Helgarpósturinn - 15.08.1980, Blaðsíða 19

Helgarpósturinn - 15.08.1980, Blaðsíða 19
Upptökur hafnar á ,,Konu" Agnars Enn einni Islenskri kvikmynd var hrundifc af staö i þessari viku, þegar kvikmyndageröar- mennirnir Páll Steingrimsson og Ernst Kettler hófu tökur á myndinni Konu, sem gerö er eftir samnefndum einþáttungi Agnars Þóröarsonar. Aö sögn Páls Steingrimssonar fara úti- tökur fram i fjörunni I Hrauns- vik viö Grindavik og munu þær standa yfir i 7—10 daga. Innitök- ur fara svo fram i Reykjavlk i lok september, i hálfbyggöu iönaöarhúsnæöi. „Þetta er drama og ivaf úr þjóösögu, þar sem fram fer upp- gjör milli tveggja persóna, hjóna sem eru búin aö búa sam- an og hafa i rauninni ekki haft þau andlegu tengsl, sem þau héldu að þau hefðu”, sagöi Páll, þegar hann var beðinn aö segja örlitið um efni sögunnar. Meö helstu hlutverk i mynd- inni fara þau Helga Bachmann og Þorsteinn Gunnarsson, en Þórðarsonar leikstjóri er Helgi Skúlason. Páll sagöi, aö myndin, sem tekin er upp i 16 mm, myndi llk- lega ekki ná þvi aö veröa i fullri biómyndalengd, og væri hún enn frekar miðuð viö sjónvarps- notkun. Páll sagöi, aö fyrsti tökudag- urinn hjá þeim heföi gengiö bæöi vel og illa, upp heföu komiö ýmsir byrjunaröröugleikar eins og vænta mátti, en þeir væru bjartsýnir á framhaldiö. „Ég hef tröllatrú núna”, sagöi hann. /fNayðsynlegt að setja löggjöf um Sinfóníuhljómsveitina" segir Ingvar Gíslason menntamálaráðherra „Hér er mikiö af málum, sem munu koma fyrir næsta þing, aö öllu forfallalausu”, sagöi Ingvar Gislason menntamálaráöherra, þegar hann var spurður frétta úr ráöuneyti sinu. Ingvar sagöi, aö hann teldi nauðsynlegt aö frumvarp um framhaldsskóla yröi aö lögum. Hann sagöi aö það heföu veriö ýmsir erfiöleikar I sambandi viö þetta frumvarp, þar sem menn hefðu veriö misjafnlega trúaöir á hvernig samræming á skólakerf- inu tækist,en hann taldi þaö vera að breytast núna. Þaö sem væri hins vegar lang erfiðast, væri fjármálahliöin, hvernig ætti aö skipta kostnaöi milli rikis og sveitarfélaga. „Ég geri mér vonir um aö þetta frumvarp sé fariö aö vinna á og menn skilji aö þaö sé nauðsynlegt aö setja heildarlög- gjöf um samræmingu framhalds- skólastigsins”, sagöi Ingvar. Ingvar sagöi aö einnig þyrfti aö endurskoöa ýmsa þætti i starfi Kennaraháskólans, enda væri ráö fyrir þvi gert. Þá sagði Ingvar, aö þaö væri mjög æskilegt aö setja lög um framtiö Sinfóniuhljómsveitar- innar, en málefni hennar hafa mikiö veriö til umræöu I blöðum nú aö undanförnu. Ekki vildi Ingvar segja neitt um hvert yröi efni sliks frum- varps, en sagði aö mörg frum- vörp heföu verið flutt um Sin- fóniuhljómsveitina, en þau heföu aldrei náö fram aö ganga, af ýmsum ástæöum. „Ég tel nauð- synlegt aö halda áfram aö vinna aöþvi aö Alþingi setji löggjöf um Sinfóniuhljómsveitina”, sagði Ingvar Gislason menntamálaráö- herra. — GB Verður kvikmyndahátíð árlegur viðburður? Kvikmyndahátiöirnar tvær, sem haldnar hafa veriö á vegum