Morgunblaðið - 21.05.1996, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 21.05.1996, Blaðsíða 37
MORGUNBÚVÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996 37 KJARVALSSTAÐIR, þar sem NORDIA 96 verður haldin, NORDIA 96 FRIMERKI Kjarvalsstaðir NORRÆN FRÍ- MERKJASÝNING Samnorræn frímerkjasýning verð- ur haldin á Kjarvalsstöðum dagana 25.-27. október nk. SEGJA má, að heldur hafi verið hljótt um væntalega' sam- norræna frímerkjasýningu, sem haldin verður á Kjarvalsstöðum dagana 25.-27. október nk.; a.m.k. á innlendum vettvangi. I þessum þætti hefur hennar ekki verið getið fyrr en nú, enda stutt síðan rækileg greinargerð barst um hana. Fyrsta NORDIU-sýning hér á landi var haldin árið 1984 og tókst að flestu leyti mjög vel, enda var þá áhugi og samtaka- máttur íslenzkra safnara mjög mikill og meiri en mér virðist hann vera núna. Sá hagnaður, sem féll í skaut frímerkjasam- taka okkar árið 1984, varð til þess, að þau eignuðust eigið hús- næði í Síðumúla 17 hér í Reykja- vík. Enda þótt sú ráðstöfun gengi ekki alveg hljóðalaust fyrir sig, held ég megi fullyrða, að nú þyki flestum og vonandi öllum söfnur- um, að vel hafi til tekizt. Næsta NORDIU-sýning var svo haldin hér árið 1991 og varð enn lyfti- stöng fyrir frímerkjasöfnun okk- ar. Þriðja slík sýning verður svo haldin næsta haust og nú að Kjarvalsstöðum, en ekki í Laug- ardalshöllinni, svo sem var um hinar sýningarnar tvær. Eins og marga rekur örugglega minni til, var fyrsta stórsýning hér á landi, ISLANDIA 73, haldin á þessum stað árið 1973 á hundrað ára afmæli íslenzkra frímerkja. Hinar svonefndu NORDIU- sýningar eru komnar í nokkuð fastan farveg og fara árlega milli Norðurlandaþjóðanna. Enginn vafi leikur á því, að þessar sam- norrænu frímerkjasýningar hafa orðið frímerkjasöfnun á Norður- löndum til framdráttar. Um leið er þeim eðlilega veitt athygli meðal safnara víða um heim. Miðað við þær Norðurlandaþjóð- ir, sem geta tekið að sér NORD- IU-sýningar, kemur sýningar- hald í hlut hverrar þeirrar fimmta hvert ár. Svo má aftur spyija sem svo: Hafa íslenzkir safnarar í raun tök á þátttöku í þessum leik fimmta hvert ár? Eg hef hvergi dregið dul á það, að ég tel svo ekki vera, enda þótt hagur af NORD- IU-sýningum sé á marga lund ótvíræður. Kemur þar hvort tveggja til, að íslenzkir frímerkja- safnarar eru að mínum dómi of fáir til að halda uppi svo viðamik- illi sýningu jafnoft, jafnvel þótt við njótum mikillar íjárhagsað- stoðar frá Póst- og símamála- stjórn okkar og Póstsögusjóði og að auki margs kyns aðstoðar frá „kollegum" okkar á öðrum Norð- urlöndum. Bæði fámenni og svo fjarlægðin gerir þetta sýningar- hald mun erfiðaðra og kostnað- arsamara fyrir okkur en safnara á hinum Norðurlöndunum. Hvað sem þessum hugleiðing- um líður, er það orðin staðreynd, að NORDIA 96 verður haldin á íslandi að þessu sinni, og þá er sjálfsagt, að íslenzkir safnarar leggist fast á árar um að gera sýninguna eins vel úr garði og unnt er. Við eigum líka enn á að skipa liði, sem þekkir vel til vinnubragða frá fyrri sýningum og verður vonandi innan handar, þegar þar að kemur. Fyrir alllöngu sendi undirbún- ingsnefnd NORDIU 96 frá sér brytling, þar sem sýningin er kynnt. Nefnd þessa skipa Sigurð- ur R. Pétursson formaður, Hálf- dan Helgason, sem er aðalum- boðsmaður sýningarinnar, og Sverrir Einarsson ritari. Umboðs- menn hafa þegar verið skipaðir frá öðrum Norðurlöndum, en umboðsmaður íslands er Þór Þor- steins. Síðar var svo bætt við í nefndina tveimur mönnum, Finni Kolbeinssyni frá Landssambandi ísl. frímerkjasafnara, og Jónasi Skúlasyni frá póststjórninni. Skipa þessir fimm menn sýn- ingarnefnd NORDIU 96. Samkvæmt nýlegri tilkynn- ingu nefndarinnar hafa þegar verið haldnir margir fundir. Tek- ið er fram, að nefndin hafi ekki