Helgarpósturinn - 15.08.1980, Blaðsíða 26

Helgarpósturinn - 15.08.1980, Blaðsíða 26
o£*f; 'yf- Stig Helmer Olsson i gó&um félagsskap á sundlaugarbarminum á Kanarieyjum. Föstudaginn 22. ágúst, þ.e. i næstu viku, hefjast sýningar í Regnboganum á nýrri sænskri kvikmynd, sem heitir „Sóiar- landaferöin”, eöa á sænsku „Salskapsresan, eller finns det svenskt kaffe pa grisfesten”. Höfundur, leikstjóri og aöalleik- ari er Lasse Áberg, og er þetta önnur kvikmyndin, sem hann gerir. Samtimis frumsýningunni í Regnboganum, veröur myndin frumsýnd á öllum hinum Noröur- iöndunum. Eins og nafn myndarinnar gef- ur til kynna, fjallar ..Sólarlanda- feröin” um hóp sænskra feröa- manna, sem fer til Kanarieyja i jólafriinu á vegum feröaskrifstof- unnar Sun Trip. Myndin snýst að mestu leyti f kringum aöalsögu- hetjuna ef hetju skyldi kalla, Stig Helmer Olsson, óframfærinn og klaufalegan lagerstarfsmann, og þau ævintýri, sem hann lendir i. Er brugöiö upp mörgum skopleg- um myndum af hegöan og viö- brögöum þessara feröalanga I ókunnu Iandi, þar sem þeir vilja helsthafa allteinsog heima, enda heitir sta&urinn sem fariö er til „Nýi Stokkhólmur”. Fyrri mynd Abergs heitir „Repmánaden” og segir frá þvi er hópur manna er kallaöur til endurþjálfunar í herinn.Sú mynd nautmikiila vinsælda í Sviþjóö og sló þar öll aösóknarmet. Helgarpósturinn hitti Lasse Áberg aö máli á dögunum og baö hann fyrst aö segja örlltiö frá sjálfum sér, og hver væru hans fyrstu afskipti af kvikmyndagerö. „Ég fór i listaskóla, þarsem ég lagöi stund á nám i auglýsinga- teikningu i' fimm ár. A6 náminu loknu kynntist ég indónesiskum málara, sem haföi áhuga á kóme- diu. Viö geröum saman nokkra þætti fyrir sjónvarp i kringum 1965, og á árunum þar á eftir geröum viö tvo eöa þrjá þætti á ári fram til ársins 1975, og þannig varö ég þekktur i Sviþjóö. Ariö 1975 fékk ég tækifæri til aö gera niu klukkustundar langa þætti fyrir börn og náöu þeir tölu- veröum vinsældum. Þannig má segja, aö ég hafi orðiö „platfrægur”, fólk fór að þekkja mig á götu. Ég kunni ekki viö þaö, en ég haföi gaman af þvl aö gera þættina. Fólkiö heldur aö þaö þekki mig, en þaö þekkir ekki nema persónuna, sem ég var aö leika. Ég get sagt þaö i fullri hrein- skilni, aö mig langar ekkert til aö veröa rikur og frægur, en ég hef mjög mikinn áhuga á hugmynd- um og bröndurum. Þegar ég var strákur haföi ég mjög gaman af þvi aö fá félaga mina til aö hlægja, meö þvi aö hermaeftirkvikmyndum, sem ég sá, og nú þegar ég er orðinn fertugur, græöi ég peninga á þvi. Ég á þaö skiliö. Hlutfall Svia sem sáu fyrri mynd mina, „Repmánaden” er þaö sama og hefur séö Óöal feör- anna, eöa um tvær milljónir áhorfendur. Sjónvarpsþættir minir fyrir börn voru þeir einu, þar sem kom fram hundraö prósent „hlustun” I skoöana- könnunum. An þess aö vera of hógvær, get ég þvi sagt, aö ég er nokkuö vinsæll.” —Voru þetta gamanþættir fyrir börnin? „Já, en einnig með alvarlegu efni. Ég geröi t.d. eina seriu um mannlega hegöan, um alls kyns andleg áföll, sem viö veröum fyrir, og komplexa sem viö höf- um. Núna langar mig- til aö gera umferöaröryggisbrandara. Þaö hljómar óskemmtilega, en ég vona að þaö veröi hægt að gera þaö á skemmtilegan hátt. Ég næ góöu sambandi viö börnin. Ég hef gaman af þvi sem ég geri. Sumt af þvi' fer i' vaskinn, en ööru er vel tekiö.” » Lasse Aberg og Lottie Ejebrant i hiutverkum sfnum f „Sólarianda- feröinni”. Fostudagur i5. égúst '™helaarpóstt'irinn „Framtíðin er ekkert gamanmál” segir sænski leikarinn og kvikmyndastjórínn Lasse Áberg, en kvikmynd hans „Sólarlandaferðin" verður frumsýnd i Regnboganum eftir viku Viðtal: Guðlaugur Bergmundsson Myndir: Sigurður Þorrí ,,Ekki vanmeta hlátur- inn” —Er eitthvaö eitt efni, sem þú tekur sérstaklega fyrir? „Ég vil fá fólk til aö hlægja aö sjálfu sér. Viö vitum, aö framtiö- in er ekkert gamanmál og þess vegna finnst mér þaö vera skylda min aö fá fólk til aö vera um- burðarlyndara gagnvart hegðun hvers annars.” —Er þaö þá hláturinn hláturs- ins vegna, eöa býr eitthvað annaö aö baki? „Ekki vanmeta hláturinn. Mér finnst mjög mikilvægt aö fá fólk til aö hlægja. Ég held aö þjóö- félagiö yröi skemmtilegra, ef stjórnmálamennirnir