Þjóðviljinn - 26.02.1986, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 26.02.1986, Blaðsíða 14
Yfirlýsing Meðfylgjandi yfirlýsing undir- ritaðra óskast birt í blaði yðar vegna „fréttar" í helgarblaði Þjóðviljans 16. febrúar sl. Alrangt er að mikil óánægja sé hjá Ármönnum og Skotveiðifé- lagi fslands vegna fækkunar tölu- blaða málgagns félaganna Á veiðum, eins og sagt var berum orðum í „frétt“ Þjóðviljans. Enn- fremur er ósatt að Ármenn og Skotveiðifélag íslands hafi „frétt síðastir allra af samdrættinum“ eins og segir í „fréttinni'*. Einnig er rangt að „hörð samkeppni við Sportveiðiblaðið hafi sett sitt strik í reikninginn" eins og fullyrt er í fyrrnefndri „frétt“. Hið rétta er að eitt blað af þremur síðasta árs var gefið út á röngum tíma að mati fyrirtækis- ins, eða seinni hluta vetrar. Þann- ig er að stángaveiðar og skot- veiðar eru árstíðabundin áhuga- mál; stangaveiði er stunduð frá vori og fram á haust, en skotveiði er einkum stunduð frá hausti og fram á vetur. Auðvitað er um frá- vik að ræða frá þessari megin- reglu. Markmið útgáfunnar er að blaðið komi fyrir sjónir lesenda á þeim árstímum, þegar áhugi manna er mestur. Þetta ár verður notað til þess að kanna mögu- leika á heppilegri útgáfutíma fyrir 3. tölublað tímaritsins Á veiðum. Finnist slíkur tími mun blaðið koma út 3svar árið 1987 og þá hugsanlega vor-, sumar- og haustblað. Á þessu ári verður Hundahald - árgjald 1986-1987 Árgjald fyrir leyfi til aö halda hund í Reykjavík feliur í gjalddaga 1. mars. Eindagi gjaldsins er 1. apríl. Verði það eigi greitt fyrir þann tíma fellur leyfið úr gildi. UM LEIÐ OG GJALDIÐ ER GREITT SKAL FRAMVÍSA LEYFISSKÍRTEINI OG HUND- AHREINSUNARVOTTORÐI, EKKI ELDRA EN FRÁ 1. SEPTEMBER 1985. Gjaldið, sem er kr. 4800.- fyrir hvern hund skal greiða í einu lagi hjá heilbriqðiseftirlitinu, Drápuhlíð 14. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkursvæðis blaðið hins vegar gefið út tvisvar sinnum. Rekstur tímaritsins Á veiðum hefur gengið mjög vel allt frá upphafi og varð blaðið það stærsta sinnar tegundar hér á landi strax á fyrsta útgáfuári. Nú eru áskrifendur blaðsins orðnir 4.500 talsins og fjölgar stöðugt og lausasala þess er umtalsverð. Af því má ljóst vera að sú fullyrðing að Sportveiðiblaðið hafi „sett sitt strik í reikninginn" er bæði barnaleg og hlægileg. Óþarfi er að taka fram að bæði félögin, Ár- menn og Skotveiðifélag íslands eru ánægð með tímaritið Á veiðum og styðja ritstjórnar- stefnu þess, enda blaðið það eina sinnar tegundar hér á landi sem fjallar um stanga- og skotveiðar af þekkingu og vandvirkni. Velta má fyrir sér, hvaða hvatir liggja að baki skrifum Þjóðvilj- ans. Nærtækasta skýringin er sú að free-lance blaðamaður Sport- veiðiblaðsins, Össur Skarphéð- insson sem raunar er einnig rit- stjóri Þjóðviljans, sé að reyna að aðstoða vinnuveitanda sinn, Sportveiðiblaðið, í samkeppn- inni við tímaritið Á veiðum með því að reyna að koma höggi á blaðið með „fréttum“ af þessu tagi. Á það er bent að umrædd „frétt“ er ekki sú fyrsta sinnar tegundar sem birtist í Þjóðviljan- um um Á veiðum og ekki að undra, ef tekið er mið af því „sið- ferði“ í blaðamennsku sem á Þjóðviljanum ríkir, að ó- gleymdum sameiginlegum hags- munum Össurar Skarphéðins- sonar og útgefanda Sportveiði- blaðsins. Með þökkum fyrir