Helgarpósturinn - 15.08.1980, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 15.08.1980, Blaðsíða 10
10 Guöjón, Sverrir sonur hans og gullfiskarnir. Gæludýr: „byrjaði með HORNSÍLUM” Rætt vlð Gudjón Sverrisson um gullfiskaeldi ,,t>etta byrjaði hjá mér, eins og svo mörgum strákum i Vestur- bænum, með hornsilum úr Tjörn- inni. Siðan hef ég verið nær ósiitið með físka. Ætli það hafi ekki fall- ið út svona 5 ár,” sagði Guðjón Sverrisson, prentari, en hann hef- ur komið sér upp góðum gull- fiskabúrum meö 9 tegundum fiska. Guðjón er með tvö búr og tekur annað þeirra 120 litra af vatni. Hann sagði, að þetta væri litiö hjá sérmiðaö við marga aðra. Sumir væru með heilu veggina i stofun- um hjá sér þakta gullfiskabiirum og aðrir væru búnir að fylla bil- skúrana hjá sér. „Þetta getur orðið della hjá fólki eins og hvað annað,” sagði hann. „Ég byrjaði á þessu núna fyrir krakkana, en ég held mér finnistþaö ennþá skemmmtilegra núna en þegar ég var strákur. Núna hefur maður rýmri fjárráð og getur þvi frekar keypt sér nýja fiska og tilheyrandi útbúnaö.” Annars kvað hann þetta tiltölu- lega ódýrt sport. Nýiega kostaði 120 litra búrið 27 þúsund krónur og fiskarnir kosta frá 700 krónum og allt upp I 12 þúsund. Auk búrsins og fiskanna, þarf til gullfiskaeldis hreinsitæki, lýs- ingu og fiskamat. Búrin hjá Guð- jóni eru mjög falleg. Hann hefur mislita mölí botninum, skemmti- legan gróöur og stóra steina, sem mynda göng fyrir fiskana til að synda i gegnum. Guðjón sagöi, að þaö væri mjög gaman að fylgjast meö fiskunum og það væri ákaflega róandi. Vinnan við þetta væri hins vegar ekki mikil. Aöeins þarf að gefa þeim að boröa tvisvar á dag og skipta um vatn i búrinu stöku sinnum. „Það er um að gera fyrir fólk aö byrja smátt. Það ræöst mjög fljótlega hvort fólk hefur ánægju af þessu og þegar búið er aö koma sér upp mörgum fiskum, þýði.r ekki að fá leið á þeim. Þetta eru lifandidýr og þau verða að fá sina umhugsun.” Guðjón lét vel af þjónustunni í gæludýrabúöunum. Hann sagði að nú væri hægt að fá fjölmargar tegundir af fiskum, skjaldbökum og jafnvel fengjust froskar. Auk þess fást öll tæki, fóður og meðul. Þetta veldur þvi, að mun minni fyrirhöfn er nú við það að hafa fiskabúr en áður var. Fostudagur i5. ágúst 1980_h&lgdrposturinrL Umsjón: Sigurveig Jónsdóttir _________________Hundahald: „TALSVERÐ VINNA, EN ÁNÆGJULEG” — segir Matthias Pétursson Jóhannes Friörik, Matthias og Halldóra Gyöa ásamt vini sinum Pflu. „Þaö fylgir þvi talsverö vinna aö hafa hund, en hún er ánægju- leg”, sagöi Matthias Pétursson, formaður sýningarnefndar Hundaræktarfélags íslands, þegar HP ræddi viö hann um sivaxandi áhugamál þéttbýlis- búa, hundahald. Matthias og fjölskylda hans hafa átt hund i 5 ár. Það er hrein- ræktuð tik af Labrador-kyni og hefur hún nú tvivegis eignast hvolpa. Matthias kvað ekkert vandamái hafa verið að selja hvolpana, þvi þar eru margir fyrir einn. Hitt væri erfiðara að velja eigendurna. Hundahaldið er nú farið að gleypa mestallan fritima Matt- hiasar og konu hans, Friðu Proppé, sérstaklega vegna félagsmálanna, sem þau taka mikinn þátt i. Hundaræktar- félagið var stofnað m.a. til að koma I veg fyrir útrýmingu islenska hundsins. Ahugi fólks fyrir félaginu hefur aukist mikið siðustu árin, sem sést best á þvi að félögum hefur fjölgað úr 60 I 360 á þrem árum. Félagið hefur haldið tvær hunda- sýningar, sem voru mjög fjöl- sóttar. 