Morgunblaðið - 02.12.1984, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 02.12.1984, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1984 Frá ísafirði til Akureyrar Kaflar úr bókinni Jón G. Sólnes Halldór Halldórsson og Jón G. Sólnes vinna að sjálfsKvisögn Jóns. Um þessar mundir kemur út hjá Erni og Örlygi bókin Jón G. Sólnes, skráð af Halldóri Halldórssyni blaðamanni. í bókinni segir Jón frá lífshlaupi sínu frá æsku og fram á þennan dag. Áherzlur eftir tímabil- um í ævi Jóns eru misjafn- ar og mest er dvalið við af- skipti hans af stjórnmál- um, bæði á Akureyri og á Alþingi, auk starfa í og á vegum Sjálfstæðisflokks- ins. Morgunblaðið hefur fengið leyfi til að birta stutta kafla úr upphafs- kafla bókarinnar, „Frá ísa- firði til Akureyrar", en þar lýsir Jón Sólnes þætti í lífi sínu sem fæstir þekkja. „Þú mátt eiga migu Sjálfstæðismaðurinn og kapít- alistinn Jón Guðmundsson Sólnes er fæddur i „Félagsbakaríinu" við Silfurgötu á ísafirði. Hús þetta byggði séra Guðmundur i Gufudal, sem oft er kallaður guðfaðir krat- anna á ísafirði, og stendur húsið enn. Jón fæddist i þennan heim 30. september 1910. Faðir hans var Guðmundur Þorkelsson, sjómað- ur, og móðir Hólmfríður Jónsdótt- ir kona hans. Tveggja ára gamall var Jón settur í fóstur, vegna veikinda móður sinnar, sem þurfti að leita sér lækninga i Reykjavik. Þau, sem tóku þennan unga pilt i fóstur um stundarsakir, voru Lilja Daníelsdóttir Sólnes og Eð- varð Sólnes, norskur sjómaður, sem hafði fest ráð sitt á íslandi. Þarna á heimili Sólneshjónanna var barn Lilju, Valgerður Björns- dóttir. Jóni Guðmundssyni líkaði vistin vel á Tangagötu, þar sem þau hjón bjuggu, og hefur hva; eftir annað farið fallegum orðui. um fósturforeldra sína og fóstur- systur. En vistin var stutt að þessu sinni. Hólmfríður móðir hans kom aftur til ísafjarðar og ungi maður- inn fór heim til sín. En sveinninn ungi var snemma kominn með sjálfstæðan vilja og skap til að fá sitt fram. Ekki löngu eftir að hann var aftur kominn heim tók hann sig til og arkaði út á Tangagötu, bankaði að dyrum og sagði við Lilju, sem stóð i dyrunum: „Þú mátt eiga mig, og ég vil vera hjá ykkur.“ Sólnes vissi snemma hvað hann vildi. Það hefur ekki breytzt. Og upp frá því urðu Lilja og Eð- varð mamma og pabbi piltsins og Valgerður systir hans. Sólnes- nafnið tók Jón Guðmundsson ekki upp fyrr en 1936, þá 26 ára gamall, og auglýsti hann nafnbreytinguna í Islendingi á Akureyri. Fósturfaðir Jóns hét fullu nafni "Elðvarð Gabrielsen Solnes og er Sólnes-nafnið dregið af heiti á grasbýli, sem fjölskylda hans átti norður af Björgvin I Noregi. Jón tók upp nafnið að ósk móður sinn- ar skömmu eftir að fósturfaðir hans drukknaði, þegar „Drottn- ingin" sigldi á síldarbát, sem hann var á. Þetta gerðist í mikilli þoku og vondu veðri í september 1936 út af Siglufirði. Alls átti Hólmfríður 13 börn, þar af sjö af fyrra hjónabandi og eru þau alsystkin Jóns. Hins vegar rofnuðu öll tengsl Jóns við sitt fólk eftir að hann flutti með fóst- urforeldrum sínum frá ísafirði til Siglufjarðar fimm ára gamall. Hann hitti ekki móður sína aftur fyrr en hann fór I fyrsta skipti til Reykjavíkur 1931, þá tvítugur að aldri. Jón vissi hvar hún átti heima í Reykjavík, fór þangað og spurði um Hólmfríði Jónsdóttur. Þegar hún kom I dyrnar sagði ungi mað- urinn: „Komið þér sælar, ég er víst sonur yðar.