Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1996, Blaðsíða 12

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1996, Blaðsíða 12
TAFLA8 Móðurfélag Móðurfélag í Bandaríkjunum á Islandi Hagnaður dótturfélags 100 100 Frádráttarbær útb. arður 100 100 Skattskyldur hagnaður 0 0 Tekjuskattur dótturfélags 0 0 Skattur af greiddum arði Nettó til móðurfél. e. skatt (5) (33) (án tillits til erl. skatta) 95 67 félagið fá hagnað dótturfélagsins óskertan af sköttum vegna frádráttarreglunnar. Islenska móðurfélagið greiðir 3 3 % tekjuskatt af mótteknum arði en ekki næst nema 5% staðgreiðsluskattur á Islandi vegna arð- greiðslunnar til bandaríska móðurfélagsins. Eins og lýst er í kafla 3.2. hér að framan hefur verið leitast við að jafna ójafnvægið í skattgreiðslum milli Is- lands og annarra landa með því að semja um hærri staðgreiðslusskatt af þeim hluta arðsins sem fæst ffá- dreginn skv. 10% reglunni. Þessi hækkunarregla gild- ir ekki í bandaríska samningnum en hefur í öðrum samningum venjulega í för með sér að beita má 15 % staðgreiðsluskatti á arðgreiðslur til erlendra félaga. I samningaviðræðum okkar við aðrar þjóðir hefur okkur verið bent á að þetta hátt hlutfall staðgreiðslu- skatts milli félaga hafi letjandi áhrif á erlenda fjárfest- ingu á Islandi á sama tíma og aðrar Evróðuþjóðir falla frá slíkri skattlagningu. Þá hafa vaknað spurningar hjá viðsemjendum okkar um það hvers vegna við leyfum ffádrátt frá tekjum hlutafélags vegna arðgreiðslna - sem ætti almennt séð að vera ætlað til þess að hvetja til fjárfestingar- en reynum síðan að ná þessari ívilnun til baka með hækkuðum staðgreiðsluskatti. Af þessari samantekt má m.a. ráða eftirfarandi: 1) Reglur íslenskra laga um skattalega meðferð arðs innan hlutafélaga og milli hlutafélaga eru orðnar mjög frábrugðnar því sem tíðkast í öðrum Evrópu- löndum innan OECD. 2) Núgildandi reglur koma ekki í veg fyrir keðjuskatt- lagningu milli móður-og dótturfyrirtækja, þannig að sami hagnaðurinn getur sætt margskattlagningu milli fyrirtækja í sama fyritækjahópnum. 3) Þessi keðjuskattlagning getur rýrt samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja gagnvart fyrirtækjum í öðrum löndum þar sem komið er í veg fyrir slíka skattlagn- ingu. 4) Islenska frádráttarreglan veldur því í samningum við aðrar þjóðir að erlendir hluthafar geta sætt hag- stæðari skattlagningu en hérlendis búsettir. 5) Frádráttarreglan gerir samningsstöðu Islands erfiða vegna þess að hún veitir samningsaðilanum sjálf- krafa ívilnun sem veldur því að óeðlilegt misvægi verður á skiptingu skatttekna milli Islands annars vegar og samningsríkisins hins vegar þannig að Is- land fær hlutfallslega lítið í sinn hlut. 6) Hagræði frádráttarreglunnar fyrir erlenda fjárfesta leiðir væntanlega til þess að erlent fjármagn leitar fljótlega úr landi aftur. HEIMILDASKRÁ: European Tax Handbook 1995 Cross-border dividends, Rainer Söderholin, 1992 Trends in International Taxation, David W. Williams, !991. International Tax Glossary, IFA 1988 10

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.