1 tengslum við þær hafa verið fengnir hingaö breskir hundaræktendur og danskur dýralæknir með þekkingu og reynslu i hundaræktun. „Það sem hefur helst staðið hundaræktunfyrir þrifum hér eru hinarströngu reglur um innflutn- ing á hundum,” sagði Matthias. „Þessar reglur eru bæði ein- kennilegar og hjákátlegar. Við vitum, að vegna þeirra smygla menninn hundum,en þaðer mjög varhugavert. Smyglaðir hundar geta komið hvaöan sem er og með hvaða smit sem er. Þaö getur enginn fylgst með þvi.” Fjölgun hreinræktaðra hunda á sér nú aðallega stað með inn- lendri ræktun, en vegna skyld- leika er nú verið aö athuga mögu- leika á aö fá flutt inn sæði. Matt- hias sagði, aö skilningur fólks á ræktun hefði aukist mjög og fólk geröi sér grein fyrir kostum þess að eiga hund meö ættartölur i báðar ættir. Með þvi móti veit fólkhvaðþaðermeð i höndunum, hvort hundurinn er grimmur eða góður og hvaða eiginleika aðra hann hefur. Auk þess fylgja hreinræktuðum hundum vottorð um skoðun dýralæknis á hvolpin- um og foreldrum hans. Hreinræktaðir hvolpar kosta nú 250-300 þúsund krónur stykkið, en þrátt fyrir það er eftirspurnin meirien framboöið. Söluveröiðer ekki hreinn ágóöi ræktandans, þvi uppeldi hvolpanna krefst geysi- mikillar vinnu, auk þess sem fóður þeirra þær 8 vikur, sem þeir eru hjá móðurinni, kostar sitt. Hundaræktarfélagið heldur námskeið I meöferð hunda, bæði hvolpanámskeið og hlýðninám- skeið. Þessi námskeið hafa verið mjög mikiö sótt. Nú er verið að smiða hús, sem nota á sem hundagæsluheimili, þegar eig- endur hundanna þurfa aö komast i burtu. Þetta hús er ætlaö fyrir 10-12 hunda og er áætlaður bygg- ingarkostnaður 15 milljónir króna. Enn hefur húsinu ekki veriö valinn staður, en ætlunin er að þaö verði i nágrenni Reykja- vikur. Hundahald er leyft I Garðabæ og er haft eftirlit af bæjarins hálfu meðhundunum. Mönnum er gert að greiöa sérstakan hunda- skatt, en fá i staðinn ýmsa þjón- ustu, svo sem hundahreinsun. Matthias sagði, að bann við hundahaldi i Reykjavik væri tóm vitleysa. Vitað væri að þar væri fullt af hundum, en eftirlitiö er ekkert. „Tikin okkar er fjölskyldu- vinur,” sagði hann. ,,Mér finnst mikilvægt fyrir börnin aö fá að umgangast dýr og þau hafa gott af aö kynnast trygglyndi hund- anna. En það þarf að muna, að hundur er lifandi vera, sem þarfnast góörar umhugsunar.” Að vinna spil á öruggan hátt — án þess að svína Þvi miöur eru alltof margir bridge-spilarar sem sjá ekki aöra leið til að vinna spilið en að svina. Svlnan er ávallt 50% áhætta og heppnast — þvi miður — alltof sjaldan. Þess vegna er nauðsynlegt að svina sem sjaldnast en í þess stað að tæma litina og nota svokallaöa ein- angrun, „elimination”. 1 dag ætla ég aö sýna ykkur gott dæmi um hvernig vinna má spil á öruggan hátt með þvi aö svína ekki. ÞU situr I sæti suöurs og opnar á einu laufi (viö notum ekki lauf sem gervisögn eins og I gamla Vinarkerfinu). Noröur svarar meö þremur laufum. Úr þvi að þú færð svona hressilegt svar og ert sjálfur meö 19 punkta (Gohren-punkta) læturöu þér ekki nægja minna en sex lauf. Vestur spilar hjarta fjarka. Oll spilin eru svona: S 987 H AD T D4 L A97542 S G65 H KG972 T 10852 L 6 S AD4 H 63 T AK6 L KDG103 Nú máttu ekki falla fyrir freistingunni og svina og hugsa sem svo, að ef þaö mistekst, getir þú svínaö spaöanum. Tvær slikar svinur eru metnar á 75% möguleika, en þvi þá að nota 75 prósentin þegar þú hefir 100% i hendi þinni: Spaöinn er svo þéttur að auðvelt er að vinna spilið örugglega á eftirfarandi hátt: ÞU tekur útspilið meö ásnum. Þá tekurðu tromp andstæöing- anna, sem er fljótgert. Þá feröu I tigulinn. I þriöja tigul suöurs kastar þú hjarta dömunni og trompar hjarta hundinn þinn. Nú áttu aðeins svört spil eftir og andstæðingarnir eiga ekkert lauf. Nú er einangrunin full- xomin. Þú spilar spaða niu úr borðinu og lætur hana fara til vesturs. ! næsta útspili er hann þvingaður að spila þér I hag. Hann verður annaö hvort aö spila I