Dagblaðið - 21.09.1976, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 21.09.1976, Blaðsíða 1
2. ARG. - - ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1976 — 210. TBL. •RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOÚTI 2, SÍMI E7022 • • w w MENNTAMALARAÐHERRA GENGURI BERHÖGG VIÐ FRÆÐSLURÁÐ ÞEIR ERU ENN Á EFTIR BRAGA Rök róðherra „Gurtmumiur Sveinsson, skólasl jóri Fjölbrautaskólans í Breiðholti. óskaði cftir því að Rögnvald’ ’■ Sæmundsson yrði settur aðstoðarskól.astjóri,1' sagði Vilhjálmur Hjálmarsson, menntamálaráðherra í viðtali við Dagblaðið í morgun. Hann sagði ennfremur: „Fræðsluráð Reykjavíkur mælti með dr. Braga Jósepssyni, en fræðslu- stjórinn í Reykjavík mælir í umsögn sinni með Rögnvaldi. Sú afstaða ráðuneytisins að setja Rögnvald í þessa stöðu byggist á framangreindu." Ráðherra gat þess, að ekki væri skyldugt að leita um- sagnar fræðslustjóra, en að það hefði þó verið gert, enda ekki bannað. Málið rœtt utan dagskrár á fundi borgarráðs í dag Menntamálaráðherra setti Rögnvaid Sæmundsson aðstoðarskólastjóra í Fjölbrauta skótann í Breiðholti þrátt fyrir það að Fræðsluráð Reykjavíkur mælti nær einróma með dr. Braga Jóseps- syni í stöðuna. Borgarráðsfundur mun fjalla um þetta mál utan dagskrár á fundi sínuin í dag, eftir því sem góðar heimildir segja. „Þetta er ekkert annað en ofsókn," sagðf dr. Bragi Jósefs- son í viðtali við Ðagblaðið, er hann var inntur eftir viðhorfi til þeirrar ráðstöfunar mennta- málaráðherra að ganga fram hjá honum í stöðu aðstoðar- skólastjóra við Fiölbrauta- skólann í Breiðholti. „Annars er mér orðið svo kalt til þess manns, þ.e. menntamála- ráðherra, að mér er hyggilegast að segja sem minnst um þetta mál að svo koranu," sagði dr. Bragi. „Fræðsluráð Reykjavikur hefur sýnt hug sinn í málinu og tjáð ráðuneytinu hann. Við at- kvæðagreiðslu í fræðsluráði fékk dr. Bragi meðmæli 5 ráðs- manna, Rögnvaldur Sæmunds- son meðmæli eins en einn seðill var auður. Fræðsluráð mælti þannig eindregið með dr. Braga Jósepssyni,'' sagði Ragnar Júlíusson, formaður Fræðsluráðs Reykjavíkur. Ragnar kvaðst ekki enri hafa fengið i hendur formlega stað- festingu á þeirri ráðstöfun ráðherra, sem gengur i berhögg við vilja fræðsluráðsins, og ekki vilja tjá sig um málið frekar að svo komnu. Þess má þó geta að hugsan- legt er, að fleiri umsagnir en álit fræðsluráðs varðandi stöðu- veitingu þessa hafi legið fyrir. Meðal annars er það athyglis- vert, að fræðslustjóri Reykja- víkur, sem er framkvæmda- stjóri fræðsiuráðs, er sam- kvæmt nýrri reglugerð, orðinn ríkisstarfsmaður eftir því sem ‘ næst verður komizt. Þess má geta að dr. Bragi .Jósepsson höfðaði á sínum tíma skaðabótamál gegn mennta- málaráðherra og fjármála- ráðherra fyrir hönd ríkissjóðs vegna ólögmætrar . brott- vikningar úr starfi deildar- stjóra í ráðuneytinu. í héraði féll dómur þannig, að ríkis- sjóður var dæmdur til að greiða hátt á fjórðu milljón króna í skaðabætur til dr. Braga auk málskostnaðar. Var þessum dómi áfrýjað og gagnáfrýjað til Hæstaréttar. -B.S. Hlaupið fer vaxandi Skeiðarárhlaupið eykst hægt og sigandi. Beljar nú vatnsflauinur s-ein að magni til er hátt á 4. þúsund rúininetrar á sekúndu niður eftir sandinum. Varnargarðar og brýr standa enn vel fyrir sínu og eru ekki í vfirvofandi hættu. Niðri á sandinuin er áin 2,5 km að breidd og hvergi sést á e.vrar. DB-mynd Páll Steingrimsson „Það eru ekki miklar breytingar en heldur fer hlaupið vaxandi," sagði Ragnar Stefáns- son bóndi að Skaftafelli. Helgi Hallgrímsson og fleiri frá Vega- gerðinni fylgjast með hlaupinu í Skeiðará, Sigurjón Rist vatna- mælingamaður og menn frá Orku- stofnun. „Menn eru sífellt að koma og fara frá þessum stofnun- um,“ sagði Ragnar. Engar skemmdir hafa orðið á mann- virkjum utan þess að einn síma- staur brotnaði í fyrradag svo að símasambandslaust hefur verið yfir Skeiðarársandinn. Vatnsflaumurinn stefnir mest á brúna og er næstum samfelldur en hann liggur ekki þungt á varnargörðum ts er afar litill og lítilsháttar vatn er komið í Gígju- kvísl á vestanverðum sandinum. Á hádegi í gær mældist rennslið í Skeiðará 3.200 rúm- metrar á sekúndu. EVI Fyrsta fisksala í Englandi eftir þorskastríð: DAGNÝ FÉKK 140-170 KR. FYRIR KÍLÓIÐ hvert kíló og ýsuverðið var 140- 145 krónur hvert kíló. Mjög gott verð er á fisk- mörkuðum í Englandi nú, en ekkert mun afráðið um frekari sölur íslenzkra skipa. Skuttogarinn Dagný frá Siglufirði seldi í Grimsbv í morgun f.vrstur íslenzkra togara frá því þorskastríðinu lauk. Dagný fékk mjög gott verð fyrir afla stnn og má gera ráð fyrir að heildarsala skipsins verði rúmlega 20 milljónir króna. sagði Jón Olgeirsson ræðismaður í morgun. Dagný seldi í morgun fyrir alls 42.067 sterlingspund eða 13,5 millj. kr. Eftir er að selja 63 tonn af frystum fiski. Þorskafli skipsins fór á 155- 160 kr. hvert kíló að meðaltali. kolinn fór á 160-170 krónur ENIGA, MENIGA, PABBI GRÆÐIR PENINGA Sjá kjallaragrein Halldórs Halldórssonar bls. 11 Póstmenn nœstir til verkfalls- aðgerða — Sjá bls. 8 „Eg hef haldið framhjá... i huganum — segir Jimmy Carter i viðtali við Playboy — Sjá erl. fréttir á bls. 6-7

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.