birtinguna, f.h. Á veiðum Olafur Jóhannsson ritstjóri. f.h. Ármanna Sigurður Benjamínsson formaður, f.h. Skotveiðifélags Islands, Páll Dungal formaður. UTBOÐ Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfarandi: Smíði, samsetning og tengivinna á 11 kV aflrofaskápum. RARIK-86001 Opnunardagur: Fimmtudagur 10. apríl 1986, kl. 14:00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagns- veitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykja- vík, fyrir opnunartíma og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Raf- magnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með fimmtudegi 27. febrúar 1986 og kosta kr. 200,- hvert eintak. Reykjavík, 25. febrúar 1986. kSRARIK RAFMAGNSVEITUR RlKlSINS Utboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Rafmagnsveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í breytingar á stöplum lokumannvirkja og leng- ingu yfirfalls á Árbæjarstíflu við Elliðaárstöð. Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri, Fríkirkju- vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000.- skilatrygg- ingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðviku- daginn 12. mars nk. kl. 11. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fnkirk|uvogi 3 Simi 25800 HVAÐ ER AD GERAST í ALÞÝÐUBANDALAGINU? AB Norðurlandi vestra Almennir fundir Kristín Á Ólafsdóttir, varaformaöur Alþýöu- bandalagsins, og Ragn- ar Arnalds alþingismað- ur mæta á almennum fundum: Á Blönduosi (Félagsheimili) laugardag 1. mars kl. 16:00 Ragnar Á Hvammstanga (Félagsheimili) laugardag 1. mars kl. 20:30 Á Skagaströnd (Félagsheimili) sunnudag 2. mars kl. 16:00 Á Sauðarkroki (Villa Nova) laugardag 8. mars kl. 16:00 Á Siglufirði (Alþýöuhúsinu) sunnudag 9. mars kl. 16:00 Kristín AB Norðurlandi vestra Félagsmálanámskeið Kristín Á Olafsdóttir, varaformaður Alþýðubandalagsins stjórnar félagsmálanámskeiðum á Norðurlandi vestra: Á Hvammstanga (Grunnskólanum) föstudagskvöld 28. febr. kl. 20:30 fimmtudagskvöld 6. mars kl. 20:00 Þátttaka tilkynnist Erni Guðjónssyni eða Fleming Jessen. Á Skagaströnd (Félagsheimili) laugardag 1. mars kl. 10:00 föstudagskvöld 7. mars kl. 20:30 Þátttaka tilkynnist Guðmundi H. Sigurðssyni eða Ingibjörgu Krist- insdóttur. Á Sauðárkróki (Villa Nova) sunnudag 2. mars kl. 10:00 mánudagskvöld 3. mars kl. 20:30. Þátttaka tilkynnist Ingibjörgu Hafstað eða Rúnari Bachmann. Á Siglufirði (Suðurgötu 10) þriðjudagskvöld 4. mars kl. 20:30 sunnudag 9. mars kl. 10:00. Þátttaka tilkyrmist Brynju Svavarsdóttur eða Benedikt Sigurðs- syni. Á Blönduösi (Hótel Blönduósi) miðvikudagskvöld 5. mars kl. 20:30 laugardag 8. mars kl. 10:00. Þátttaka tilkynnist Guðmundi Theódórssyni eða Eiríki Jónssyni. AB Bessastaðahrepps og Garðabæjar Fundur 3. mars Fundur verður haldinn í Alþýðubandalagsfélagi Bessastaðahrepps og Garðabæjar mánudaginn 3. mars kl. 20.30 í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Dagskrá: 1. Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga - prófkjör. 2. Afmæli Þjóðviljans. 3. Innheimta félagsgjalda. 