Helgarpósturinn - 15.08.1980, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 15.08.1980, Blaðsíða 3
3 haltJFirpnirínn Föstudagur 15. ágúst 1980 kauplaust hjá fyrirtækinu til a6 endar næöu saman og má af þessu sjá aö lengi má skera niöur starfsmannafjölda án þess aö hagur Flugleiöa batni aö ráöi. Tap Flugleiöa á aö langmestu leyti rætur sinar aö rekja til N- Atlantshafsflugleiöarinnar og hinnar höröu samkeppni og þar af leiöandi lágra fargjalda sem þar gilda eftir aö Carter Bandarikja- forseti gaf flugfélögunum á þess- ari flugleiö lausan tauminn og samstaöan innan. IATA, alþjóöa- sambands flugfélaga, um sam- ræmd fargjöld rofnaöi. Þessi samstaöa haföi veriö sú gullkista sem Loftleiöir og siöar Flugleiöir næröust á — meö þvi aö bjóöa mun lægri fargjöld en IATA- félögin. Nú berjast hins vegar öll félögin sem fljúga á þessari leiö innbyröis, og sérstaöa Flugleiöa meö sin lágu fargjöld er úr sög- unni,auk þess sem til hafa komiö hækkanir á eldsneyti og öllum til- kostnaöi ásamt óöaveröbólgu hér innanlands. Um ekkert af þessu verður Siguröur Helgason sakaö- ur né aörir forráðamenn Flug- leiöa. Þaö veröur þess vegna ekki fram hjá þvi horft aö aldrei fyrr hafa forsvarsmenn islenskra flugfélaga staöiö frammi fyrir jafn stórkostlegum vanda og Sig- urður Helgason og hans nánustu samstarfsmenn þurfa aö horfast i augu viö frá degi til dags. „Ég þori aö' fullyröa aö flest flugfélög tapa á feröum yfir N- Atlantshaf i dag,” sagði einn af stærri hluthöfum i Flugleiöum i samtali viö Helgarpóstinn. „Það eru alltof margir um hituna og fargjöldin hafa þar af leiöandi dottið niöur fyrir allt sem getur talist skynsamlegt. Á hinn bóginn er þessi flugleið eins konar stööu- tákn fyrir öll flugfélög, sem^þau leggja metnaö sinn i aö bjóöa upp á. Stóru flugfélögin amk. hafa þó ýmsar aðrar flugleiöir i bakhönd- inni, sem skila góöum hagnaöi og geta boriö uppi tapiö sem veröur á N-Atlantshafsleiöinni. Hins vegar kemur þessi taprekstur á leiðinni mun haröar niður á Flug- leiöum en flestum öörum félög- um, þar sem farþegatekjur af þessu flugi voru hvorki meira né minna en 51% af heildarveltu Flugleiða á siöasta ári. Ahættan af þessari flugleiö er þvi gífurleg hjá félaginu. Aö byggja þungann af rekstrinum á svona viökvæmri flugleið hefur þvi komið félaginu i koll. Það hafa komið góö ár, en úr hvaða sjóöum á aö greiöa tapiö þegar mögru árin renna upp? Varla úr sjóöum Evrópuflugsins sem námu aöeins um 23% af farþegatekjunum. Ekki heldur með farþegatekjum af Bahamafluginu sem voru um 17.4%. Hvaö þá úr innanlands- fluginu sem nam aöeins um 7.3% af farþegatekjunum. Taprekstur varö á öllum þessum flugleiöum. Bandarikjaflugiö er þvi liftaug Flugleiða um leið og það virðist ætla aö verða Akkilesarhæll félagsins. öskubuskuævintýrið Forsvarsmenn Flugleiöa verða varla sakaöir um, fyrirhyggju- leysi i því aö byggja svo mjög á Amerikuleiðinni. Þá má ekki gleymast aö Flugleiðir er sam- steypa tveggja félaga — Loftleiða sem byggöi rekstur sinn á N- Atlantshafsleiðinni og græddi drjúgum viö hagstæö skilyröi, og hins vegar Flugfélags Islands sem sinnti Evrópuleiðum og átti jafnan viö rekstrarerfiöleika að striöa. Fyrstu ár sameiningar- innar hélst þessi skipting nær óbreytt en um það leyti sem sam- einingin var aö veröa algjör uröu umskiptin miklu á N-Atlants- hafsleiöinni og þaö er varla meö góöu móti hægt aö ætlast til aö forsvarsmenn Flugleiöa sæju þaö fyrir og væru i tima búnir aö gera ráðstafanir til aö mæta þeim vanda. Engu aö siöur er sú gagn- rýni sem fram hefur komiö um aö forsvarsmenn félagsins hafi veriö of seinir aö gripa til nauösynlegra ráöstafana