Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1988, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1988, Blaðsíða 28
MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1988. J* Fólk í fréttum Pálmi Jónsson, eigandi verslun- arinnar Hagkaups, var valinn maður ársins 1987 af ritstjóm DV á þriðjudaginn. Pálmi er fæddur 3. júní 1923 á Hofi á Höfðaströnd og lauk lögfræðiprófi frá H.í. 1951. Hann stundaði verslunarstörf í Reykjavík 1951-1959 og stofnaði verslunina Hagkaup 1959. Pálmi hefur rekið hana síðan, fyrst við Miklatorg, síðan í Lækjargötu og í Skeifunni og undir forystu hans var verslunarmiðstöðin Kringlan reist og opnuð 13. ágúst. Kona Pálma er Jónína Sigríður Gísla- dóttir, f. 8. desember 1921. Foreldr- ar hennar em Gísli Sigurður Sigurðsson, sjómaður í Hafnar- firði, og kona hans, Lilja Guð- mundsdóttir. Böm Pálma og Jónínu em: Sigurður Gísli, -f. 13. ágúst 1954, stjómarformaður Hag: kaups, kvæntur Guðmundu Þóris- dóttur og eiga þau einn son; Jón, f. 3. ágúst 1959, innkaupastjóri Hag- PálmiJónsson kaups, kvæntur Elísabetu Bjöms- dóttur og á hann tvö börn; Ingibjörg Stefanía, f. 12. apríl 1961, nemi í húsageröarlist í Bandaríkj- unum, gift Sigurbimi Jónssyni listmálara og eiga þau einn son, og Lilja Sigurlína, f. 10. desember 1967. Systir Páhna er Sólveig, f. 3. júní 1923, gift Ásberg Sigurðssyni, borg- arfógeta í Rvík, sonur þeirra er Jón, forstjóri Hagkaups. Foreldrar Pálma em Jón Jóns- son, b. á Hofi á Höfðaströnd, og kona hans, Sigurlína Bjömsdóttir. Meðal foðurbræðra Pálma em Pálmi, skrifstofustjóri Kveldúlfs, faðir Elínar blaöakonu, og Ólafur, búnaðarráðunautur í Skagafirði, faöir Sólveigar, framkvæmdastjóra Sambands íslenskra auglýsinga- stofa, konu Jónatans Þórmunds- sonar prófessors. Faðir Jóns var Jón, b. á Nautabúi í Skagafirði, bróðir Hannesar, föður Pálma rekt- ors og afa Hannesar Péturssonar skálds. Systir Jóns var Halldóra, amma Þórðar Bjömssonar, fv. rík- issaksóknara. Jón var sonur Péturs, b. í Valadal, Pálmasonar, b. í VaÚholti, Magnússonar, bróður Margrétar, langömmu Vigdísar, móður Gríms M. Helgasonar, for- stöðumanns handritadeildar Landsbókasafnsins. Móðir Jóns á Hofi var Sólveig Eggertsdóttir, Jónssonar, prests á Mælifelli, Sveinssonar, læknis og náttúra- fræðings í Vík, Pálssonar. Móðir Jóns var Þórunn Bjamadóttir landlæknis Pálssonar og konu hans, Rannveigar Skúladóttur landfógeta Magnússonar. Móðir Eggerts var Hólmfríður Jónsdóttir, prests í Reykjahlíð, Þorsteinsson- ar, forföður Reykjahlíöarættarinn- ar. Sigurlína er systir Andrésar, fv. útvarpsstjóra. Sigurlína er dóttir Bjöms, b. á Brekku í Seyluhreppi, Bjamasonar, b. á Þverá í Hrolleifs- dal, Jónssonar. Móðir Bjöms var Hallfríður Sölvadóttir, b. á Þverá, Þorlákssonar, b. á Reykjahóli, Er- lendssonar. Móðir Þorláks var Halldóra Þorláksdóttir. Móðir Halldóra var Guðrún Jónsdóttir, sýslumanns á Sólheimum, bróður Áma Magnússonar, prófessors og handritasafnara. Móðir Sigurlínu var Stefanía Ólafsdóttir vinnu- manns, síðast á Frostastöðum í Blönduhlíð, bróður Jóns, langafa Egils Bjamasonar, ráðunautar á Sauðárkróki, föður Vilhjálms, framk væmdastj óra Verslunarráðs. Jón