Fréttablaðið - 10.10.2017, Síða 62

Fréttablaðið - 10.10.2017, Síða 62
Jóns Sigurðar Eyjólfssonar BAKÞANKAR Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Mér þykir Spánn óskaplega spennandi eins og hann er með sín þrjú tungumál og óteljandi mállýskur. Svo er það þessi margfrægi núningur milli borga og landshluta sem virkar á mig eins og uppörvandi andstæða við einsleitnina í mínu heimalandi þar sem Stór-Reykjavíkursvæðið er alfa, ómega og amen eftir efninu. Mér þykir líka óendanlega vænt um lýðræðið þannig að ég hef lengi verið að vonast eftir því að íbúar Katalóníu fái að ákveða framtíð sína í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég er því nokkuð daufur í dálkinn þessa dag- ana þegar ýmislegt bendir til þess að Katalónía sverji sig frá Spáni án þess að Katalóníumenn fái að útkljá það mál með lýðræðislegum hætti. Þá ber þess fyrst að geta að „þjóð- aratkvæðagreiðslan“ sem fór fram þann fyrsta þessa mánaðar stendur ekki undir nafni en það var síður en svo lýðræðislega að henni staðið. Hún var undirbúin með leyndar- hyggju og af þvermóðsku; lög um hana samþykkt með ónægum meiri- hluta og stór hluti Katalóníumanna taldi hana fúsk og sat því heima. Til að bæta gráu ofan á svart mætti Rajoy forsætisráðherra þessu með þjóðaröryggislögreglunni, grárri fyrir járnum, svo úr varð hin hræði- legasta niðurlæging fyrir gjörvalla þjóðina. Það sorglega í þessu er að líklegast myndi hann leggja drög að alvöru þjóðaratkvæðagreiðslu í Katalóníu ef hreðjum og lýðræðis- vitund væri fyrir að fara. Það ætlar því að vera þvergirðingsháttur stjórnmálamanna sem tvinna örlög Katalóníu og eflaust munu stórfyrir- tæki og bankar hafa sitt að segja en íbúarnir fá engu um ráðið. En til hvers er ég nú að masa þetta? Jú, svo að fólk vandi sig nú við að kjósa því, eins og dæmin sanna, getur það leitt hinar bestu þjóðir í hrikaleg öngstræti þegar kosnir eru forhertir ónytjungar til forystu. Gráttu fyrir mig Katalónía OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Í ICELAND ENGIHJALLA, VESTURBERGI, ARNARBAKKA, GLÆSIBÆ OG STAÐARBERGI FOSSBERG bæklingur fylgir Fréttablaðinu í dag. 1 0 -1 0 -2 0 1 7 0 5 :5 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D E F -1 7 7 4 1 D E F -1 6 3 8 1 D E F -1 4 F C 1 D E F -1 3 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 6 4 s _ 9 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.