e.t.v. raunhæfust enda viöurkennir Siguröur Helgason þaö fúslega. „Þaö má e.t.v. segja aö viö höfum veriö of sinnulausir og hefðum átt aö gripa til niöur- skuröar og samdráttar fyrr, þeg- ar blikur voru á lofti. En þaö er hægt aö vera vitur eftir á og þaö var von okkar og trú aö úr rætt- ist.” I sama streng tók Birgir Guöjónsson, deildarstjóri I sam- gönguráöuneytinu en hann er annar tveggja eftirlitsmanna á STARFSMANNA Baldur Ingólfsson aöstoöar- flugstjóri: „Þvi veröur ekki neitaö aö hinar tiöu uppsagnir I kjölfar erfiöleika Flugleiða koma veru- lega niöur á andrúmsloftinu meöal starfsfólks. Þaö er tals- veröur ótti i mörgum, sérstak- lega þeim sem skemmri starfs- tima hafa aö baki og ungu mennirnir hjá félaginu eru langt frá þvi aö vera bjartsýnir á eigin hag. Persónulega hef ég þó þá trú, aö félaginu takist aö rétta úr kútnum.” Úlfar Sigurösson hleöslu- maöur: „Ég verö nú ekki var viö þaö, aö starfsmenn séu almennt óttaslegnir, þannig aö þeir búi sig undir uppsögn án viövör- unar. Ég er búin aö vinnna hjá Flugfélagi Islands og siöan Flugleiöum i yfir 20 ár og ég man ekki eftir ööru eins ófremdarástandi, en hef þó óbil- andi trú á þvi aö félagiö rétti viö á nýjan leik. Ég get ekki séö hvernig félagiö á aö rúlla áfram ef til frekari uppsagna kemur og þess vegna er þaö min skoöun, aö neöar veröi ekki fariö og málin hljóta aö mjakast upp á viö á nýjan leik.” Erna Friðfinnsdóttir flug- freyja: „Ráöandi umræöuefni milli starfsmanna Flugleiöa eru auð- vitaö hinar tiöu uppsagnir og þaö er ei óeölilegt. Starfsfólk er auövitað hrætt viö þessar hrær- ingar allar og óttast um eigin hag. Þaö liggur viö, aö maöur viti vart hverjir mæti til starfa aö morgni, svo örar eru breyt- ingarnar. Þar ofan á eru menn ekkert of bjartsýnir og sjá i fljóti bragöi ekki leiöir sem fleyta félaginu yfir þessa erfiöu hjalla. Vinnumórallinn getur aldrei veriö eölilegur á vinnu- staö þegar ástandið er jafn viösjárvert og raunveruleikinn sýnir okkur Flugleiðafólki.” Skipurit af uppbyggingu stjórnar og framkvæmdastjórnar Flugleiöa. Stjórnsviö þau sem lögö hafa veriöniöur eru einkennd meö punktalinum og meö örvum er sýnt hverjir taki yfir þessisviö. vegum rikisins meö rekstri Flug- leiða. „Þetta er hálfgert veiði- mannshugarfar hjá okkur og viö upplifum öskubuskuævintýriö meöan kostur er, likt og átti sér hér staö á tfmum sildarævintýrs- ins. Svipaö er meö flugiö. Flug- leiðir liföi sin blómaár og siöan þegar fór aö siga á ógæfuhliöina neituðu menn aö kannast viö staðreyndir og héldu áfram á sömu braut. Það kom þó óhjákvæmilega aö þvi aö sann- leikurinn birtist mönnum og að til nauðsynlegra ráðstafana þyrfti aö gripa. En þá uröu þessar ráö- stafanir auövitaö mun sársauka- fyllri en ef fyrr heföi verið gripiö i i taumana.” Aörir telja, að þegar loks haföi veriö brugöist við vandanum af hálfu stjórnar Flugleiöa þá hafi þaö veriö gert meö röngum hætti. „Flugleiðir var ekki nægilega vel undir samdráttinn á N- Atlantshafi búin,” segir t.d. Kristjana Milla Thorsteinsson, hluthafi i félaginu og helsti gagn- rýnandi núverandi stjórnar félagsins á aðalfundum þess sl. tvö ár. „Þaö átti aö snúa vörn i, sókn þegar harönaöi I dalnum auka söluherferöina og fjölga söluskrifstofum frekar en hitt. Nei, I þess staö var lausnaroröið samdráttur. Þaö er auövitaö rétt aö samkeppnin hefur harönaö á Amerikuleiðinni siöari árin, þvi neitar enginn, en Loftleiöir voru vel kynnt nafn i Bandarikjunum, svo aö slikri samkeppni heföi mátt mæta. Regin mistökintel ég hafa átt sér staö meö samruna félaganna tveggja og i dag tel ég aö merki Loftleiða heföi vel megnað aö sporna viö fótum