Morgunblaðið - 28.05.1988, Blaðsíða 48
ffclk í
fréttum
íslenzkar fóstrur í
Reggio Emilia
FRÁ Fósturskóla íslands út-
skrifuðust í ár 34 fóstrur og
lauk skólaárinu með námsferðtil
Ítalíu þar sem nemendur heimsóttu
meðal annars barnaheimilið í
Reggio Emilia sem er víðfrægt
fyrir skapandi starfsemi. Morgun-
blaðið hitti tvær nýbakaðar fóstr-
ur, Huldu Ásgeirsdóttur og Unni
Valdimarsdóttuy og einn kennara
þeirra, Nönnu Ulfsdóttir, á Kjar-
valsstöðum, en þar stendur yfír
sýningin „Böm hafa hundrað
mál..." Myndverk á þeirri sýn-
ingu eru eftir böm á aldrinum eins
til sex ára af bamaheimilum sem
starfa eftir fyrirmynd Reggio
Emilia á Ítalíu.
Nemendur á lokaári í Fóstur-
skóla íslands heimsóttu þessa
borg í maímánuði. Nanna Ulfs-
dóttir sagði að sú hefð ríkti við
Fósturskólann að líta á náms-
ferðimar sem þátt í náminu og
gera nemendur skýrslur að þeim
loknum. Meðal landa sem nem-
endur Fósturskólans hafa heim-
sótt em Bandaríkin, Danmörk,
Tékkóslóvakía, Ungveijaland og
nú síðast Ítalía. Reyndar var einn-
ig haldið til Ítalíu 1985 og til
marks um áhrif slíkra námsferða
tmá benda á dagheimilið Mar-
bakka í Kópavogi en böm af því
heimili eiga myndverk á sýning-
unni á Kjarvalsstöðum. Gmnninn
að starfsemi þess heimilis lögðu
nokkrir fóstmnemar sem heim-
sóttu Reggio Emilia 1985.
Amma í heimsókn á barnaheimilinu i Reggio Emilia.
Þær stöllur sögðu, að Bologna,
Padova og Reggio Emilia skæm
sig frá öðmm ítölskum borgum
varðandi uppeldismál. Þar ríktu
önnur viðhorf til „mjúku mál-
anna.“ Reggio Emilia er oft nefnd
Rauða Emilia fyrir þær sakir. Það
.væri kannski ekkert undarlegt þó
íbúar þessara borga, sem em í
Pódalnum, væm öðmm fremri í
uppeldismálum, því Pódalurinn er
eitt fijósamasta svæði Ítalíu og
þar ríkir mikil og rótgróin menn-
ing. Dagvistarstofnanir á Ítalíu
em ýmist reknar af ríkinu eða
einstökum hémðum í landinu.
slenskir fósturnemar á útileiksvæði í Reggio Emilia.
Einnig starfa heimili á vegum
kirkjunnar sem nunnur reka. Þau
em ætluð bömum sem af félags-
legum ástæðum eiga ekki í önnur
hús að venda. Dagmömmur em
hins vegar óþekkt fyrirbæri þar í
landi.
— Hver er þá helsti munurinn
á starfsemi íslenskra dagheimila
og ítalskra sem starfa eftir fyrir-
mynd Reggio Emilia?
„Þetta samkrall í aldurskipt-
ingu á dagheimilum hér gerir það
að verkum að erfiðara er um
markvisst uppeldisstarf", segja
þær. „Það er reyndar illmögulegt
að finna uppeldisfræðileg rök fyr-
ir aldursskiptingunni hér. Þetta
em fyrst og fremst gæslustaðir
þar sem foreldramir em afskipta-
lausir. Á dagheimilum í Padova
er aldursskiptingin frá 0—3ja ára
og 3—6 ára. Þar er starfræktur
skipulegur forskóli fyrir eldri
bömin og er starfsemi hans upp-
byggð eins og í hveijum öðmm
skóla. Þar starfar fólk með upp-
eldismenntun 30 stundir á viku
og hefur auk þess 6 stundir til
samráðs við foreldra," sögðu þær
Iokum.
NAUTAAT
Eitthvað fór úrskeiðis lyá
nautabananum, sem ætlaði
að leika listir sínar á San
Isador hátíðinni í Madrid
nýlega. Bolinn náði að kasta
honum á loft, og réðist síðan
að honum þar sem hann lá
á jörðinni. Nautabaninn var
fluttur á sjúkrahús, þar sem
hann gekkst undir margra
klukkustunda skurðaðgerð,
og töldu læknar hann í
lífshættu að henni lokinni.
COSPER
— Maðurinn minn er orðinn viðurkenndur listmálari. Einu
af verkunum hans var stolið.
Sylvester Stallone með nýja hárgreiðslu og nýja dömu.
SYLVESTER STALLONE
Kominn með nýja
Það er óhætt að segja að hlutim-
ir ske hratt hjá Sylvester Stall-
one þessa daganna. Hann var ekki
fyrr búinn að lýsa yfír væntanlegu
hjónabandi sínu og hinnar tuttugu
og fjögurra ára gömlu Comeliu
Guest, að hann fór að sjást í fylgd
nýrrar kvensu. Sú sem í hlut á er
reyndar ekki alveg ný af nálinni,
því áður mun hafa logað glatt á
milli þeirra. Nafn hennar er Vanna
White, og eftir skilnaðinn við hina
dönsku Brigittu, þá mun kappinn
hafa leitað huggunar hjá henni um
stund.
En sem kunnugt er, þá lifír lengi
í gömlum glæðum, og hvað peninga
varðar, þá þarf Sylvester ekkert að
hafa óttast um sína, því nýja kær-
astan mun vera vellauðug. Hún er
vel þekkt í Bandaríkjunum, því hún
hefur stjómað þar geysivinsælum
sjónvarpsþætti, sem heitir „Lukku-
hjólið", og auk þess vinnur hún hjá
Playboy tímaritinu. Vanna var áður
í slagtogi með veitingahúsaeiganda
að nafni George Santo Pietro, sem
einhveiju sinni var álitinn heit-
bundinn Lindu Evans. Hvað úr öllu
þessu verður veit nú enginn...
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988
Morgunblaðið/BAR
Hulda Ásgeirsdóttir, Unnur Valdimarsdóttir og Nanna Úlfsdóttir á sýningunni á Kjarvalsstöðum.
BORN HAFA HUNDRAÐ MAL.