Listahátiöar, nutu báöar mikillar hylli aimennings og sýndu þaö og sönnuöu aö grundvöllur er fyrir þeim. Þær raddir hafa nú heyrst, aö halda ætti slíka hátiö á hverju ári, eins og tiökast meö stærri kvikmyndahátiöir úti i heimi. Helgarpósturinn haföi sam- band viö Ingvar Gislason menntamálaráöherra og spuröi hann hvort stæbi til aö gera kvik- mýndahátiðina aöárlegum viö- buröi i menningarlifi Reykjavik- ur. „Þaö er ekki svo fast ákveðið, aö ég geti sagt nokkuö um þaö”, sagöi hann, „en þaö eru margir sem telja að svo eigi aö vera.” Um það hvort fariö væri aö vinna aö undirbúningi næstu kvikmyndahátlðar, sagöi Ingvar, aö þau mál væru alltaf I vissri athugun, en væru ekki komin á neitt lokastig. Mynd um rekaviðartöku Eftir Jón og Óla Örn Þeir Jón Björgvinsson og óli örn Andreassen hafa nýlokiö viö töku kvikmyndar um rekaviöar- töku á Langanesi. „Viö fórum I þennan túr meö bát frá Reyðarfirði”, sagði Jón, i samtali viö Helgarpóstinn, „og notuöum tækifæriö til aö litast aö- eins um á Langanesi, sem veriö hefur I eyöi núna I nokkur ár”. Aö sögn Jóns fór rekaviðartak- an fram meö nokkuö óvenjuleg- um hætti, þ.e. aö línu var kastaö úr bátnum og I land, þar sem fyrir voru menn — og þeir festu siöan trjáboli viö linuna. Svo var allt saman dregiö um borö. Mynd Jóns og óla verður um þennan leiöangur, og ef til vill veröur brugöiö upp myndum af Langanesinu. —GA Hestur er manns gaman Háskólabió: Arnarvængur (Eagles Wing) Bresk-Bandarisk. Argerö 1978. Leikstjóri: Anthony Harvey. Handrit: John Briley, skv. sögu eftir Michael Syson. Aöalhlut- verk: Martin Sheen, Sam Waterson, Caroline Langrishe. 1 upphafi þessarar myndar sem aö ýmsu leyti er ansi hug- báðir girnast hann þegar þeir sjá hann. Eftir þaö er myndin eltingaleikur — Indjáninn nær hestinum fyrst, Pike nær honum af honum, indjáninn nær honum aftur, og dregur Pike lengra og lengra inni óbyggöir — nær heimavelli slnum, og fjærupp- runa Pike, sem er borgarbarn I eöli sinu Kvikm yndir eftir Arna Þórarinsson^, Guó ón Arnqrímsson og Guðlaug Bergmundsson Ijúf, segir þulur aö á hinum óendanlegu sléttum vestursins sé hesturinn eini vinur manns- ins. Það reynast orö að sönnu. Myndin snýst eftir þaö um hest, Arnarvæng, sem er stór, fljótur og fallegur. Hugmyndin aö baki þessarar sögu er athyglisverö. Tveir menn, indjáni og hvltur maöur heyja nokkurskonar einvigi um þennan eina vin mannsins. Pike (MartinSheen) er hvlti maöur- inn, sem fyrir röö af tilviljunum er staddur langt inni i óbyggð- um, og Whitebull (Sam Water- son) er indjáninn, og hann þekk- ir landiö fullkomlega. Slðan skýtur þessum hesti upp, og Þetta er efniviður I góöa og spennandi mynd, og Arnar- vængur er ekki sem verst. En undarleg afglöp i handritinu gera þaö að verkum að al- mennileg spenna kemur aldrei i leikinn. Einhverjum hefur ekki þótt nógu sniðugt aö hafa bara tvo karlleikara I svona mynd, indjáninn er því látinn ræna hestvagni i framhjáhlaupi og I vagninum