á Atlantshafsleiöinni til aö halda velli og vel þaö. Nú er hins vegar stefnan aö láta allt reka á reiöan- um og mér finnst al)t stefna i þaö að ástandiö veröi eins og i gamla daga þegar Flugfélag Islands stóö eitt aö flugsamgöngum hér á landi og þjónustan var i lág- marki.” Einn af reyndustu flug- stjórum Flugleiöa hélt svipuöu sjónarmiöi fram i samtali viö Helgarpóstinn: „Þaö viröist svo sem stefnumótun af hálfu félags- ins sé alls ekki til. Þaö veit nánast enginn hvaö morgundagurinn ber i skauti sér. Þaö viröist allt i lausu lofti varöandi þaö að hverju skuli stefnt i N-Atlantshafsflug- inu og flugáætlun félagsins yfir- leitt. Mér skilst meira aö segja aö ekkert liggi ennþá fyrir hvernig flugáætlun vetrarins komi til meö aö lita út. Þaö er þvi ljóst aö þaö er aðeins tjaldaö til einnar nætur i senn.” Vafasamar f járfestingar Fleiri verða til þess aö gagn- rýna gerðir stjórnar félagsins og Siguröar Helgasonar nú þegar Flugleiöir viröist vera aö komast á kaldan klaka. Flestir viður- kenna þó aö úr þvi sem komiö er hafi þeir ekki á reiöum höndum nein lausnarorö út úr vandanum en telja aö taka heföi mátt ööru- visi á málum meðan möguleikar voru á sliku. Gamalreyndur Flugleiöamaöur og áöur Loft- leiöamaður sagöi t.d. aö flugvéla- kaup félagsins heföu ekki veriö nægilega vel igrunduö á liönum árum, en þar héfur Siguröur Helgason löngum haft mest aö segja. „Flugmenn hafa bent á gæöi Tri-Star vélanna á Ameriku- leiöinni en þær eru mjög spar- neytnar. Hins vegar var dauf- heyrst viö öllum slikum ábendingum og ÐC-8 vélarnar notaöar á flugleiöinni enda þótt þeirra timi sé senn á enda runn- inn, og þær eru nánast aö verða ósöluhæfar. Þá hafa kaupin á DC- 10 breiöþotunni ekki reynst neinn happdrættisvinningur fyrir félag- iö svo aö ekki sé meira sagt,” sagöi þessi maður Aöra athugasemd um vafa- sama fjárfestingu félagsins fékk blaöiö einnig aö heyra. A þaö var bent aö á dögum Loftleiða hafi verið uppi hugmyndir um aö kaupa Boeing 747 breiöþotu til aö fljúga á N-Atlantshafsleiöinni. Sú vél er hin stærsta sinnar tegundar sem flýgur meö farþega á þessari leiö og tekur alls um 500 manns I sæti. Ætlunin var þá aö setja skil- rúm i farþegarýmið þegar fáir farþegar flygju og taka þá vörur i hinn helminginn. „Ég held aö þessi áform hafi veriö raunhæfari enDC-kaupin, siöar meir”, sagöi þessi viðmælandi. „Þetta heföi þýtt aö fullnýta heföi mátt far- þegarýmiö yfir háannatimann á sumrin en gera siöan samninga um farmflutninga á veturna þeg- ar minna var aö gera. Þessar vél- ar eru einnig m jög góð f járfesting og seljast, sem ekki veröur sagt um aörar vélar i flugflota Flug- leiöa núna.” Enn ein gagnrýnisröddin meöal Flugleiðamanna taldi aö þegar samkeppnin i farþegafluginu á N- Atlantshafsleiöinni harðnaöi svo sem nú er raunin , hafi Flugleiöir þá þegar átt aö viöurkenna van- mátt sinn i þvi að keppa viö stóru flugfélögin um lágu fargjöldin heldur breyta um stefnu, hækka fargjöld sin verulega meö stór- aukinni þjónustu og leita þannig á miö hinna efnameiri, sem vildu þægindi og toppþjónustu umfram allt og láta sig engu skipta hvort fargjaldið er 100 dölum hærra eöa ekki. Sigurður með tögl og ha Igdir Oll beinist þessi gagnrýni meö einum eöa öröum hætti aö tökum Sigurðar Helgasonar á stjórn Flugleiða. Hann hefur sýnt að hann er haröur stjórnandi, hann ■ veröur. , ekki sakaöur um hug- eða dugleysi og má þvi þola óvægna gagnrýni. Alls kyns sögu- sagnir hafa komist á kreik um Sigurð, þar sem honum eru borri- ar á brýn ýmsar vafasamar fyrir- ætlanir. Tengsl hans viö Sea- board-flugfélagiö i Bandarikjun- um (þaöan sem Flugleiöir hafa fengiö