Morgunblaðið - 28.07.1982, Blaðsíða 12
44
MORGUNBLADIÐ, MIDVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 1982
Vaxandi vin-
sældir Kajak
íþróttarinnar
• Kajak .sijrlin^ar á straumvötnum
hér á landi eiga vaxandi vinsældum
að fagna, enda þvkja islensk
straumvötn henta vel fyrir íþróttina.
Hér á landi er starfandi nokkurra
ára gamall kajak-klúbhur og hefur
félagatala hans farið hækkandi jafnt
og þétt. Þeir félagarnir eru gjarnan á
hinum tæru bergvatnsám að vorlagi,
eða áður en laxinn gengur í árnar, en
þá færa þeir sig yfir á jökulvötnin.
Þeir hafa mikið verið á Norðurá á
vorin, en Hvítá hjá Húsafelli og
Þjórsá taka síðan við þegar laxveiði-
timinn gengur í garð.
Hér er augsýnilega um ofurhuga-
íþrótt að ræða og ekki á hvers manns
færi að ráða við, a.m.k. ekki æf-
ingarlaust. Talsmenn kajak-íþróttar-
innar segja þó, að sé fvllsta öryggis
gætt sé íþrótt þessi síst hættulegri en
hver önnur.
Ægir sigraði Aldursflokkamótið
- Bolvíkingar komu mest á ðvart
llm helgina fór fram á Akureyri
fjölmennasta sundmót ársins, aldurs-
flokkamótið. Alls mættu 228 kepp-
endur til mótsins, 16 ára og yngri, en
miklu fjölmennastir voru krakkar á
aldrinum 12—14 ára. Aldursflokka-
mótið er árlegur viðburður, en hér
eftir fer llnglingameistaramót ís-
lands fram annað hvert ár en tillaga
þar um var samþykkt á þingi Sund-
sambandsins er fram fór á Akureyri
jafnframt mótinu. Fyrir okkar yngsta
afreksfólk er það stór stund að keppa
á svo stóru móti sem þessu og hafa
stjórnendur þessara móta lagt ofur-
kapp á að flest standist er viðkemur
framkvæmd mótsins og er það firna
mikið starf.
A meðan á mótinu stóð tókst
undirrituðum að hafa upp á nokkr-
um mönnum er voru í eldlínunni
þessa daga og varð Guðmundur
Árnason form. mótanefndar fyrst-
ur á vegi okkar. Hann sagði þetta
gott mót þó lítið væri um met og
lagði áherslu á að þau Guðrún
Fema og Eðvarð Þ. Eðvarðs væru
bæði þreytt eftir miklar æfingar
enda stíla þau upp á unglinga-
meistaramótið í Innsbruck 26.-29.
ágúst nk. Því má skjóta að svona í
framhjáhlaupi að þau tóku þátt í
samtals 10 einstaklingsgreinum og
unnu þær allar, þau eru hápunkt-
urinn á gróskumiklu unglingastarfi
undanfarinna ára. Guðmundur
lagði á það áherzlu að breiddin
væri greinilega að aukast verulega
og lýsti yfir ánægju sinni með þá
þróun. Hér á árum áður fékk Ægir
þetta 350 —400 stig (af rúmlega
800) en nær nú rétt 200 stigum svo
hver maður sér að breiddin er stór-
lega að aukast. Guðmundur sagði
ennfremur að stærsti hluti kepp-
enda væri undir 14 ára aldri og því
til stuðnings voru 54 stúlkur í einni
grein 14 ára og yngri og giska má
að um 140 þátttakendur hafi verið
undir 14 ára. Guðmundur vildi að
lokum þakka Akureyringum fyrir
góða stjórn og sagði hið góða veður
báða dagana vissulega hafa gert
sitt til þess að tryggja skemmtilegt
mót.