eru m.a. nokkrar konur. Hann rænir einni þeirra og tekur meö sér, en hinar hreinlega daga uppi I handrit- inu. Þaö gerir reyndar einnig sú sem fer meö indjánanum — hún bara fylgir meö. Ósjálfrátt bjóst maöur viö aö indjáninn yröi ást- Sam Waterson og Caroline Langrishe riöa um sléttur vestursins I mynd Háskólabiós fanginn, eða þau bæöi, eöa þá aö Pike og hún myndu ná saman aö lokum. En það veröur ekki: Myndin einhvern veginn fjarar út I lokin, án þess aö áhorfand- inn finni mikiö til. Báöir menn- irnir eru hin bestu skinn, en hvorugur er þaö vel gerður af handritshöfundinum aö maður finni til verulegrar samúöar. Anthony Harvey er breskur leikstjóri og hefur ekki mikla reynslu I gerö útilifsmynda. Það leynir sér ekki i Arnarvæng, en kvikmyndin er góð oftast nær, og hiö heita, þurra og oft fjand- samlega andrúmsloft kemst vel til skila. —GA Á vampýruveiðum Stjörnubíó: Vængir næturinnar (Nightwing). Bandarisk. Ar- gerö 1979. Handrit: Steve Shag- an og Martin Cruz Smith. Leik- stjóri: Arthur Hiller. Aöalhlut- verk: Nick Mancuso, David Warner, Kathryn Harrold, Stev- en Macht. Þeirhafa notaö fugla, maura, froska, kaninur, býflugur, köngulær, engisprettur og fleiri og fleiri tegundir „málleys- ingja”. Nú er röðin komin aö elsku hjartans blóösuguleöur- blökunni að gegna hlutverki ógnar úr dýrarlkinu sem herjar á bjargarlitiö mannfólk i hroll- vekju frá Hollywood (auövitaö hefur blóösugan þjónaö slikum tilgangi fyrr I Dracula og fleiri vampýrumyndum). Nightwing er hins vegarbetur undirbyggö en margar sambærilegar „dýrahrollvekjur”. Forsendur hennar eru sóttar á tiltölulega trúveröugan hátt I trúarbrögð ameriskra indiána. Myndin er býsna hefðbundin i uppbyggingu. Vettvangurinn er svæöi indiánaþjóöflokks I Amerlku nútimans. Astandiö er kunnuglegt: Indiánarnir eru meira og minna utanveltu i hraöfleygri iönvæöingu, — rlg- halda sumpart I gamla menn- ingu og trú, reyna sumpart að tileinka sér menningu og trú hinnar hvitu herraþjóöar, og hún trúir á mátt og megin doll- arans. 1 upphafi finnast skepnur, dauöar af ókennilegum bitsár- um. David VVarner og Nick Mancuso i Nightwing. Atök viö blóösugur og innbyröis átök indián- anna um hvaöa menningarlega stefnu skuli taka, þá gömlu eöa þá nýju, er sú leikflétta sem myndin vefur. Ekkert er hér beinlinis ný- stárlegt. En Arthur Hiller, leik- stjóri er atvinnumaöur af smekkvisara tagi, og meö góðri aöstoö tæknibrellna Carlo Ram- baldi og tónlistar Henry Man- cini, sem sýnir á sér allt aöra hliö en viö erum vön, tekst aö skapa og halda til streitu furöu magnaöri stemningu allt til loka myndarinnar, þrátt fyrir þaö, aö viö vitum snemma af hverju ógnin stafar og aö henni veröur hrundiö áöur en yfir lýkur. Arásir blóðsuguhersins eru til aö mynda ágætlega unninn óhugnaöur. Þá eru persónur, þótt staölaöar séu, bærilega túlkaðar, og er David Warner þar fremstur i flokki I hlutverki vlsindamanns sem fengiö hefur köllun til aö ger.a vampyruveiö- ar