Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1996, Blaðsíða 22

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1996, Blaðsíða 22
1.7. Aðlögun að ákvæðum EES samningsins. Lög og reglur sem í gildi eru á Norðurlöndunum og varða skilyrði fyrir löggildingu starfsréttinda á endur- skoðunarsviði og opinbera skráningu þessara réttinda uppfylla í meginatriðum þau ákvæði í reglum ESB sem ná til þessara atriða. 2.0. Innra eftirlit og hlutverk endurskoðenda hjá fjármálastofnunum 2.1. Innra eftirlit hjá fjármálastofhunum Af hálfu norðmanna var undir þessum lið fjallað um eftirlitsábyrgð, skráningu og staðfestingu á innra eftir- liti í bönkum. Fyrirliggjandi eru reglur um þetta atriði útgefnar af Kredittilsynet sem tóku gildi 15. janúar 1994. Reglurnar skiptast í eftirfarandi 4 menginþætti. 1. Eftirlitsábyrgð 1.1. Eftirlitsábyrgð stjórnar. 1.2. Eftirlitsábyrgð daglegs stjórnanda. 2. Skráning innra eftirlits. 2.1. Yfnsýn yfir innra eftirlit. 2.2. Yfirferð yfir áhættuatriði og öryggisþætti. 3. Staðfesting á innra eftirliti. 3.1. Staðfesting frá stjórnendum. 3.2. Staðfesting frá óháðum aðila, t.d. innri endur- skoðun eða ytri endurskoðanda. 4. Upplýsingaskylda gagnvart Kredittilsynet 4.1. Varðveisla gagna og upplýsingagjöf til Kredittil- synet. Ofangreind upptalning kaflaheita og undirkaflaheita gefa hugmynd um innihald þessara reglna. I reglunum er lögð mikil áhersla á þátttöku stjórnar og stjórnenda viðkomandi banka í að koma á fullnægjandi innra eft- irliti, skráningu eftirlitsþátta og staðfestingarferli. Reglurnar voru settar í kjölfar þeirra áfalla sem norsku bankarnir urðu fyrir á seinni hluta síðasta áratugar og byrjun níunda áratugarins en ein af ástæðum áfallanna var talin hafa verið ófullnægjandi stjórnun bankanna. 2.2. Hlutverk endurskoðenda fjármálastofnana A síðustu árum hefur aukist umræða um hlutverk endurskoðenda fjármálastofnana. Fyrirliggjandi er al- þjóðlegur staðall um endurskoðun alþjóðlegra við- skiptabanka (ISA No. 6). Meginregla staðalsins er að samræmi sé í framkvæmd endurskoðunar yfir landa- mæri hjá bönkum sem starfa á alþjóðlegum markaði. Rætt var um að hve miklu leyti þessi staðall gæti verið grundvöllur að staðli fyrir góða endurskoðunarvenju innan hvers lands. Alþjóðlegir staðlar láta endurskoð- endum eftir að útfæra ýmis famkvæmdaratriði endur- skoðunar og er sú útfærsla þá byggð á huglægu mati. Þess vegna er talin þörf á leiðbeinandi reglum um framkvæmd endurskoðunar og að slíkar reglur séu settar af þeim aðila sem fer með eftirlit með fjármála- stofnunum. Fram kom að Norðmenn hyggjast taka upp framan- greindan ISA staðal og kemur hann þá í stað þess stað- als sem gilt hefur um endurskoðun fjármálastofhana. I undirbúningi er ennffemur að setja nánari reglur í Noregi um endurskoðun fjármálastofnana. Fram kom að í Danmörku setti Finanstilsynet á árinu 1993 regl- ur um framkvæmd endurskoðunar hjá fjármálastofn- unum. I Finnlandi eru ekki til sérstakar reglur um nánari framkvæmd endurskoðunar hjá fjármálastofh- unum og virðist nýleg löggjöf um lánastofnanir í Finn- landi ekki gera ráð fyrir að slíkar reglur séu settar. Af hálfu Svía kom fram að reglur varðandi endurskoðun hjá fjármálastofhunum hefðu verið aðlagaðar ISA - staðli nr. 6. Af Islands hálfu var gerð grein fyrir þeim reglum sem nýlega voru settar í samráði við löggilta endurskoðendur um endurskoðun hjá fjármálastofh- unum. 2.3. Sambandið milli eftirlitsstjómvalds og endur- skoðenda fjármálastofhana Samkvæmt lögum og reglum sem gilt hafa í einstök- um ríkjum Kiorðurlandanna er almennt ekki gert ráð fyrir beinni upplýsingaskyldu af hálfu endurskoðenda til eftirlitsstjórnvalds varðandi atriði sem gætu talist gagnleg fyrir eftilitsaðilann. Sama á við um aðgang eftirlitsstjórnvalds að endurskoðanda fjármálastofhun- ar, þ.e. eftirlitsaðilinn hefur ekki heimild til að krefja endurskoðandann um upplýsingar. Hins vegar hafa eftirlitsaðilarnir aðgang að endurskoðunarskýrslum sem endurskoðandi sendir fjármálastofnun. Norðmenn gerðu sérstaka grein fyrir lögum og reglum sem gilda um upplýsingaskyldu endurskoð- enda í Bretlandi en fulltrúar frá Kredittilsynet höfðu sérstaklega kynnt sér það mál og var niðurstaða þeirra sú að í Noregi ætti að stefna að því að taka upp svipað kerfi og í Bretlandi þar sem það myndi leiða til árang- ursríkara eftirlits með fjármálastofnunuin. Nú liggur fyrir svonefhd Post BCCI-tilskipun sem taka á gildi á miðju ári 1996. I þessari tilskipun eru m.a. ákvæði um skyldu endurskoðanda til að upplýsa 20

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.