var einnig langafi Sölva Sveinssonar, ritstjóra tímaritsins Sögu. Ólafúr var sonur Stefáns, b. á Garðshomi á Höfðaströnd, Jóns- sonar. Móðir Stefaníu var Ingibjörg Ólafsdóttir, b. í Háagerði á Höfða- strönd, bróður Ragnheiðar, langömmu Benedikts Sveinssonar, föður Einars skálds. Ragnheiður var einnig langamma Ólafar, Páími Jónsson. langömmu Jóhannesar Nordals. Ólafur var sonur Þorkels, b. á Bakka, Ólafssonar, bryta á Hólum, Jónssonar. Móöir Ólafs var Stein- unn Steingrímsdóttir, systir Jóns, afa Jóns Steingrímssonar „eld- prests“. Afmæli Katrín Magnea Guð- mundsdóttir Katrín Magnea Guðmundsdóttir, Stórholti 28, Reykjavík, er áttræð í dag. Katrín fæddist í Hákoti í Njarðvík en missti móður sína fjög- urra ára og ólst síðar upp hjá móðurömmu §inni, Katrínu An- drésdóttur frá Syðra-Langholti í Hreppum. Katrín giftist 3. septemb- er 1936 Helga Sveinssyni, f. 25. júlí 1908, d. 3. júni 1964, sóknarpresti og skáldi, sem var fyrst prestur á Hálsi í Fnjóskadal en siðar í Amar- bæli í Ölfusi og Hveragerði. For- eldrar Helga vora Sveinn Helgason, b. á Hvítsstöðum í Álfta- neshreppi i Mýrasýslu, og seinni kona hans, Elísabet Guðrún Jóns- dóttir. Börn Katrínar og Helga era: Haukur, f. 1. desember 1936, hag- fræðingur og aðstoðarritstjóri DV, kvæntur Nanci Lathrop Amold Helgason einkaritara, dóttur Lat- hrop Walker Amold, hershöfðingja og rithöfundar í Oak Park í Illino- is, og konu hans, Edith Henderson Schmitz Arnold, og María Katrín, f. 19. ágúst 1946, skurðhjúkrunar- kona í Kaupmannahöfn, gift Steen Kristoffersen verkfræðingi, syni Erling Kristoffersen og konu hans, Tove Eriksen Kristoffersen. Synir Mariu og Steens era Mikael, Daniel og Robert. Bróðir Katrínar fæddist andvana, 16. september 1912. Foreldrar Katrínar vora Guð- mundur Guðmundsson, f. 10. apríl 1876, d. 13. október 1918, b. í Tjam- arkoti í Njarðvík, og kona hans, Ragnheiður María Guömundsdótt- ir, f. 10. september 1870, d. 16. september 1912. Föðurbróðir Katr- ínar var Finnbogi í Tjamarkoti, faðir Guðmundar fræðimanns og Jónu Guðrúnar, móður Finnboga Kjeld, forstjóra Nesskips, Matthí- asar Kjeld læknis og Kristbjargar Kjeld leikkonu. Faðir Guðmundar var Guðmundur, b. í Tjamarkoti, Gíslason, tómthúsmanns í Útskál- um, Gíslasonar, b. á Tyrfingsstöð- um í Skagafirði, Jónssonar. Móðir Guðmundar var Guðrún Jónsdótt- ir, b. í Grímsfiósum í Stokkseyrar- hreppi, Bjamasonar. Móðir Guðrúnar var Guðrún Helgadóttir, b. og hreppstjóra í Brattsholti, bróður Jóns prests á Hrafnseyri, föður Sigurðar, föður Jóns forseta. Helgi var sonur Sigurðar, b. í Ás- garði í Grímsnesi, Ásmundssonar. Móðir Guðmundar var Guðfinna Eyjólfsdóttir, b. í Efrivatnahjáleigu í Landeyjum, Pálssonar, b. á Fossi á Síðu, Eiríkssonar. Móðir Guð- finnu var Salvör Bjamadóttir, b. í Efrivatnahjáleigu, Péturssonar og konu hans, Margrétar Guðmunds- dóttur. Hannes Ármann Vigfússon Hannes Armann Vigfússon raf- verktaki verður sextíu ára í dag. Hannes fæddist á Hrísnesi á Baröa- strönd en var tekinn sjö vikna í fóstur til Elínar Einarsdóttur og Elíasar Bjamasonar á Neðra-Vaðli á Barðaströnd og ólst þar upp þar til hann varð sextán ára. Hann var í vegavinnu