tvöfalda eyðu, þar sem þú trompar annars vegar en kastar spaða niöur, eöa spila spaða upp I gaffal suðurs. Ef austur lætur spaðagosann gerir þaö ekkert lil Þú lætur drottninguna og taki vestur á kóng, er sama hvaö hann lætur, upp er kominn nýr gaffall hjá borðinu og þér. Til þess að skýra spila-aöferö þessa betur, er mér ljúft að taka annað stutt dæmi. Spiliö hér á undan sýndi hvernig komast á hjá svining- um, sem venjulega heppnast I hæsta lagi I annaðhvort sinn. En fleira kemur til greina. Stund- um vantar innkomur og þá kemur spila-tæknin i sambandi viö einangrunina aö notum. Þá spilum við andstæðingnum inn og þvingum hann til þess að spila okkur i hag. Litum á eftirfarandi spil, þarsem suöur á að vinna þrjú grönd: S D107 H D1052 T G742 L 65 S G8543 H 643 T 983 L 93 S A62 H AG9 T AKD L A742 Austur opnaöi i fyrstu hendi á einu laufi. Suður forhandar- doblaði. Vestur pass. Norður sagöi eitt hjarta. Austur pass og Suður fór þá i þrjú grönd. Vest- ur lét laufa niuna, austur tiuna og suður gaf. Hann gaf einnig laufa kóng en tók dömuna með ásnum. Vestur kastaöi hjarta þristi og borðið spaða sjöinu. Þessa tvo kónga sem úti eru, hlýtur austur að eiga, annars heföi hann ekki opnaö. Þvi mið- ur er engin innkoma I boröinu til þess að koma austri i millihönd. En þá er aö byrja að ein- angra. Fyrst tekur suður sina þrjá tfgla. Þá lætur hann sitt fjóröa lauf. Þessvegna tók ha,nn á ásinn i þriðja slag til þess að spila austri inn seinna. 1 fjórða laufiö lætur borðiö hjarta tvist. Austur er inni og lætur fimmta laufiö og þá er það búið og einangrað. Suður lætur spaöa tvist i laufið. Borðið lætur hjarta fimm. Nú getur austur ekkert spil látiö nema sér i óhag. Hvort sem hann lætur spaöa eða hjarta gefur suður og tekur meö drottningu norðurs. Tigulgosi er orðinn hæsta sþil og i hann losnar suður við spaða sexið.Nú er svinan tekin á hjartagosann og spilið er unniö. Austur fékk aöeins fjóra lauf- slagi. ÞU sérð lesandi góður að með þessari spilamennsku vinnast spil sem fjöldinn af fólki tapar. Æfðu þig I þessu og þú verður mun hæfari spilamaöur um leið og þú færð meiri ánægju út úr spilamennskunni. Seinna skal ég sýna ykkur slik dæmi. Fyrir tveim árum var haldið afar fjölmennt bridge mót i New Orleans. Þar voru veitt verö- laun fyrir „spil ársins”. Hin franska Dominique Pilon hreppti verðlaunin fyrir eftir- farandi spil: Vestur gefur. A-V á hættu. S 764 H ADG10 T G983 L 83 S 10 H K84 T AKD106 L D975 S ADG98532 H T 52 L A104 Pilon, vestur, sagði pass. Makker hennar Jais, opnaði á einum tigli. Piere Schemeil i suðri lokaðisögnum meö fjórum spööum. Pilon lét út tigul sjö. Jais tók á ás og kóng. Lét þriöja tigulinn sem suður trompaði meö spaða niu. Pilon yfirtromp- aði ekki en kastaði laufi. Nú var auöséð að austur átti bæöi trompin, kóng og tiu. Þvi lét suður litið lauf til þess að geta brátt trompaö I borði. Austur átti slaginn og spilaöi fjóröa tiglinum. Nú hentaði Pilon að yfirtrompa suður og taka sektarslaginn. Við hitt borðiö kom einnig tigull út I fjórum spööum. Vestur trompaði þriðja tigulinn með spaðakóng. Þaö- með lá spilið ljóst fyrir. Boröið átti tvær öruggar tromp inn- komur, svo aö hjartað nýttist. Kóngur austurs varð óvirkur gagnvart trompum suðurs. Þess utan spilaöi vestur hjarta, svo að kóngurinn kom siglandi á silfurfati. Hin frægu og eftirsóttu feg- urðar-verðlaun Bols verksmiðj- S K1032 H 10854 T G973 L 8 Skák: Goómundur Arnlaugsson — Spll: Frlórik Dungal ~ Söfnun: AAagni R. AAagnússon — Bllar: Þorgrímur Gestsson Spil 1 dag skrlfar Friörlk Dungal um spil iVURH S K9 H K87 T 1065 L KDG108 S K H 976532 T 74 L KG62

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.