4. önnur mál. Framkvæmdastjórn. Fulltrúaráð ABR er hér með boðað til fundar fimmtudaginn 27. febrúar í Miðgarði Hverfisgötu 105 kl. 19.30. Á dagskrá er tillaga kjörnefndar um framboðslista ABR í borgarstjórnarkosningunum í vor. - Stjórnin. AB Akureyri Forval stendur yfir Alþýðubandalagið á Akureyri minnir á yfirstandandi forval. Skrif- stofan í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18 er opin fram á föstudag á milli kl. 17 og 19 en laugardaginn 1. mars (síðasta forvalsdaginn) er opið frá kl. 14 til 18. Munið opið hús á laugardag í Lárusarhúsi! - Uppstillingarnefnd. Málefnahópar AB Hópur um sjávarútvegsmál kemur saman til 1. fundar miðvikudaginn 26. febrúar kl. 18.00 íi Miðgarði Hverfisgötu 105. Fundurinn er opinn öllum félögum Alþýðubandalagsins og stuðn- ingsfólki öðru. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 17500. - Formaður. Alþýðubandalagið í Reykjavík Almennur félagsfundur verður í Miðgarði Hverfisgötu 105 fimmtudaginn 27. febrúar og hefst kl. 20.30. Dagskrá: 1) Tillaga kjörnefndar um framboðslista vegna borgar- stjórnarkosninga, 2) Stefnuumræða um borgarmál. Framsögu hafa Guðrún Ágústsdóttir (félags- og heilbrigðismál), Þorbjörn Broddason (fræðslu- og menntamál), Tryggvi Þ. Aðaisteinsson (íþróttamál), Sigurður Harðarson (umhverfis- og skipulagsmál), Guðmundur Þ. Jónsson (húsnæðismál), Jóhannes Gunnars- son (neytendamál), Sigurjón Pétursson (stjórnsýslumál) og einn- ig verða verkalýðsmál á dagskrá þessa liðar. 3) Önnur mál. - Stjórnin. AB í Kjósarsýslu Vetrarfagnaður í Mosfellssveit verður haldinn í Þrúðvangi (Álafossi) laugardaginn 1. mars og hefst fagnaður- inn kl. 20.30. Gestur kvöldsins verður Svavar Gestsson formaður Alþýðu- bandalagsins. Allir velkomnir. - Nef ndin. Svavarl AB Akranesi Góufagnaður á Akranesi Góufagnaður Alþýðubandalagsins á Akranesi verður haldinn í Rein laugardaginn 1. mars og hefst hann með borðhaldi kl. 20.30. Húsið verður opnað kl. 20.00. Ræðumaður: Össur Skarphéðinsson ritstjóri. Spilverk og söngur: Ragnar Skúlason, Jónína Magnúsdóttir, Ragnheiður Þóra og Anna Margrét, Ingibjörg Gestsdóttir. Spurningakeppni. Diskó- tekið Dísa leikur fyrir dansi. Miðapantanir í símum 3036 og 2251 eftir kl. 20.00. Einnig fimmtudagskvöldið í Rein kl. 21 -22. Sími 1630. - Skemmtinefndin. AB Reyðarfjarðar Samkoma í Félagslundi laugardagskvöldið 1. mars kl. 20.30. Á dagskrá verður: Pólitísk ávörp, kosning kosningastjórnar, samþykktir félagsins, upplestur og söngur, kaffiveitingar. Gestir fundarins verða Steingrímur J. Sigfússon og Helgi Seljan. Allir velkomnir til að njóta góðs félagsskapar. - Undirbúnings- nefnd. BYGGÐAMENN AB. Áhugamenn um sveitarstjórnarmál Ráðstefna Byggðamanna AB Ráðstefna Byggðamanna Alþýðubandalagsins um sveitarstjórn- armál og undirbúning kosninga verður haldin í Miðgarði Hverfis- götu 105 dagana 15.-16. mars. Ráðstefnan stendur frá kl. 17-19 fyrri daginn en seinni daginn frá kl. 10-16. Fyrirhuguð dagskráratriði: 1. Kosningarundirbúningur, hagnýt atriði. 2. Sveitarstjórnarlög - réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna. 3. Málsmeðferð í sveitarstjórnum. 4. Bókhald og fjárreiður. 5. Samskipti sveitarstjórna og ríkisins. 6. Starf í sveitarstjórn. 7. Starf Alþýðubandalagsins að sveitarstjórnarmálum. Þeir sem áhuga hafa á að sækja þessa ráðstefnu tilkynni það til skrifstofu Alþýðubandalagsins Hverfisgötu 105. Sími 91-17500. Stjórn Byggðamanna Alþýðubandalagsins. 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 26. febrúar 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.