÍSFAND Hagnaður dótturfélags á Islandi 100 Frádráttarbær arður (400x10%) (40) Skattskyldar tekjur dótturfél. (100-40) 60 Tekjuskatmr dótmrfélags (60x33%) (20) Arður til úthlumnar (100-20) 80 Staðgreiðsluskatmr á íslandi (40x15%) (6) Arðgreiðsla til Finnlands eftir ísl. skatta 74 FINNLAND Arðstekjur frá Islensku dótmrfélagi 80 Undanþága v/ meira en 25% eignarhalds 80 Skattsk. arðstekjur ffá íslensku dótmrfél. 0 Staðgreiðsluskatmr á Islandi (6) Arðstekjur frá ísl. dótmrfél. eftir skatt 74 5.2. Noregur I Noregi var skattígildiskerfi, líkt því finnska, inn- leitt 1. janúar 1992. Fyrir þann tíma höfðu Norð- menn haft frádráttarkerfi líkt og Islendingar hafa nú. Tekjuskatmr félaga er 28% og skattur á fjármagnstekj- ur sömuleiðis 28%. Norska skattígildiskerfið er mjög líkt því finnska og er ígildisfrádrátturinn venjulega einungis veitmr hluthöfum búsetmm í Noregi. Hlutafjárarður sem norskt félag greiðir erlendis bú- setmm hluthöfum sætir 25% staðgreiðsluskatti nema sú fjárhæð sé lækkuð samkvæmt ákvæðum tvísköttun- arsamninga. Varðandi arðgreiðslur milli félaga í Noregi er kom- ið f veg fýrir tvískötmn með sama hætti og í Finnlandi. Þegar tvísköttunarsamningur er ekki fýrir hendi er 7

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.