Morgunblaðið - 02.12.1984, Page 68
68
MORGUNBLAÐID, SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1984
Tölvurnar og skólakerfið:
Að
losna
viÖ
staglið
Rætt við Karl Valgeir Jónsson,
kennara við Garðaskóla,
sem fengist hefur við gerð
kennsluforrita og tölvukennslu
Viðtal: BRAGI ÓSKARSSON
Morgunblaðiö/Emilfa
Karl Valgeir leiðbeinir við tölvunám.
Notkun tölvunnar í menntakerfum hefur farið
ört vaxandi hjá nágrannaþjóðum okkar undan-
farin ár og töluvert magn kennsluforrita er þeg-
ar fyrir hendi erlendis. Það má telja víst að
tölvan eigi mikla framtíð fyrir sér í skólastarf-
inu og eigi eftir að valda verulegum breytingum
á kennsluháttum í náinni framtíð. Töluverður
áhugi er á því meðal íslenzkra kennara að taka
tölvuna í notkun og semja íslenzk kennsluforrit
í hinum ýmsu greinum. Varðandi íslenzk
kennsluforrit er mikið starf óunnið en þau eru
að sjálfsögðu forsenda þess að tölvan nýtist við
kennslustörf.
egar ég frétti af því á dögun-
um að kennari við Garða-
skóla í Garðabæ, Karl Valgeir
Jónsson, hefði að undanförnu
fengizt við gerð kennsluforrita í
tengslum við tölvukennslu sem
hann annast fyrir skólann, fór ég
á fund hans og lagði fyrir hann
nokkrar spurningar.
Kennsluforrit
fyrir einkatölvur
„Ég hef haft áhuga á að gera
nothæf kennsluforrit fyrir einka-
tölvur og fengizt nokkuð við það,
sagði Karl. En það er tímafrekt að
gera góð kennsluforrit og ekkert
borgað fyrir — það eina sem ég
hef lokið við er kennsluforrit í for-
ritunarmálinu BASIC — það er 10
lexíur, sem skiptast í 30 æfingar.
Það er töluvert til af erlendum
kennsluforritum en mörg þeirra
sem ég hef séð eru fremur léleg.“
— Hvernig léleg?
„Kennsluforrit þurfa bæði að
innihalda upplýsingar og prófa
jafnframt kunnáttu nemandans —
ekki einvörðungu prófa, eins og
mörg erlend kennsluforrit gera.
Þetta er að vísu tímafrekt starf en
það ætti ekki að vera neinn vandi
að gera upprifjunarforrit t.d. í
málfræði og fleiri námsgreinum.
Sjálfur er ég stærðfræðikennari
og hef ég verið að vinna að því að
gera gott upprifjunarforrit í al-
gebru. Eins og þú sérð varð Sin-
clair-tölvan fyrir valinu hjá
okkur, og hef ég samið öll mín for-
rit fyrir hana. Það ætti hins vegar
ekki að vera mikið mál að breyta
þessum forritum fyrir aðrar al-
gengar tölvur s.s. BBC, Commo-
dore 64, Apple eða Atari."
— Hvers vegna völduð þið Sin-
clair Spectrum?
„Við vildum fá tölvu sem tæki
tölvumálið Logo, væri ódýr og sem
margir nemendu ættu. Eftir að
hafa velt málinu fyrir okkur völd-
um við Sinclair Spectrum, þótt
nokkrar aðrar kæmu sterklega til
álita.
Eini munurinn er að á Sinclair
og öðrum ódýrum tölvum er að
Spectrum hefur BASIC-skipanirn-
ar í lyklaborðinu, hverja í sínum
takka, en á öðrum tölvum eru þær
skrifaðar út.
Því verður ekki neitað að
Spectrum hefur mikið til að bera
miðað við verð. Þá er meðalverð
forrita lágt fyrir þessar tölvur og
úrvalið mikið.
Vinnsluforrit —
tölvutungumál
„Það sem þó réð úrslitum um að
við völdum hana er hversu sam-
tengibúnaður fyrir hana er ódýr.
Tölvuverið hjá okkur samanstend-
ur af níu tölvum, jafnmörgum
skermum og svo er þetta tengt
saman með samtengíbúnaði,
þannig að hægt er að hlaða allar
tölvurnar á svipstundu frá þeirri
tölvu sem kennarinn er með. Sam-
anlagt kostar þetta álíka mikið og
ein IBM PC-tölva.
Samtengibúnaður fyrir aðrar
tölvur gefur að vísu meiri mögu-
leika en hann er jafnframt dýrara
fyrirbæri. Auðvitað myndi það
líka vera betra að hafa með dýrari
tölvur en það myndi auka kostnað-
inn fram úr hófi.“
— Er ástæða til að kenna öllum
forritun?
„Nei, alls ekki. Við leggjum ein-
mitt áherzlu á gefa nemendum
færi á að kynna sér og læra á ein-
stök vinnsluforrit s.s. ritvinnslu-
forrit, gagnavinnsluforit (data-
base) og bókhaldsforrit (Vicicalk).
Samt eru margir nemendur sem
vilja læra tölvumálin og forritun
með þeim, og það er sjálfsagt að
koma.til móts við þá. Ég hallast
hins vegar meira og meira að því,
að leggja beri meiri áherzlu á að
kenna notkun forrita frekar en
tölvutungumálin.
Ég hef kennt notkun Tasword
Two, sem er að vísu ekki sérlega
fullkomið ritvinnsluforrit, en
þeim krökkum sem hafa lært það
gengur mikið betur að læra Word
Star og önnur áþekk ritvinnslufor-
rit sem stórar tölvur nota.
Hagnýt þekking
„Þá hef ég kennt notkun bók-
haldsforrits (Omnicalk) og gagna-
vinnsluforrita. Þó þessi forrit séu
smá miðað við það sem gerist í
atvinnulífinu, gerir þetta nám
nemendunum fært að skilja
hvernig svona forrit vinna, og eins
geta þau hagnýt sér kunnáttuna
töluvert í skólastarfinu.“
— Til hvers get nemendur notað
þessi forrit hér í skólanum?
„Svona forrit geta tvímælalaust
komið þeim að miklu gagni í
skólastarfinu. T.d. geta þau notað
ritvinnsluforritið heima til að
skrifa ritgerðir. Þau geta sett rit-
gerðirnar upp í tölvunni heima
hjá sér og gengið endanlega frá
þeim, tekið gögnin upp á segul-
band og notað svo prentarann í
skólanum til að prenta ritgerðirn-
ar út.“
— Hvað um tölvutungumálin?
„Ég hef nær eingöngu verið með
Logo og BASIC hér í skólanum.
Logo er alveg sérstaklega hag-
kvæmt við kennslu t.d. til að
kenna rúmfræði og hornafræði.
Tölvumálið Logo á mikla framtíð
fyrir sér í menntakerfinu, og ég tel
að Logo sé það tölvumál sem að-
gengilegast er yfir nemendur að
byrja á.
Forth er að vísu mjög hag-
kvæmt á litlum tölvum en hefur
takmarkað gildi nema fyrir þá
sem vilja læra mikið í forritun
Frá tölvuveri Garðaskóla. Nemendurnir eru ekki allir að læra það sama — sumir eru að læra Basic, aðrir Logo eða
ritvinnslu.