Eftir mikla leit tókst að hafa upp
á Guðfinni Ólafssyni, formanni
Sundsambandsins, en hann var
skiljanlega ákaflega önnum kafinn
allt mótið. Guðfinnur hafði þetta
um málið að segja: „Þátttakendum
virðist stöðugt fjölga, í einni grein-
inni eru um 60 þátttakendur. Sú
þróun hefur átt sér stað að liðin
eru jafnari, færri toppar. Áður
hafði lið eins og t.a.m. Ægir marga
topp-sundmenn en nú hefur ekkert
lið slíkan hóp og því dreifast stigin
mun meira en áður. Liðin eru
kannski með 1—2 er skara fram úr
en engan hóp. Keppnin er sem sagt
orðin jafnari. Bolvíkingar eru nú í
öðru sæti á sínu öðru aldursflokka-
móti og segir það eitt sína sögu um
þær framfarir er hafa átt sér stað
víða. Á stað eins og Bolungarvík
þarf að vera traust og gott fólk til
að ná slíkum árangri og kemur
Auðunn þjálfari þeirra mest á
óvart allra okkar þjálfara. Auðunn
byrjar fyrir vestan um áramótin
1980—81 og hefur sýnt ótrúlega
hæfni, hann hefur sýnt mikinn
dugnað við þekkingarleit og þróað
sjálfan sig sem þjálfara en annars
er bezt fyrir þig að ræða við Auð-
unn sjálfan," og þar með var for-
maðurinn rokinn til starfa. Auð-
unn þessi er Eiríksson og er frá
Reykjavík og synti hér á árum áður
fyrir ÍR en fluttist vestur fyrir
u.þ.b. 2 árum og hóf þá að kenna
íþróttir en var síðan beðinn um að
taka við þjálfun sundliðsins.
Auðunn kvaðst hafa tekið eftir
því strax hvað börnin á Bolungar-
vík stóðu t.d. Reykjavíkurbörnum
langtum framar í sundlistinni
svona almennt tekið. Auðunn hélt
áfram: „Fyrsta sundmótið var
landsmótið síðastliðið sumar og
kom þar fram góður árangur er lof-
aði góðu. Næst var það aldurs-
flokkamótið á Siglufirði og þar
höfnuðum við í fimmta sæti og
sáum þá fram á að með aukinni
þjálfun og einbeitni gætum við náð
miklu mun lengra og það hefur tek-
ist. Krakkarnir hafa sýnt einstak-
an áhuga og elju. Aðstæður fyrir
vestan eru jú góðar en okkur vant-
ar tilfinnanlega löglega laug fyrir
mót eins og t.d. þetta hér. Við æf-
um að jafnaði 6 sinnum í viku
hverri, rúman klukkutíma í senn,
og hef ég að jafnaði 12—15 manna
hóp. Breiddin er ágæt og 8—10
manna hópur er mjög jafn og sam-
stilltur. Þaö má ekki gleyma þætti
Guðmundu Jónasdóttur sem hefur
verið með yngsta hópinn í sínum
höndum og skilað ákaflega góðu
starfi." Svo mörg voru þau orð eina
af okkar efnilegustu sundþjálfur-
um og geta efalítið margir dregið
einhvern lærdóm af þessu.
Þrátt fyrir aukna keppni reynd-
ist Ægir vera hinn öruggi sigurveg-
ari með sín 200,stig en munurinn
minnkar og spennan eykst og er
það von allra að í náinni framtfð
verði um enn meiri keppni og fram-
farir að ræða í þessari hollu íþrótt.
MÞ
3. DEILD:
Mikil barátta fyrir norðan
Margir fjörugur leikir fóru
fratn í 3. og 4. deiidarkeppn-
inni í knattspyrnu fyrir norð-
an um helgina.
Leiftur frá Ólafsfirði hefur nú
yfirburðastöðu í sínum riðli í 4.
deildinni og Reynir marði sigur í
sínum. Það væri synd að segja að
3. deildin væri ekki spennandi
þar sem enn eru 4 lið, sem góða
möguleika eiga á sigri og þar sem
þau eiga óleikna innbyrðis leiki
er ógjörningur að spá nokkru.
