Morgunblaðið - 10.03.1987, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
57. tbl. 75. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Andreotti falin
stj ómarmyndun
Rómaborgf, AP. Reuter.
FRANCESCO Cossiga, forseti
Italíu, fól Giulio Andreotti, ut-
anrikisráðherra, að reyna stjórn-
armyndun. Andreotti hefur fimm
sinnum gegnt starfi forsætisráð-
herra Italíu.
Grænland:
Stjómar-
kreppu
afstýrt
Nuuk, Grænlandi, Reuter.
Grænlenzki stjórnarand-
stöðuflokkurinn Atassut féllst
í gær á að veita minnihluta-
stjórn Siumut stuðning til þess
að ekki þurfi að efna til kosn-
inga vegna brottgöngu Inuit-
flokksins úr heimastjórninni.
Inuit Ataqatigiit sagði sig úr
ríkisstjóminni þegar stærri stjóm-
arflokkurinn, Siumut, féllst ekki á
kröfur flokksins um skipan þing-
nefndar til þess að fylgjast með
uppbyggingu og starfsemi banda-
rísku herstöðvarinnar í Thule.
Sovétmenn halda því fram að
endurbætur á ratsjárstöðinni í
Thule brjóti í bága við gagnflauga-
samning stórveldanna (ABM-
samkomulagið) frá 1972.
Bandaríkjamenn segja aðeins um
endurbætur á ratsjánum að ræða.
Leiðtogar Atassut samþykktu
síðan í gær að tryggja minnihluta-
stjóm Siumut í sessi, svo fremi
að flokksfélögin samþykktu það
einnig. Af þessum sökum er ólík-
legt að kosið verði fyrr en í apríl
1988, en þá rennur kjörtímabil
stjómarinnar út. Leiðtogar Inuit
sögðu þetta ólýðræðisleg vinnu-
brögð og ítrekuðu kröfu sína um
tafarlausar kosningar.
Sjá „Verður boðað til kosn-
inga...?“ á bls. 32.
Búist er við að stjómarmyndun-
artilraunir Andreottis verði erfíðar
því sósíalistar höfðu lagst gegn því
að hann fengi umboð til stjómar-
myndunar. Bettino Craxi, leiðtogi
sósíalista, sagði af sér starfi forsæt-
isráðherra í síðustu viku vegna
ágreinings milli þeirra fimm flokka,
sem aðild eiga að ríkisstjórninni.
Andreotti, sem er 68 ára, sagðist
myndu reyna að mynda stjórn sömu
flokka er sæti þar til nýjar þing-
kosningar færu fram vorið 1988.
Claudio Martelli, varaformaður Só-
síalistaflokksins sagði í gær að með
útnefningu Andreottis væri stjórn-
armyndun sjálfkrafa dauðadæmd.
Reynist Martelli sannspár er talið
að Cossiga ijúfi þing og boði til
kosninga í stað þess að fela öðrum
leiðtoga stjómarmyndun.
Reuter
Giulio Andreotti, utanríkisráðherra, ræðir við blaðamenn eftir að Francesco Cossiga, forseti, hafði
veitt honum umboð til stjórnarmyndunar.
Reyndu að loka stafn-
lúgnnni með sleggjum
London, AP. Reuter.
Ríkisstjórnir Bretlands og
Belgiu fyrirskipuðu í gær rann-
sókn á því hvað olli feijuslysinu
við Zeebrugge á föstudagskvöld,
en þá fórust 135 menn. Sjór foss-
aði inn um stafnlúguna með þeim
afleiðingum að feijan tók ört inn
sjó og valt á örskömmum tima.
Talið er að lúgunni hafi verið illa
lokað en einnig beinist athyglin
að hleðslu og jafnvægisstillingu
feijunnar.
Þrír vörubílstjórar sögðu feijuna
hafa lagt 10-15 mínútum of seint
af stað vegna bilunar í stafnlúg-
unni. Sögðust þeir hafa séð skipveija
hamast við að loka dyrunum með
slaghömrum. Aðstoðarbátsmaður
feijunnar, Marc Stanley, sagðist
hafa stjórnað lokun lúgunnar og
kenndi sér um ferjuslysið, en lög-
menn sögðu hann ekki bera ábyrgð
á slysinu.