næstu þrjú sumur og í fiski og byggingarvinnu á vetrum en hóf nám í rafvirkjun á Siglufirði vorið 1947. Hannes var þar í eitt ár en lauk námi og prófi í Reykjavík 1951. Hann stofnaði ásamt Þor- steini Sætran raftækjavinnustof- una Rafföng sf. og ráku þeir það fyrirtæki í tíu ár en síðan hefur Hannes rekið rafverktakastarfsemi í eigin nafni og hafa verkefnin ver- ið hönnun raflagna og lagnir í íbúðarhús, skóla og stórbyggingar. Hann keypti á síðasta ári verslun- ina Glóey hf. ásamt fiölskyldu sinni og verslar þar með rafvörur og -tæki. Hannes hefúr verið í forystu- sveit rafverktaka hátt á annan áratug og setið í stjóm Landssam- bands íslenskra rafverktaka og í stjóm Félags löggiltra rafverktaka i Reykjavík og verið formaður í tæp átta ár. Hann hefur átt sæti í Sam- bandsstjóm Landssambands iðnaðarmanna um árabil og í fram- kvæmdastjóm Landssambands iðnaöarmanna frá 1985. Kona Hannesar er Magdalena Ólafsdóttir. Foreldrar hennar era Ólafur Jóhannsson, skipstjóri á Siglufirði og síðar kaupmaður í Rauðagerði í Reykjavík, og kona hans, Sigurlína Jónsdóttir. Böm Hannesar og Magdalenu era Ómar, f. 4. september 1948, rafvirkjameist- ari á Seltjarnamesi, kvæntur Önnu Karlsdóttur og eiga þau þrjú böm; Elín, f. 19. október 1949, auglýsinga- hönnuður í Toronto í Kanada, giftist Peter Matthews. Þau eiga tvö böm en skildu; Baldur Elías, f. 28. júní 1952, rafvirkjameistari í Rvík, kvæntur Særós Guðnadóttur og eiga þau tvö böm; Haukur, f. 12. Katrin Magnea Guðmundsdóttir. Móðursystir Katrínar var Mar- grét, móðir Guðmundar í. Guð- mundssonar ráðherra. Faðir Ragnheiðar var Guðmundur, út- vegsbóndi á Neðri-Brannastöðum á Vatnsleysuströnd, ívarsson, formanns og útvegsbónda í Skjald- arkoti á Vatnsleysuströnd, Jóns- sonar, b. á Syðravatni í Skagafirði, Jónssonar. Móðir Guðmundar var Ragnheiður Gísladóttir, húsmanns á Miðengi á Álftanesi, Jónssonar og konu hans, Gróu Jónsdóttur, b. á Lækjarbakka í Mýrdal, Erlends- sonar. Móðir Ragnheiðar var Katrín Andrésdóttir, b. ög hrepp- sfióra í Syðra-Langholti í Hruna- mannahreppi, Magnússonar, b. og alþingismanns í Syðra-Langholti, Andréssonar. Móðir Andrésar var Katrín Eiríksdóttir, b. og dbrm. á Reykjum á Skeiöum, Vigfússonar, forföður Reykjaættarinnar. janúar 1954, rafvirkjameistari, kvæntur Joyce Hannesson. Hauk- ur átti eina dóttur áður; Bryndís, f. 28. maí 1963, fulltrúi hjá verslun- inni Glóey hf. Systkini Hannesar era Guð- mundur Björgvin, borgarfulltrúi, d. 1983, Vigfús, vélvirki, d. 1979, Þuríður, fyrrv. sparisjóðsgjaldkeri, Kristín, Guðný og Helga húsmæö- ur, Erlendur Krisfián, borgar- starfsmaður, Halldór, vélvirki, og Hilmar, bifreiðarsfióri. Foreldrar Hannesar era Vigfús Vigfússon, f. 5. apríl 1888, b. á Hrís- nesi á Barðaströnd, og kona hans, Guðbjörg Guðmundsdóttir, f. 31. júlí 1892. Faðir Vigfúsar var Vig- fús, b. í Hrísnesi, Erlendsson, b. á Hamri á Barðaströnd, Runólfsson- ar, prests á Bijánslæk, Erlendsson- ar. Móðir Vigfúsar var Þuríður Þorsteinsdóttir. Foreldrar Guð- bjargar vora Guðmundur Guð- mundsson, smiður á Hamri, og kona hans, Guðný Guðmundsdótt- ir. Hannes og Magöalena taka á móti gestum á heimili sínu, Aust- urgerði 