Douglas-þotur sinar aö viöbættri viöhaldsþjónustu) hafa löngum þótt óljós en skæöasta sögusögnin er vafalaust sú aö Sig- uröur sé einn af aöalhluthöfum Air Florida, félagsins sem leigir DC-10 þotu Flugleiða, og er eitt þeirra félaga sem er i hvaö mest- um uppgangi i Bandarikjunum. Itrekuö eftirgrennslan Helgar- póstsins á þessum orörómi bendir þó eindregiö til þess aö hann sé algjörlega Ur lausu lofti gripinn. A sama hátt er þvi haldið fram aö Flugleiöir séu aö reyna aö selja Air Florida dótturfélag sitt Air Bahama en Siguröur segir sjálfur aö athygli Flugieiöamanna bein- ist aö þvi aö fá Bahamamenn sjálfa til þátttöku i flugrekstrin- um fremur en aö þeir hyggist losa sig viö félagiö. Þrátt fyrir alla gagnrýni og sögusagnir veröur ekki annað séö en Siguröur hafi enn töglin og haglirnar innan Flugieiöa. Sig- uröur viröist hafa öruggan meiri- hluta hlutafjáreigenda aö baki sér sem styöja hann i einu og öllu i hans aðgerðum. Þessi meirihluti er myndaöur af 4 hluthafablokk- um, eftir þvi sem heimildir blaös- ins herma: Af Eimskipafélagi íslands, sem á um 25% hlutafjár i félaginu og fyrir þvi fer Höröur Sigurgestsson, forstjóri Eimskips og fyrrum hægri hönd Sigurðar Helgasonar, þá Klak hf. sem er félag Sveins Valfells, Siguröar Helgasonar og annarra skyld- menna, þar á meöal Gunnars Helgasonar, forstööumanns lög- fræöideildar Flugleiöa, og Hans Indriöasonar, forstööumanns viö- skiptadeildar félagsins, Starfs- menn hf., sem er félag fyrrum starfsmanna Flugfélags Islands og loks er óformiegur fulltrúi rikisins innan stjórnarinnar, Sig- urgeir Jónsson, aöstoöarbanka- stjóri i Seölabankanum dyggur stuðningsmaður Siguröar og hans manna. Þannig væri Siguröur til- tölulega tryggur i sessi innan Flugleiða. Þessi meirihlutamyndun hlut- hafa, þar sem Sigurður Helgason og skjólstæöingar hans meðal hluthafa úr Loftleiöum mynda valdablokk meö tveimur sterkum hluthafablokkum úr Flugfélagi Islands ásamt fulltrúa rikisins hafa veriö túlkuö sem svik Sig- uröar viö gamla Loftleiöakjarn- ann, og er Siguröur sakaöur um að hafa beitt fyrir sig hlutabréf- um sinum til aö ná nánast ein- ræöisvöldum i stjórn félagsins. Þetta hefur þannig oröiö til þess aö magna jafnvel enn væringar milli hinna striöandi fylkinga fyrrum starfsmanna Loftleiða og Flugfélagsins innan Flugleiöa og jafnvel teygt sig upp til æöstu manna Flugleiða úr gamla Loft- leiöakjarnanum. Þeir draga enga dul á það aö þeir telja Sigurö Helgason vinna aö þvi kerfis- bundið aö fjarlægja alla gömlu Loftleiöamennina úr helstu valdastööum og setja fylgismenn sina þar inn i staöinn. Talandi dæmi um þetta er sérstök skipu- lagsbreytinganefnd, sem skipuö er stjórnarmönnum i Flugleiöum og i munu eiga sæti þeir Orn 0. Johnson, stjórnarformaður, Siguröur Helgason, Sigurgeir Jónsson og Alfreð Eliasson. Þessi nefnd tók ákvöröun um uppsagnir framkvæmdastjóranna Jóns Júliussonar og Martins Peter- sens, og á þessum fundi mun Al- freö Eliasson fyrrum forstjóri Flugleiöa (og Loftleiöa áöur) hafa mótmælt þessum uppsögn- um harkalega en oröiö aö láta i minni pokann fyrir meirihlutan- um. Eöa eins og einn af viö- mælendum blaösins sagöi: „Þessar uppsagnir sem duniö hafa yfir undanfariö eiga ekki aö- eins rót sina aö rekja til almennra skipulagsbreytinga, eins og hald- iö er fram. Þarna er lika um aö ræöa hrein mannaskipti, þar sem spurningin er — annaö hvort ertu hreinn og klár Siguröar (Helga- sonar) maöur eöa þú stendur meö hinum. Svona einfalt er þetta.” Flugleiðir eiga þannig ekki aö- eins viö utanaökomandi erfiö- leika aö striöa heldur einnig inn- I 9

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.