“ Þá var móðir hans honum svo ókunnug, að hann þér- aði hana. Alsystkini Jóns eru Ragnar (dá- inn), Áróra, Jens (dáinn), Garðar (dáinn), Hulda og Sigurlaug. Síðari maður Hólmfríðar hét Sigurgisli Jónsson frá Skagnesi í Mýrdal. Hálfsystkini Jóns eru: Ásthildur, Hrefna, Guðný, Sigríð- ur, Hrafnhildur og Hrafnkell, en hann dó tveggja ára gamall. Þegar Jón var barn að aldri var það mjög algengt, að heimili tvístruðust vegna veikinda eða annarra emðra heimilisaðstæðna. Þá var það aðlilegasti hlutur í heimi að vera ^ettur í fóstur hjá vandalausum. Jón var ákaflega sæll og sáttur með sitt hlutskipti. Hjá Lilju og Eðvarð naut hann ástríkis og um- hyggju, eins og hann væri þeirra eigin sonur og hann telur sig hafa verið lánsaman mann að hafa lent hjá pabba og mömmu, eins og hann kallar Lilju og Eðvarð ávallt. Það var Jón, sem þurfti að til- kynna Lilju móður sinni að Eð- varð hefði drukknað. Það var erfið stund, segir Jón. Og hann minnir á það, að þetta hafi verið í annað sinn, sem Lilja missti eiginmann sinn í greipar Ægis. Þegar Lilja gekk með Valgerði fórst þáverandi eiginmaður hennar á bát út af Böggvisstaðasandi (sem nú heitir Dalvík). Hann hét Björn Sigfús- son, bróðir Snorra Sigfússonar, skólastjóra. Það situr á engan hátt í mér, að ég skuli vera fósturbarn og hafa ekki alizt upp hjá eiginlegri móður minni. Ég sætti svo góðu atlæti í æsku, og ég var elskaður svo mikið af foreldrum mínum. Ég tala nú ekki um ást Eðvarðs á mér. Sjálf- ur átti hann ekkert barn, þvi Lilja og hann eignuðust ekki barn sam- an. Og svo var Valgerður systir mín mér mjög góð. Hún var að vísu ellefu árum eldri en ég, en samband okkar varð einlægara og innilegra eftir því, sem við elt- umst. Ég var 5 ára, þegar við fluttum til Siglufjarðar og einmitt um það leyti frétti ég að Hólmfríður og Guðmundur, foreldrar mínir, hefðu skilið og systkinum mínum verið komið fyrir hingað og þang- að. Að eiga gotterís- búð og bíó Á Siglufirði bjó ég til 9 ára ald- urs. Það voru dýrleg ár. Þessi tíma á Siglufirði var dásamlegur. Ég upplifði spennuna og lætin, þegar íbúatalan margfaldaðist þarna á sumrin. Allir voru á kafi í vinnu og við guttarnir fórum bara að sofa, þegar við vorum syfjaðir. Það var ekkert verið *ð kalla: Klukkan er orðin átta! Við vorum frjálsir eins og fuglar himinsins. Og þarna spiluðum við stikk og gerðum allar kúnstir. Þetta var svo frjálslegt og gaman. Ég á ákaflega ljúfar minningar frá þessum ungu árum mínum, þegar ég var að mótast og var opinn fyrir öllu. Það var á Siglufirði, sem ég fór fyrst í bíó. Það var hrein bylting í skemmtanalífinu. Það var kaup- maður þar, sem rak bíóið yfir sumarmánuðina, þegar allur þessi fjöldi fólks streymdi í bæinn. Og þau voru ófá fyrirtækin á Siglu- firði sem eingöngu voru rekin i þrjá mánuði á ári. En þessi maður rak sjoppu á mjög góðum stað í bænum, og svo setti hann á stofn bfó. Og við strákarnir vorum að fíló- sófera um það, að hærra væri ekki hægt að komast f heiminum held- ur en að eiga gotterísbúð og svo bfó. Annað væri alveg útilokið. Það var ekki hægt að komast hærra. Þessir félagar mfnir á Siglufirði voru Tommi læknisins, sonur Tómasar Hallgrfmssonar, héraðslæknis, Þráinn Sigurðsson, Þorvaldur Amsnes, Þráinn Sig- urðsson, Addi Fríðu (Einarsson). Tommi var „bandíttaforinginn" í hópnum. Við vorum nú saklausir. Þó stal, til að mynda, einn kaup- mannssonurinn sígarettum úr búð pabba síns. Ég man enn þann dag í dag hvað tegundin hét. Það voru „Motor“ sfgarettur. Ég hef verið 9 ára gamall, þegar ég byrjaði að reykja. Þá