setið iðjulaus, þótt ekki hafi farið hátt um starf hennar fram að þessu. Jafnframt er sú von látin í ljós, að nefndinni verði vel tek- ið, þegar leita þarf til félaganna við uppsetningu sýningarinnar næsta haust og eins við annað það, sem óhjákvæmilega fylgir sýningarhaldinu. Undir það tek ég eindregið, enda hlýtur það að vera vilji allra íslenzkra frí- merkjasafnara, að vel takist til, þegar á hólminn er komið. Hér á engu að skipta, þótt menn hafi í upphafi þótt jafnvel of skammt um liðið frá NORDIU 91. Fundur var haldinn í FF sumardaginn fyrsta, 25. apríl sl., þar sem Sigurður R. Pétursson kynnti sýninguna fyrir félags- mönnum og sagði jafnframt, hvernig málum væri nú háttað. Því miður var fundurinn ekki vel sóttur, ekki sízt með tilliti til kynningar NORDIU 96. Verður hér á eftir rakið ýmislegt úr því, sem fram kom um sýninguna á nefndum fundi. Sigurður tók skýrt fram, að reynt verður að halda kostnaði öllum eins mikið niðri og unnt er. Þannig var breytt um sýn- ingarstað fyrst og fremst af því, að Laugardalshöllin reyndist einni milljón krónum dýrari en Kjarvalsstaðir. Er nú þegar búið að skipuleggja sýningarsvæðið þannig, að það verði ekki of stórt um sig, en um leið verður reynt að hafa það bæði notalegt og hlýlegt. Er stefnt að því, að allt rúmist mjög vel á Kjarvalsstöð- um. Sýningarflokkar verða með hefðbundnum hætti, og hafa þeg- ar borizt umsóknir um rúmlega 600 ramma erlendis frá, enda kemur sýningaefni eðli málsins samkvæmt mest frá öðrum Norðurlöndum. Vitað er nú um tvö söfn frá Bretlandi, en sýnend- ur þeirra gera það sem félagar í norrænum samtökum. Umsókn- arfrestur fyrir íslenzka safnara er enn ekki liðinn, en þess er vænzt, að þátttaka þeirra verði einnig góð, enda þótt því sé ekki að leyna, að ýmis góð söfn frá liðnum árum eru horfin af vett- vangi, þar sem eigendur þeirra eru fallnir frá. Hér er þá þess að vænta, að ekki sízt ungir safn- arar komi þar í skörðin Annars er gert ráð fyrir, að rammafjöldi sýningarinnar geti orðið allt að þúsund. Ekki er gerlegt á þessu stigi að greina frá einstökum söfnum, en þó má geta þess, að bezta íslenzka frímerkjasafnið, sem nú er til að flestra dómi, verður á NORDIU 96. Þá verða þarna trú- lega hlutar af söfnum bæði frá Þjóðskjalasafni íslands og Þjóð- minjasafni íslands. Eins er þess að vænta, að póststjórnin verði einnig með hluta af íslandssafni Hans Hals, sem margir kannast við frá fýrri sýningum. Af framansögðu má ljóst vera, að hér er í uppsiglingu áhuga- verð NORDIU-sýning, sem verð- ur áreiðanlega að leikslokum öll- um til sóma. Hér í þessum frímerkjaþætti verður reynt að segja nánar frá ■NORDIU 96, þegar nær dregur sýningunni og línur skýrast betur. Garrison Scott Veiðivesti 30% AFSLÁTTUR Ábur 5.680,- Sendum í póstkröfu um land allt. Wli©QÍUST™ SÍÐUMÚLA 11 ■ 108 REYKJAVÍK ■ SÍMI S88 6500 i BIODROGA Llfrænar jurtasnyrtivörur Engin auka ilmefni. BIODROGA Tölvufyrirtækið OZ valdi Stólpa bókhaldskerfið gl KERFISÞRÓUN HF. Fákaleni 11 - Sími 568 8055 Camhood fitusíur fyrir iðnaðareldhús Camfil betri síur betra loft í Verkfræðingar Stangarhyl la, 110 Reykjavfk, sími: 5678030 - fax 5678015 Allar gerðir af sláttuvélum og sláttuorfum. STIGA sláttuvélarnar eru þrautreyndar við íslenskar aðstæður. Traust varahluta og viðgerðaþjónusta. Umboð: Vetrarsól hf. ' STIGA Collector sláttuvél, 3,75 ha., 4 hæðastillingar. 52 Itr uppsafnari. Einstök heimilisvél Kr. 34.200 stgr. STIGA Dino sláttuvól 3,7 ha„ 3 hæðastillingar. Góð heimilisvél. Kr 21.850 stgr. STIGA aksturssláttuvélar. Fjöldi fylgihluta fáanlegur. Frá kr. 185.250 stgr TANAKA 2800 vélorf, 0,9 ha. Fyrir heimili og sumarbústaði. Kr. 17.670 stqr. VETRARSOL Hamraborg 1-3, norðanmegin Kópavogi. 564 18 64
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.