3. deild:
Arroðinn — HSÞ-b 2:6 (2:0)
Mikið hvassviðri setti mjög
svip sinn á leik þennan og á efa-
lítið sinn stóra þátt í þeim sveifl-
um sem eru milli hálfleikanna.
Örn Tryggvason og Helgi Jó-
hannsson skora fyrir heimamenn
í fyrri hálfleik. og virtust þeir
líklegir til alls. En í síðari hálf-
leiknum byrja mistökin og þeir
færa Mývetningum hvert færið
af öðru á silfurfari og slíkt
kunnu aðkomumenn vel að meta.
Sóphanías Árnason gerði 3,
„hat-trick“, Gunnar Blöndal,
Ragnar Þórðarson og Jónas
Skúlason skoruðu sitt markið
hver en Jónas varð fyrir þeirri
óheppni að brotna á fæti eftir
samstuð.
KS — Huginn 5:0 (3:0)
Sem oftar áður voru Siglfirð-
ingar erfiðir heim að sækja og
sigurinn gat auðveidlega orðið
enn stærri. Siglfirðingar voru
mun betri aðilinn frá fyrstu mín-
útu til þeirrar síðustu en þeir Óli
Agnarsson 2 (kominn með 17
mörk), Björn Ingimarsson, Haf-
þór Kolbeinsson og Þorgeir
Reynisson skoruðu fyrir KS sem
nú hefur langt bezta markahlut-
fall þeirra liða er berjast um sig-
urinn í riðlinum.
4. deild:
Vaskur — Nvarfdælir 1:0 (0:0)
Hér áttust við botnlið riðilsins
og var knattspyrnan lengstum í
samræmi við það, dæmigerð 4.
deildar knattspyrna — löng
spörk og há, þó leikið væri á hin-
um ágæta Akureyrarvelli. Akur-
eyringarnir voru sterkari aðilinn
og mark það er Hákon Hákon-
arson gerði var sanngjarnt.
Dagsbrún — Vorboðinn 1:3 (1:1)
Fyrri hálfleikur þessa leiks var
jafn og slakur. Miðjuþóf og lítið
samspil. Það var svo Páll Þór
Ómarsson sem greiddi úr flækj-
unni og eftir einleik mikinn skor-
aði hann gott mark. Sigursteinn
Vestmann jafnaði fyrir heima-
menn fyrir hlé en Vorboðamenn
mættu virkilega ákveðnir til
leiks i síðari hálfleik og sigruðu
örugglega með mörkum Smára
Víglundssonar og Þrastar Jóns-
sonar.
Hvöt — Leiftur 2:5 (0:5)
Hávaðarok var allan leikinn og
kom vitanlega mjög niður á sam-
leik beggja. leiftur hafði firna yf-
irburði í fyrri hálfleik og þá
skoruðu þeir Leiftursmenn 5
mörk, Sigurbjörn Jakobsson 2,
Hafsteinn Jak., Stefán Jak. og
Geir Hörður Ágústsson eitt hver.
Fátt benti til annars en að þetta
yrðu lokaúrslitin en heimamönn-
um tókst að koma 2 inn síðustu
6—7 mín.
Theódór þjálfari Hvatar skor-
aði mörk liðsins en yfirburða sig-
ur Leifturs var fyllilega sann-
gjarn.
Glóðafeykir — Reynir Á 1:1 (1:1)
Toppuppgjörinu í riðlinum
lauk með sanngjörnu jafntefli
eftir heiftarlega baráttu. Reynir
komst í 1:0, með marki um miðj-
an hálflejkinn, en Reynir Jóns-
son jafnaði fljótlega fyrir heima-
menn og þar við sat. Árangur
Glóðafeykis er einkar athyglis-
verður og verða þeir eflaust
sterkir að ári, fái þeir þjálfara!
Þeir fengu ekki spjald í allt
sumar, prúðir strákar það!
- MÞ.