8, mánudaginn 4. janúar eftir kl. 16. Kristján Bersi Ólafsson Krisfián Bersi Ólafsson skóla- sfióri, Tjamarbraut 11, Hafnar- firði, varð fimmtugur 2. janúar. Krisfián ólst upp í Hafnarfirði og lauk fil. kand. prófi frá Stokk- hólmsháskóla 1962 og prófi í uppeldis- og kennslufræði frá HÍ 1971. Hann var stundakennari í Flensborg 1963-1970, kennari 1970-1972, skólastjóri 1972-1975 og skólameistari frá 1975. Krisfián var blaðamaöur og ritsfióri í Rvík 1962-1970 og formaður Blaða- mannafélags íslands 1968. Hann var í sfiórn Félags háskólamennt- aðra kennara 1970-1974, Hins íslenska kennarafélags 1983-1985 og varaformaður Bandalags kenn- arafélaga 1984-1985. Kona Krisfi- áns er Sigríður Bjarnadóttir, f. 3. júlí 1945. Foreldrar -hennar era Bjarni Kristófersson, b. í Hvestu í Arnarfirði, óg kona hans, Ragn- hildur Finnbogadóttir. Börn Krist- jáns og Sigríðar era Freydís, f. 16. febrúar 1965, Ólafur Þórður, f. 19. janúar 1966, Jóhanna, f. 19. janúar 1966, d. 14. janúar 1973, og Bjami 80 ára Tryggvi Gunnlaugsson, Bjamhóla- stíg 22, Kópavogi, er áttræður í dag. 75 ára Unnur Eyjólfsdóttir, Hlégerði 17, Kópavogi, er sjötíu og fimm ára í dag. Jón Vídalín Sigurðsson, Leira- bakka 3, Seyðisfirði, er sjötíu og fimm ára í dag. Bjarni Sigurðsson, Búðavegi 50, Búðahreppi, Múlasýslu, er sjötíu og fimm ára í dag. 70 ára Hrönn Jónsdóttir, Kötlufelli 5, Reykjavík, er sjötug í dag. Páll Sigurðsson, Snorrabraut 69, Reykjavík, er sjötugur í dag.- Sigríður Finnbogadóttir, Suður- Fossi, Mýrdalshreppi, Vestur- Skaftafellssýslu, er sjötug í dag. 60 ára Sigurður A. Sigurðsson, Neshaga 5, Reykjavík, er sextugur í dag. Laufey Stefansdóttir, Stóra-Þúfu 1, Miklaholtshreppi, er sextug í dag. Kristján Bersi Ólafsson. Kristófer, f. 3. desember 1971. Systkini Krisfiáns era Ásthildur, f. 3. febrúar 1933, skólaritari í Hafn- arfirði, gift Herði Zóphaníassyni, skólasfióra í Hafnarfirði, og Ingileif Steinunn, f. 11. desember 1939, hjúkrunarfræðingur í Garðabæ. Foreldrar Krisfiáns vora Ólafur Þ. Krisfiánsson, skólasfióri í Hafnar- firði, sem er látinn, og kona hans, Ragnhildur Gísladóttir. 50 ára Jón Halldór Bjömsson, Hringbraut 63, Keflavík, er fimmtugur í dag. Steinar G. Þórðarson, Drangavöll- um 2, Keflavík, er fimmtugur í dag. Andrés P. Jónsson, Bárðarási 4, Neshreppi, er fimmtugur í dag. Sigtryggur Bjömsson, Birkimel 11, Seiluhreppi, Skagafiarðarsýslu, er fimmtugur í dag. Jón Steindórsson, Kirkjuvegi 17, Vestmannaeyjum, er fimmtugur í dag. Isidoro Halldór Ruiz Martinez, Sól- hlíð 4, Vestmannaeyjum, er fimmtugur í dag. 40 ára Friðrik Guðjónsson, Seljabraut 62, Reykjavík, er fertugur í dag. Erla Benediktsdóttir, Jöklaseli 19, Reykjavík, er fertug í dag. Svavar Sigurðsson, Langagerði 66, Reykjavík, er fertugur í dag. Einar S. Guðjónsson, Lágmóa 6, Njarðvík, er fertugur i dag. Benedikt Gunnarsson, Hlíðargötu 25, Miöneshreppi, Gullbringusýslu, er fertugur í dag. Ásdis Kjartansdóttir, Suðurgötu 56, Siglufirði, er fertug í dag. Valgerður Aradóttir, Skúlabraut 13, Blönduósi, er fertug í dag. Sæmundur Hrólfsson, Tungusíðu 9, Akureyri, er fertugur í dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.