Bílstjóramir sögðu að sjór hefði
Fyrsta verk Stoltenbergs
að fara til Reykjavíkur
Osló, frá Jan Erík Laure, fréttarítara Morgunblaðsins.
eftirvæntingar til fundarins í
Reykjavík, þar sem reynt verður
að komast að endanlegri niður-
stöðu um skipan embættismanna-
nefndar til að kanna möguleikana
á kjamorkuvopnalausu svæði á
Norðurlöndum.
„Norðurlöndin greinir á um
þetta mál en það er nauðsynlegt
að við reynum að komast að sam-
eiginlegri niðurstöðu,“ sagði
Stoltenberg.
Sjá einnig „Talinn munu
verða...“ á bls. 31.
FYRSTA opinbera embættis-
verk Thorvalds Stoltenberg,
sem tók við starfi utanríkisráð-
herra Noregs í gær, verður að
fara til íslands til fundar ut-
anríkisráðherra Norðurland-
anna, sem haldinn verður í
Reykjavík síðar í þessum mán-
uði.
Stoltenberg sagði á blaða-
mannafundi í gær að hann mundi
fylgja þeirri stefnu sem forveri
hans, Knut Frydenlund, hefði
markað. Hann sagðist fara fullur
tekið að fossa inn í ferjuna um leið
og hún sigldi frá bryggju. Þegar
skipstjórinn hafí síðan beygt á
stjómborða til að sveigja frá sand-
rifí rétt fyrir utan hafnarmynnið
hafí sjórinn færzt yfír í vinstri hlið
feijunnar og lagt hana á hliðina.
Feijan var hlaðin að hámarks-
þunga og þegar svo er skiptir
jafnvægisstilling skipsins miklu.
Hægt er að flytja þyngdarpunkt
skipa til og er það algengt á feijum
til að lyfta stefni þeirra eða lækka
til að auðvelda akstur bíla um borð
Harmagrátur
Reuter
Ættingjar eins þeirra sem fórust með feijunni koma út úr líkhúsi í Zee-
brugge eftir að hafa borið kennsl á hinn látna.
eða frá borði. Leikur gmnur á því
að skipið hafí verið framhlaðið um
of þar sem sjór fossaði svo hratt inn
og að skipstjóri hafí ekki verið búinn
að „rétta það af“ með því að flytja
sjó til í jafnvægistönkum, en það
getur hann gert úr brúnni. Algengt
er einnig að feijur sigli af stað með
stafnlúgu opna til að loftið í bílalest-
inni hreinsist.
I gær voru hafnar tilraunir til að
rétta fetjuna af og koma henni á
flot. Er það vandasamt verk. Jafn-
framt var mikil áherzla lögð á að
fínna og bjarga 61 tunnu af ban-
vænu eitri, sem var um borð en
ekkert er vitað um.
Sjá ennfremur frásagnir af
feijuslysinu á miðopnu.
Altunyan
látinnlaus
Moskvu, AP.
ANDREI Sakharov sagði í samtali
við AP-fréttastofuna í kvöld að
andófsmaðurinn Genrikh Altun-
yan, hefði verið látinn laus úr
fangelsi.
Sakharov hefur barizt fyrir frelsi
Altunyans, sem er 53 ára, og í gær
kvaðst hann hafa fengið upphring-
ingu ftá Altunyan, sem sagðist hafa
verið látinn laus úr fangelsi í Úkra-
ínu fyrr um daginn. Hringdi Altun-
yan í Sakharov frá heimili sínu í
Kharkov.
Árið 1969 var Altunyan dæmdur
til þriggja ára þrælkunarvinnu. Árið
1980 var hann aftur dæmdur til
þrælkunarvinnu, þá til sjö ára, og í
framhaldi af því skyldi hann dveljast
í útlegð í fímm ár.