aö ævistarfi. —AÞ Að spá í leyndarmálið Ley ndarmál Agöthu Christie (Agatha). Bandarisk, árgerö 1979. Handrit: Kathleen Tynan og Arthur Hopcraft. Leikendur: Vanessa Redgrave, Dustin Hoffman, Helen Morse, Tim- othy Dalton, Celia Gregory, Yvonne Gilan, Paul Brooke. Leikstjóri: Michael Apted. Agatha Christie er llklega ein- hver þekktasti og vinsælasti höfundur sakamálasagna frá upphafi. Þau eru oröin næsta óteljandi dularfullu moröin, sem hún hefur ráöiö fram úr, og lausnin iöulega veriö óvænt. Þær eru heldur ekki dfáar myndirnar, sem geröar hafa veriö eftir skáldsögum hennar. Hér er hins vegar á feröinni mynd um Agöthu sjálfa, nánar tiltekiö um nokkra daga 1 desember 1926, skömmu eftir útkomu einnar af merkari bók- um hennar, „Moröiö á Roger Ackroyd”. Agatha mun vlst hafahorfiöí nokkra daga og veit enginn hvaö hún geröi af sér, þvi hún fór meö leyndarmáliö i gröfina. Annaö heföi tæplega veriö henni sæmandi. Kathleen Tynan og Arthur Hopcraft, höfundar handritsins, hafa spáð i þetta og komiö fram meö sina tilgátu, sem sjá má i útfærslu Michael Apted i Austurbæjarbiói. Þótt ég séekki lesinn i bókum Agöthu, er greinilegt, aö þau hafa fariö i smiöju til gömlu konunnar I leit aöhugsanlegri skýringu á þessu hvarfi hennar. Upphafiö og hvatinn aö hvarfi Dustin HoíTman Vanessa Redgrave konunnar eru erfiöleikar i hjónabandi hennar. Eiginmaö- urinn vill yfirgefa hana og taka saman viö einkaritara sinn. Hversu mikiö þaö styöst viö raunveruleikann, veit ég ekki, þar sem einkamál Agöthu hafa ekki verið mitt aöal áhugamál, a.m.k. ekki fram aö þessu. I stuttu máli, þá eltir Agatha ást- konu manns sins til heilsulind- arbæjar nokkurs úti á landi, og þar bruggar hún ráö, sem sæmdu sér vel i bókum hennar. Hvarfið vekur aö vonum mikla athygli i blööum og ákveöur bandariskur biaöa- maöur aö leita hana uppi. Hon- um tekst þaö, og segir myndin aö miklu leyti frá sambandi þeirra i heilsulindarbænum. Agatha Christie er sýnd sem fremur þunglynd og ósjálfstæö kona, ekki i fulikomnu andlegu jafnvægi, sem ekki vill takast á viö raunveruleikann eins og hann er, og getur ekki gengiö beint til verks I þvi sem hún ætl- ar aðgera. Einsog vænta mátti, skilar Vanessa Redgrave þessu hlutverki af stakri prýði. Þaö sama er aö segja um Dustin Hoffman i hlutverki blaða- mannsins, sem hefur uppi á skáldkonunni. Hann er einkar sannfærandi sem siöfágaöur ameriskur séntilmaöur. Þá er meöferö leikstjórans á viöfangsefninu afar smekkleg og oft bregöur fyrir stór skemmtilegri myndatöku, sem nær fram anda þessa timabils. Tempó myndarinnar er mjög hægt, einsoghæfir, meölöngum skotum, sem þó virðast hafa hrætt leikstjórann, þvi oft koma fyrir óþarfa hreyfingar á myndavélinni til þess aö vega upp á móti aögeröarleysinu inn- an sjálfs myndrammans. Þaö er kærkomin tilbreyting aö fá loksins ameriska mynd, sem eitthvaö vit er I eftir allt sem á undan er gengiö. —GB

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.