voru tunnustaflarnir um allt á Siglufirði og við fórum nokkrir og lokuðum okkur þannig inni, að við fórum hver ofan í sína tunnuna og reyktum. Og svo var sponsgat á tunnunni og f gegnum þau gátum við talað saman. En einn af okkur gubbaði og slapp þannig við að reykja eftir það. Þetta nægði honum. Ég veit ekki hvernig stendur á því, en í gamla daga urðu menn alltaf gulir á fingrunum af reykingum, og við strákarnir fórum eins og helvftis asnar og slfpuðum á okkur putt- ana á hverfisteinum. En engum okkar datt f hug, að það gæti fund- izt lykt úr munninum á okkur. Þetta fikt komst samt ekki upp. En eftir að ég kom til Akureyrar þá steinhætti ég þessu sígarettu- fikti þangað til ég var orðinn 15 ára gamall. Það var mikill sigur, þegar fjöl- skyldan gafst upp á því að fá mig til að hætta þessu, og Valgerður gaf mér peninga fyrir Mossrose- pakka og pfpu. Það var munur að geta staðið úti á götu og reykt og púað. Þegar ræfilsgreyin, félagar mínir, voru að læðast á bak við hús. Ég var 16 ára gamall, þegar þetta var. En svo hætti ég eftir um það bil 30 ár. Á Siglufirði bjuggum við við að- algötuna f stóru timburhúsi, þar sem voru íbúðir og mötuneyti fyrir síldarfólkið. Yfir veturinn var húsið nánast tómt. Þar bjugg- um við og ein önnur fjölskylda. Hugsaðu þér einangrunina, þeg- ar sfðasta tunnan var farin. Þá heyrðum við ekki neitt í neinu all- an þennan dimma, langa vetur. En ég minnist þess ekki, að það hafi verið leiðinlegt yfir veturinn. Og það var alltaf spenna f loftinu á vorin, þegar bátarnir fóru að koma. Valgerður, systir mín, var með smábarnaskóla um tfma þau fjög- ur ár, sem ég var þarna og Lilja móðir mfn hafði kennt mér að lesa úr Nýja testamentinu þannig, að ég stóð allvel f stykkinu þegar ég kom f 9 ára bekk í barnaskóla á Akureyri. Steinþór Guðmundsson, skólastjóri Barnaskóla íslands, prófaði mig og það gekk vel. Á Akureyri bjuggum við í Ytra-Melshúsi, þar sem heitir Oddagata núna. Það, ásamt Syð- ra-Melshúsi voru einu húsin á Brekkunni þá. Faðir minn var vél- stjóri og formaður hjá Ásgeiri Péturssyni útgerðarmanni, en fór sfðan sjálfur f útgerð. Það voru á vissan hátt viðbrigði að flytja til Akureyrar, því á Ak- ureyri var ekkert rafmagn. Það var komið á Siglufirði. Þess vegna þótti manni myrkrið oft yfirþyrm- andi, þegar við ætluðum að hitta strákana og þurftum að klöngrast niður brekkuna í kolniðamyrkri. Seldi kjöt í óþökk kaupmanna Ég varð fyrir miklum áhrifum af Lilju móður minni á alla lund. Kannski ekki sízt pólitískt. Hún var alin upp við það að þurfa að bjarga sér sjálf. Á Siglufirði seldi hún til dæmis kjöt f mötuneytinu fyrir bræður sína, bændurna, í óþökk kaupmanna. Hún var óskapleg einstaklingshyggju- manneskja. Miðað við efnahag heimilisins hefði átt að vera hljómgrunnur fyrir jafnaðar- stefnu. En hún mátti ekki heyra á það minnzt. Ég tala minna um Eðvarð, þótt mér hafi ekki þótt síður vænt um hann. En hann var hæglátur mað- ur. Hún gegndi meira forystuhlut- verki á heimilinu. Þar að auki var hann meira fjarvistum. Hann hafði gaman af þvf að lesa, en það var samt ekki til mikið af bókum á heimilinu. Peningarnir fóru í heimilið. Eðvarð kom frá barn- mörgu heimili. Við Inga höfum farið tvisvar sinnum á æskuslóðir hans, f seinna skiptið árið 1980, þegar hann hefði orðið 100 ára gamall. Hann átti tvær systur á lífi í fyrra. Á Akureyri vorum við, sem bjuggum á Brekkunni kallaðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.