Vísir - 03.05.1962, Blaðsíða 1

Vísir - 03.05.1962, Blaðsíða 1
o» VISIK 52. árg. Fimmtudagur 3. maí 1962. — 98. tbl. Goðafoss-smyglið vestro: Verða brátt kallað- ir fyrír búakvið Einkaskeyti frá UPI. — Newark í nótt. David M. Satz, saksóknari hins opinbera í New Jersey- fylki, sagði í gær, að íslenzku sjómennirnir þrír, sem hand- teknir voru 19. marz síðast- liðinn fyrir tilraun til smygls á happdrættismiðum, mundu verða leiddir fyrir búakvið (grand jury) ,innan skamms'. Komist búakviður að þeirri niðurstöðu, að þessir þrír menn hafi raunverulega gerzt sekir um það athæfi, sem þeir eru bornir, munu þeir verða leiddir fyrir saka- dóm, en „við getum að lík- indum ekki hafið rannsókn fyrir slíkum rétti fyrr en á hausti komanda,“ sagði Sate enn fremur. Þremenningarnir, Hjalti Þorgrímsson, Magnús Björns- son og Helgi Gíslason, eru ákærðir fyrir að hafa gert til- raun til að smygla í land 179,200 heftum af happdrætt- ismiðum Irish Sweepstakes í tveim ómerktum kössum. — Hefði tekizt að selja miðana í Bandaríkjunum, hefðu tekj- urnar af sölunni numið 6.5 milljónum dollara. Þeir félag- ar voru látnir lausir gegn 1000 dollara tryggingu á mann og loforði um að koma fyrir rétt, þegar þeir yrðu boðaðir. Ljósmyndari Vísis I. M. tók þessa mynd af skrifstofu Þjóðleikhússtjóra í morgun. Talið frá vinstri: Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur, Guðlaugur Rósinkrans og Erik Balling leikstj. Leikstjóri 79 af stöðinni kominn Erik Balling aðalleikstjóri Nordisk Film kom hingað flug- leiðis í nótt til að ráðgast við Guðlaug Rósinkranz Þjóðleik- hússtjóra um kvikmyndun sög- unnar „79 af stöðinni“ eftir Indriða G. Þorsteinsson. Fréttamaður Vísis hitti þá þremenningana snöggvast á skrifstofu Þjóðleikhússtjóra í morgun, og spurði Balling leik- stjóra, hvernig honum litist á söguna sem efni í kvikmynd. Kvað hann söguna vera mjög spennandi efni og mjög girni- lega til að byggja kvikmynd á. Balling kvaðst hafa komið hing- að áður og þá tekið kvikmynd í Hvalfirði. Balling er bæði aðalleikstjóri og einn af framkvæmdastjórum Nordisk Film, sem í ráði er, að annist kvikmyndun sögunnar fyrir Edda Film. Fréttamaður spurði hann, hvaða mynd félag hans hefði nýlega gert. Nýjasta kvikmyndin nefnist „Den kære familie“ gerð eftir samnefndri sögu, sem gerist um aldamótin síðustu og er töku þeirra mynd- ar lokið. Bálling 'sagði, að fé- lag hans framleiddi 3 — 4 kvik- myndir á ári auk styttri mynda. Leikstjórinn hefir hér aðeins tveggja daga dvöl, og verður þá væntanlega ákveðið, hvenær kvikmyndargerðin hefst. Ekki hefir enn verið ákveðið um val leikara eða hlutverkaskipun, en þó má telja víst, að Róbert Arn- finnsson leiki aðalhlutverkið. eysimikil síld fyrir SV-landi Síldarmagnið við Suðvesturland virðist enn halda áfram að aukast og er það afleitt að fiskimennirnir skuii verða að halda að sér hönd- um vegna þess að ekki eru mögu- Ieikar á að taka við aflanum. í gær varð færabátur sem var að veiðum undir Snæfellsnesi þess var að síldin óð á Stapavíkinni og víð- ar fyrir sunnan Snæfellsnes og er það óvenjulegt að svo mikið sé um síld á þessum tíma að hún vaði. Það hefur fundizt mikið magn af síld út af Reykjanesi, vestur af Grindavík og er það ætlun sjó- manna, að sú síld muni vera sterk- ari og betri heldur en sú sem nú geymslu vegna átunnar, sem er komin í hana. Verðhækkun á brauðvörum Eins og auglýst er i blaðinu í dag hefur Verðlagsnefnd ákveðið nýtt hámarksverð á brauðum