gætu fengiö fólk til aö hlægja. Ef ég vildi, gæti ég gert kvik- myndir meö boöskap, þröngar kvikmyndir, og mér finnst aö slikar myndir i' Sviþjóö séu til- geröarlegar. I fyrstu kvikmynd- um Hasse og Tage var bæöi boö- skapurog fyndni, þeir gátu komiö boöskapnum til slyla á fyndinn hátt. i „Sólarlandaferðinni” er leiö- sögumaðurinn leiötogi hópsins. Hann er minniháttar valdafigúra og nokkurs konar dulinn fasisti. Þaö er meirihlutinn, sem ræöur hvaöskal gert og meirihlutinn vill fara i grisaveislu, til þess aö skemmta sér og fá ódýrt áfengi. Þeim er skitsama um allt sem heitir menningarlegt.” —Hvaö geturöu sagt mér um þessa mynd, hvernig hún varö til? „Þaö er yfirleitt þannig i lifinu, aö hugmyndirnar koma ekki allt i einu, þú verður aö vinna eins og brjálaöurmaöur til aö fá þær. Viö Bo Jonsson gerðum þessa mynd vegna þess aö okkur finnst gaman að vinna saman. Okkur fannst þaö athyglisvert, að allar myndir sem fengu góöa aösókn voru yfir- leitt heimskulegar. Fólk hefur gaman af þvl aö sjá sjálft sig undir ýmsum kringum- stæöum, þannig aö þegar viö byrjuöum að ræöa um þetta, geröum viö lista meö sögum, sem fólkkæmitil aö sjá, leiguflugferö- ir til sólarlanda, herinn o.s.frv. Viö vissum, aö ef viö gætum gert góöa mynd um þetta efni, kæmi fólk til aö sjá hana, og þaö hefur gengiðhingað til. Þaö kannast viö það sem veriö er aö fjalla um og þaö getur boriö saman viö slna reynslu, og þessi samanburður er mjög mikilvægur. Ef þú gerir kvikmynd um menntamann, sem er farinn aö efast um trú sina, er það talin vera mjög þung mynd og þrjú þúsund manns kæmu kannski aö sjá hana. Myndin kostar fjögur hundruö milljónir, þannig aö þaö yröi mjög dýr mynd. Þaö lltur kannski þannig út, aö ég sé óvinur menningarinn- ar, en ég er þaö ekki.” Að setja sig i spor litil- magnans —Áttu þér einhverjar fyrir- myndir viö gerö mynda þinna? „Mér finnst gaman aö þvi þeg- ar fólk kannast viö kringum- stæðumaroghlær, vegna þess aö þaö er feimið. Þaö verður aö fást viö mannlega hegöan og gildis- mat. Þegar ég skapaöi aöalpersón- una I „Sólarlandaferöinni” haföi ég í huga að gera hann aö fórnar- lambi nútlma þjóöfélagsins. Hann er saklaus og stendur fyrir hversdagslegt fólk i Sviþjóö. Hann er i leiöinlegri vinnú og er aö reyna aö lifa eftir hugmynd- um, sem aö honum eru réttar. Þaö er mjög auövelt aö setja sig i spor litilmagnans. Hann gengur i allar þær gildrur, sem áhorfendur hafa gengið i og þeir hlægjá þegar þeir sjá þaö.” —Hvernig er staöan I sænskri kvikmyndagerö núna? „,Þaö er aö koma upp ný kyn- slóö af kvikmyndageröarmönn- um, sem hefur endurnýjað sænska kvikmyndagerö. Ég get nefnt Lasse Hallström, sem geröi myndina „Ég á von á barni” og Mats Arehn, sem hefur gert gam- anþriller, sem heitir „Maöurinn sem varð milljónamæringur”. Þá eru einnig margir sem feta i fót- spor Bergmans og gera þungar kvikmyndir og sumar þeirra eru mjög góðar. Til þess aö kvikmyndalistin þróist, verður aö gera framúr- stefnukvikmyndir, en einnig myndir eins og viö erum aö gera, myndir sem almenningur fer aö sjá. 1 Sviþjóö borga allar sænskar kvikmyndir 10% til sænsku kvik- myndastofnunarinnar svo hægt sé að gera aðrar myndir. Kvik- myndageröarmenn fá lán en ef myndin misheppnast, þurfa þeir ekkert aö borga til baka, en ef hún gengur vel aftur á móti, þurfa þeir aö endurgreiöa lániö. Fyrsta kvikmyndin min, sem hefur halað inn meiri tekjur en nokkur önnur sænsk kvikmynd, hefur þvi borgaö eina framúrstefnukvik- mynd. Okkur Bo Jonsson hefur tekist aö sýna og sanna meö myndum okkar, aö þaö er hægt aö gera góöar kvikmyndir sem almenn- ingur flykkist á. Aöaláhugamál okkar var ekki að græöa peninga, heldur að fá fólk til að hlægja.” —Hvaö meö næstu mynd? „Ég veit ekki um hvað hún veröur, né hvar eöa hvenær hún veröur gerö.” —Veröur þaö gamanmynd? „Já, ég ætla aö halda mig viö þaö. Ég myndi hlægja aö sjálfum mér, ef ég ætlaöi að gera alvar- lega mynd. Þaö er ekki mín deild.” „Ég get sagt þaö i fullri hrein- Stig Helmer og félagar ræ&a viö ieiösögumanninn hjá feröaskrifstof- skilni, aö mig langar ekkert til aö unni Sun Trip. veröa rfkur og frægur”.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.