í smásölu með söluskatti. Franskbrauð, 500 gr., verða kr. 5.40, rúgbrauð óseydd 1500 gr. kr. 8.30 o. s. frv. (Sjá auglýsinguna). — Hækkunin nemur að meðaltali 5% á hinum auglýstu vörum. Allar götur borgarínnar full- gerðar á næstu tíu Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, skýrði frá hinni nýju heildaráætlun um fullnaðarfrágang gatna, á fundi í Landsmálafélaginu Verði í gær. Hefur borg- arráð samþykkt tillögu, sern byggð er á áætlun- inni, sem gerir ráð fyrir að allar götur í Reykja- vík verði fullfrágengnar í árslok árið 1972, að þeim undanskildum, sem lagðar eru 1970—1972. Verður tillaga þessi lögð fram á borgarstjórnarfundi í dag. ^ Áætlun þessi nær yfir svæðið vestan Elliðaána, að borgar- mörkum í Fossvogi og Seltjarnamesi. Er reiknað með að á næstu tíu árum verði lokið við að fullgera allar götur á þessu svæði, nema þær, sem teknar eru í notkun síðustu þrjú árin. Ekki er talið hagkvæmt að ganga frá götu fyrr en bygging- um við hana er lokið. 1 fullnaðarfrágangi gatna er átt við malbikaða eða steypta akbraut, steypta gangstéttarkanta og hellulagðar gangstéttir. Áætlaður kostnaður við allt næstu tíu árum. Skiptist hann gatnakerfið er 909 milljónir, á þannig að 641 milijón fer til að fullgera núverandi gatnakerfi og 268 milljónum verður varið til að gera ný hverfi byggingarhæf. Auk þess verður varið 39 millj- ónum til gatna og holræsagerðar á því sem eftir er þessa árs. 675 miljónir af kostnaði við gatnagerð, mun borgarsjóður leggja fram og er reiknað með að það geti orðið án hækkana á útsvörum, þegar reiknað er með eðlilegri fólksfjölg- un og tekjuaukningu í borginni. Þær 234 milljónir sem þá vantar verður að fá með öðrum tekjustofn um. Er ætlunin að húseigendur greiði hluta af kostnaði við gang- stéttar fyrir framan hús sín, eins og verið hefur, en til mála hefur komið að hækka þeirra hlut úr einum þriðja af kostnaði í helm- ing. Einnig þykir eðlilegt að bif- reiðaeigendur taki einhvern þátt 1 kostnaðinum, þar sem þeir munu njóta umbótanna á gatnakerfi hvað mest. Áætlun þessi er gerð undir stjórn borgarverkfræðings, Gústafs E. Pálssonar, en honum fól borgar- stjóri að sjá um þetta. Með honum hafa unnið að þessu Ingi Magnús- son og Ólafur Guðmundsson, verk- fræðingar, auk Guðlaugs Stefáns- sonar, verkstjóra og fleiri. Nú má heita að allur gamli bær- inn, innan Hringbrautar og Rauðar- ársstígs, hafi fullgert gatnakerfi, þó að nokkuð vanti á að gangstétt- ir séu allssfaðar fullgerðar. Auk þess eru allar meginumferðaræðar út úr bænum að mestu malbikaðar Framhald á bls. 5. Björgunarleiðangur Óðins Varðskipið Óðinn var á hádegi kominn 110 mílur á haf út frá landinu á Ieið til Grænlands með vamariiðsþyrlu, en gera skal til- raun til að sækja sjúkling í lorans- stöð skammt frá Kulusuk,, er þarf að komast undir læknishendur hið fyrsta. Slydda er á hafinu, en að öðru leyti sæmilegt veður. Sjúklingurinn er danskur maður og er hann þungt haldinn af botn- langabólgu. — Björn Pálsson •reyndi að sækja sjúklinginn s.l. sunnudag, ásamt Þorsteini Jóns- syni flúgstjóra og dr. Friðrik Ein- arssyni, en varð frá að hverfa veð- urs vegna. Síðar fréttist að flugvöll urinn við loransstöðina var ófær. Var því valin sú leið, að leita sam- starfs við varnarliðið og fá þyrlu hjá því. Verður siglt eins nálægt ströndinni og unnt er og þyrlan notuð til flutnings á sjúklingnum milli stöðvarinnar og varðskipsins.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.